Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.04.2016, Blaðsíða 5

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.04.2016, Blaðsíða 5
4 5 Þema ráðstefnunnar er „Okkar loftslag, þitt umhverfi – hvað getum við gert fyrir sjálfbærar og öruggar samgöngur“. „Við viljum sýna hvernig uppbygging vegakerfisins, notkun og rekstur þess, skiptir máli í loftslags­ og umhverfismálum. Hvaða tæknilausnir má nýta til að draga úr neikvæðum áhrifum samgangna,“ segir Asbjørn Johnsen, formaður undirbúningshóps ráðstefnunnar en hann vinnur alla jafna hjá norsku vegagerðinni. Ráðstefnan verður haldin í Þrándheimi í Noregi dagana 8. til 10. júní og mun samgönguráðherra Noregs Ketil Solvik­ Olsen setja hana. Dagskráin Norræna vegasambandið (NVF) er samstarfsvettvangur opinberra stofnana jafnt sem einkafyrirtækja í verkefnum tengd vegagerð. Alls eru um 320 fyrirtæki og stofnanir allsstaðar að frá Norðurlöndum meðlimir í NVF. Dagskráin, sú sem snýr að faglegu hliðinni, byggir á þemum NVF síðastliðin fjögur ár: ­ Örugg og umhverfisvæn samgöngukerfi ­ Gæða samgöngukerfi sem nýta auðlindir á sem bestan hátt ­ Skilvirkar stofnanir og vel skipulögð starfsemi ­ Nýsköpun og endurnýjun Via Nordica 2016 – áherslan á loftslags- og umhverfismál Hvaða tæknilausnir geta stuðlað að sjálfbærum og öruggum samgöngum? Svarið við því og mörgu öðru verður að finna á ráðstefnu Norræna vegasambandsins (NVF) í júní í Þrándheimi í Noregi. Þéttbýlismyndun og nýjar áskoranir Ásbjørn Johnsen segir að á Via Nordica 2016 ráðstefnunni verði kastljósinu beint að vegagerð og samgöngum, að alþjóðlegum áskorunum því tengt og áskorunum í nærumhverfinu. Þéttbýlismyndun nútímans krefst nýrra Nordisk vegforum ønsker deg velkommen til kongress i Trondheim, Norge, 8. – 10. juni 2016 Foto: Knut Opeide Les mer om kongressen og registrer deg på: www.vianordica2016.no Les mer om Nordisk vegforum på: www.nvfnorden.com og orkuminni lausna í samgöngumálum, bæði fyrir fólk og vörur. Það reynir á alla þá sem að samgöngumálum koma á einn eða annan hátt. „Farartækin, vegagerðin og reksturinn á vega­ kerf inu, allt verður að taka mið af kröfum framtíðarinnar um sjálfbærar lausnir innan samgöngugeirans. Með nýrri tækni, nýsköpun og skipulagsbreytingum er mögulegt að finna lausnirnar á þeim áskorun­ um sem við blasa,“ segir Asbjørn Johnsen. Velkomin til Þrándheims Dagskrá ráðstefnunnar er klár, framsögumennirnir líka. Nú er þá bara að skrá sig á ráðstefnuna sem haldin er fjórða hvert ár. Tíminn er núna. Fara má inn á http://www. vianordica2016.no/ til að skrá sig. „Ráðstefnan er haldin á Clarion ráðstefnuhótelinu í Þrándheimi. Þar er rúm fyrir 1.000 þátttakendur, þannig að þetta verður öflug samkoma fagfólks og líka tækifæri til að byggja upp tengslanet og taka þátt í faglegri umræðu með kollegum sem koma frá ýmsum löndum.