Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.04.2016, Blaðsíða 7

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.04.2016, Blaðsíða 7
6 7 Frá Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar Hér á eftir er gerð örstutt grein fyrir efni 8 rannsóknar­ skýrslna. Finna má skýrslurnar í heild á www.vegagerdin.is undir „Upplýsingar og útgáfa / Rannsóknaskýrslur“ Vegir og ferðaþjónsusta 2014-15, árstíðar dreif- ing erlendra ferðamanna og notkun bílaleigubíla. Samanburður við fyrri kannanir Rögnvaldur Guðmundsson, Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar – RRF, nóvember 2015 Í verkefninu er unnið úr fjölmörgum könnunum RRF og fleiri á árabilinu 1996 til 2015. Meðal þess eru kannanir meðal erlendra ferðamanna sem bera heitið „Dear Visitors“, sem meðal annars er lögð fyrir erlenda brottfarargesti í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þá má nefna netkönnun Félags­ vísindastofnunar Háskóla Íslands meðal Íslendinga 18­95 ára, sem gerð var sumarið 2015. Meðal helstu niðurstaðna sem settar eru fram í skýrslunni má taka að svipaður fjöldi Íslendinga fór um hálendi Íslands 2014­2015 og árið 2003. Flestir hafa farið Möðrudalsleið og þar á eftir koma Kjalvegur, Kárahnjúkavegur, Kalda­ dals vegur og Fjallabak nyrðra. Fæstir höfðu farið Dyngju­ fjallaleið frá Sprengisandsvegi að Öskju. Flestir svarenda höfðu farið einhvern tíma yfir Kjöl og um 45% svarenda sem afstöðu tóku vildu að hann yrði uppbyggður með slitlagi og brúm. Helstu farartæki erlendra sumargesta á Íslandi 1996­2015 Ástand spennikapla í steyptum brúm Kristján Steinn Magnússon, Efla, nóvember 2015 Á íslenska vegakerfinu eru samtals í kringum 1.200 brýr og samanlögð lengd þeirra er yfir 30 km. Margar af þessum brúm eru svokallaðar eftirspenntar brýr, þ.e. í steyptri yfirbyggingu þeirra eru ídráttarrör með spenniköplum úr stáli. Þessir kaplar eru spenntir upp og þjóna þeim tilgangi að minnka togspennur í steypunni. Fram kemur að ástand Hringvegarins fékk meðal eink­ unn ina 5,4 af 10 mögulegum. Suðurland kom best út (6,6) en þeir hlutar sem eru á Vesturlandi og Austurlandi fengu lakasta dóma (4,9­5,1). Varðandi áningarstaði við vegi töldu nærri allir Íslendingar mjög eða fremur mikilvægt að þar væru sorpílát og upplýsingar um vegakerfið. Þar á eftir kom símasamband, önnur fræðsluskilti, nestisborð, en snyrtingar voru í fimmta sæti. Árið 2004 notuðu flestir textavarpið til að leita upplýsinga um færð og ástand vega, en árið 2014­2015 er heimasíða Vegagerðarinnar komin í fyrsta sæti hvað það varðar. Þegar viðhorf erlendra ferðamana á árunum 1996­2015 eru skoðuð kemur fram að þeim finnst vegir hafa batnað jafnt og þétt, fleiri telja vegina betri en þeir bjuggust við í dag en var 1996. Minni breyting hefur orðið varðandi vegmerkingar á þessu tímabili, þó aðeins fleiri telji nú, að þær séu betri en þeir bjuggust við, en var 1996. Varðandi áningarstaði vildu flestir erlendir gestir hafa þá á góðum útsýnisstað, en það kom í öðru sæti hjá Íslendingum, sem vilja helst hafa þá á skjólgóðum stað. Erlendir gestir settu skjólgóðan stað hins vegar í þriðja sæti. Í skýrslunni er einnig greint frá niðurstöðum