“ segir Asbjørn. Ráðstefnan er haldin í enda fjögurra ára tímabils þar sem hinar mismunandi nefndir Norræna vegasambandsins hafa starfað að sínum hugðarefnum hver á sínu sviði. Loftslags­ og umhverfismál hafa verið gegnumgangandi þema, en á ólíkan hátt, í öllum nefndunum þessi fjögur ár. Þátttakendur koma allsstaðar að frá Norðurlöndunum auk þess sem þeir koma einnig frá mörgum öðrum löndum Evrópu. Þá sækja einnig ráðstefnuna fulltrúar frá Alþjóðavegasambandinu, PIARC, frá Samtökum vegamálastjóra í Evrópu, CEDR, og frá Baltneska vegasambandinu, BRA, sem er öllum sérstaklega boðið á ráðstefnuna. Asbjørn Johnsen, formaður undirbúningshóps ráðstefnunnar Via Nordica 2016. Þrándheimur. Tilboð Hlutfall Frávik nr. Bjóðandi (kr.) (%) (þús.kr.) 3 Kubbur ehf., Ísafirði 42.583.160 143,4 14.736 2 Allt í járnum ehf., Tálknafirði 39.992.600 134,7 12.146 --- Áætlaður verktakakostnaður 29.686.125 100,0 1.839 1 Lás ehf. og Jón Sigurður Bjarnason, Bíldudal 27.846.800 93,8 0 Vetrarþjónusta í Barðastrandarsýslum 2016 - 2019 16-015 Tilboð opnuð 22. mars 2016. Vetrarþjónusta árin 2016- 2019 á eftirtöldum leiðum: Vestfjarðavegur (60): Fjarðarhornsá í Kollafirði – Flókalundur 56 km Barðastrandarvegur (62): Flókalundur – Patreksfjörður 60 km Bíldudalsvegur (63): Barðastrandarvegur - Bíldudalsflugvöllur 34 km Tálknafjarðavegur (617): Bíldudalsvegur – Tálknafjörður 2,9 km Ketildalavegur (619): Bíldudalsvegur – Hafnarteigur 1,2 km Helstu magntölur á ári eru: Akstur mokstursbíla 38.300 km Verkinu skal að fullu lokið 30. apríl 2019. Niðurstöður útboða Tilboð Hlutfall Frávik nr. Bjóðandi (kr.) (%) (þús.kr.) 4 Track line Project, Hollandi 186.937.897 152,7 121.901 --- Áætlaður verktakakostnaður 122.417.870 100,0 57.381 3 Vegatækni ehf., Reykjavík 98.849.400 80,7 33.812 2 Vegamálun ehf., Kópavogi 86.964.500 71,0 21.928 1 EKC Sweden AB, Svíþjóð 65.036.957 53,1 0 Yfirborðsmerkingar, sprautuplast á Suðursvæði 2016 - 2018 16-025 Tilboð opnuð 15. mars 2016. Yfirborðsmerking akbrauta með sprautuplasti, árin 2016-2018. Um er að ræða merking miðlína, deililína og kantlína á Suðursvæði. Helstu magntölur, miðað við þrjú ár, eru: Flutningur vinnuflokks . . . . . . . . . . 1.500 km Miðlínur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.890.000 m Deililínur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 147.900 m Kantlínur. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 450.000 m Verki skal að fullu lokið 1. september 2018. Tilboð Hlutfall Frávik nr. Bjóðandi (kr.) (%) (þús.kr.) 2 Bikun ehf., Kópavogi 104.582.627 104,5 12.383 --- Áætlaður verktakakostnaður 100.050.000 100,0 7.850 1 Borgarverk ehf., Borgarnesi 92.200.000 92,2 0 Yfirlagnir á Norðursvæði 2016, klæðing 16-005 Tilboð opnuð 15. mars 2016. Yfirlagnir með klæðingu á Norðursvæði 2016. Helstu magntölur eru: Yfirlagnir með einföldu lagi klæðingar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 464.600 m2 Flutningur steinefna . . . . . . . . . . . . . . . 7.022 m3 Flutningur bindiefna . . . . . . . . . . . . . . . 800 tonn

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.