athugunar á notkun og akstri erlendra ferðamanna á bílaleigubílum. Árið 2014 er áætlað að tæpur helmingur (479 þúsund) erlendra ferðamanna hafi nýtt sér bílaleigubíl, en var um þriðjungur þeirra sem komu 2009. Nær fimmföld aukning hefur verið á þeim erlendu ferðamönnum sem nýta sér bílaleigubíla á vetrarmánuðum samanborið við 2009. Á vetrar mánuðum er meðalakstur um 1.000 km en 2.150 km yfir sumar mánuðina. Lauslega er áætlað að erlendir ferðamenn hafi ekið bíla­ leigubílum um 270 milljón km árið 2014 á móti 90 milljón km árið 2009. Til þessa hefur ekki verið mikið eftirlit með spenniköplum í brúm á Íslandi og nú eru margar þeirra komnar á þann aldur að nauðsynlegt er að gefa þessum málaflokki aukinn gaum. Í skýrslunni er sett fram yfirlit yfir ellefu algengar skaðlausar prófunaraðferðir (e. Non­Destructive Testing Methods), sem hafa verið þróaðar og beitt við eftirlit með eftirspenntum brúm erlendis. Stuðst er við skýrslur, bækur og fræðigreinar þar sem aðferðunum er lýst, fræðilegur bakgrunnur þeirra útskýrður og greint frá niðurstöðum fyrri prófana. Aðferðirnar eru metnar út frá kostnaði, tíma, nauðsynlegri þjálfun og þekkingu þeirra sem fara með eftirlitið, nákvæmni og umfangi niðurstaðna, reynslu af aðferðinni og nauðsynlegu aðgengi við mælingar. Skýrsluhöfundar telja að mestur hagur sé í að taka þrjár aðferðir til frekari skoðunar með eftirlit með íslenskum brúm í huga. Í fyrsta lagi sjónrænt mat, en það er mjög gagnlegt sem fyrsta skref í ástandsmati brúarmannvirkja. Aðferðin er ódýr, fljótleg og margprófuð en sérfræðiþekking er nauðsynleg auk reynslu hjá þeim sem gerir úttektina. Nákvæmnin er talin í meðallagi. Þá er svokölluð „impact­echo“ aðferð sem hentar vel til að finna holur í graut í ídráttarrörum. Aðferðin gengur í stuttu máli út á að banka í steypuna með hamri og mæla færsluna sem höggið veldur á yfirborði steypunnar. Aðferðin er tiltölulega fljótleg, nákvæmni niðurstaðna og reynsla er góð og auðvelt er að koma aðferðinni við. Það þarf þó sér­ fræði þekk ingu og reynslu við mælingarnar og óvíst er um kostnað vegna þeirra. Þriðja aðferðin er „ultrasonic­imaging“ aðferð sem er einföld í framkvæmd, nákvæmni er mjög góð, aðferðin margprófuð og traust og auðvelt að koma henni við. Kostnaður er talinn í meðallagi. Auk ofangreindra aðferða er bent á að ef miklar skemmdir koma í ljós á graut í ídráttarrörum er hægt að beita s.k. segul­ straumlekaaðferð til að kanna það frekar. Þá er „acoustic­ emission“ aðferð nefnd til sögunnar til að vakta ástand brúa. Sú aðferð hentar þó líklega aðeins á nýjar brýr, þar sem hún nemur ekki skemmdir sem hafa komið áður en búnaður er settur upp. Brú yfir Laxá í Dölum í byggingu 2009. Ídráttarrör fyrir spennukapla sett niður. Mynd: Sigurður Hallur Sigurðsson. Fish Oil in Icelandic Road Constructions (a case study of bituminous binder mixtures modified with bio-oil) Arnar Ágústsson, júní 2014 Um er að ræða ritgerð um verkefni til mastersprófs við KTH í Svíþjóð og tilheyrir rannsóknaverkefninu „Klæðingar – rannsóknir og þróun“ sem styrkt var árið 2014. Í verkefninu var grunnur að notkun lífolíu til að mýkja bindi­ efni við gerð klæðinga hérlendis skoðaður ítarlega. Sérstak­ lega var litið til vandamála sem komu vegna vetrarblæð inga í janúar 2013 og teknar saman rannsóknir sem gerðar voru af því tilefni. Auk þess voru gerð rannsóknastofupróf á bindiefnum með mis miklu magni af lífolíu, annars vegar lýsi og hins vegar repjuolíu, og með og án viðloðunarefnisins Wetfix N. Helstu niðurstöður rannsóknastofuprófanna voru að lýsi henti betur sem þynningarefni í bindiefni fyrir klæðingar en repjuolía, auk þess sem alltaf ætti að nota viðloðunarefni. Einnig kemur fram að 4% hlutfall lýsis í blöndunni sé of lágt vegna of mikillar segju, en 7,5% of hátt þar sem þá er meiri hætta á að lýsið skiljist frá og myndi lag milli biksins og steinefnisins. Rétta hlutfallið er einhvers staðar þar á milli og í skýrslunni er lagt til að gera frekari rannsóknir til að finna það. Vinnusóknarmynstur og vinnusóknarsvæði – Austurland Lilja G. Karlsdóttir, ViaPlan, janúar 2016 Tilgangur verkefnisins var að rannsaka búsetu starfsfólks á vinnustöðum á Mið­Austurlandi, til að fá hugmynd um vinnusóknarmynstur (e. Commuting patterns) og geta út frá því skilgreint vinnusóknarsvæði. Í skýrslunni kemur fram að Mið­Austurland var valið í þessu verkefni þar sem svæði er nokkuð vel afmarkað og með nokkra stóra atvinnustaði sem drag starfsfólk víða að. Þá er nefnt að vonast er til að þetta verkefni sé fyrsta skref í því að búa til gagnasafn um vinnusóknarmynstur á landsbyggðinni. Slíkt gagnasafn mun meðal annars styrkja verulega grunngreiningar sem þarf að gera í tengslum við samgönguáætlun varðandi sam­ göngubætur innan vinnusóknarsvæða. Vandamál við að skrá vinnusóknarmynstur hérlendis er meðal annars fólgin í því að upplýsingar um starfafjölda liggja ekki fyrir hjá Hagstofunni, líkt og tíðkast erlendis. Skráning hjá Hagstofunni er þannig að í öllum stærri fyrirtækjum eru allir starfsmenn skráðir í höfuðstöðvum þó starfsemin dreifist víða um landið. Til að afla upplýsinga fyrir verkefnið var byrjað á að gera spurningalista sem var aðgengilegur á netinu. Þá veittu Fjarðarál, Menntaskólinn á Egilsstöðum og Verk mennta­ skóli Austurlands upplýsingar um búsetu starfsfólks og nem enda. Alls tóku um 19% vinnandi fólks á aldrinum 20­67 ára á Mið­Austurlandi þátt í verkefninu, þannig að niðurstaðan telst tölfræðilega marktæk. Meðal niðurstaðna er að 70% þátttakenda vinna nálægt heimili sínu, þ.e. í innan við 10 mínútna ferðalengd. Þá kemur fram að einungis 15­25% svarenda er tilbúinn að ferðast meira en 40 mínútur dag­ lega til vinnu jafnvel þó um draumastarf væri að ræða. Þegar vinnusóknarmynstur sem fékkst út úr þessari könnun er skoðað kom meðal annars í ljós að töluverður munur er á milli kynjanna þegar kemur að ferðum til vinnu. Niðurstöðurnar benda einnig til að þó það sé mögulegt fyrir fólk að ferðast á milli allra bæjarkjarna á svæðinu, gerir fólk það almennt ekki nema til að sækja vinnu í Fjarðarál og tengd fyrirtæki. Reyðarfjörður verður þannig hluti af vinnusóknarsvæði allra hinna bæjarkjarnanna, einkum fyrir karla. Búsetumynstur fyrir þá sem vinna á hjá Fjarðaráli og öðrum fyrirtækjum á Hrauni í Reyðarfirði.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.