Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.04.2016, Blaðsíða 11
10 11
Tilboð Hlutfall Frávik
nr. Bjóðandi (kr.) (%) (þús.kr.)
3 Þ.S. verktakar ehf.,
Egilsstöðum 15.866.280 157,9 1.697
2 Hérðasverk ehf.,
Egilsstöðum 14.623.882 145,5 455
1 Ylur ehf., Egilstöðum 14.168.882 141,0 0
---- Áætlaður
verktakakostnaður 10.049.500 100,0 -4.119
Borgarfjörður eystri,
sjóvörn 2016 16-038
Tilboð opnuð 22. mars 2016. Sjóvörn frá Merki að
Sæbakka á Borgarfirði eystri. Um er að ræða 210 m langa
nýja sjóvörn.
Helstu magntölur:
Útlögn grjóts og kjarna um 2.500 m³
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2016.
Niðurstöður útboða
Loftmynd: Loftmyndir ehf.
Borgarfjörður eystri. Útboðið felur í sér sjóvörn á þessu svæði. Myndin var tekin 29. janúar 2016.
Umferð um Mýrdalssand jókst um 83% í mars
Gríðarlega aukning umferðar í mars á Hringveginum
Áður birt á vegagerdin.is 01.04.2016
Umferðin í mars á Hringveginum jókst um ríflega 20 prósent
frá sama mánuði í fyrra. Aldrei hefur mælst jafn mikil aukning
milli mánaða á Hringveginum, mismunandi tímasetning
páska skýrir þetta ekki að öllu leyti og verður að telja líklegt
að umferð erlendra ferðamanna skýri aukninguna að miklu
leyti. Umferðin um Mýrdalssand jókst t.d. um heil 83 prósent.
Milli mánaða 2015 og 2016
Enn eykst umferðin gríðarlega milli mánaða á þessu ári, en
nú varð rúmlega 20% aukning á milli marsmánaða. Svona
mikil aukning hefur aldrei áður mælst á milli mánaða á
Hringvegi. Umferðin eykst gríðarlega á öllum landssvæðum
en mest um Austurland eða um tæp 54% og næst mest um
Suðurland eða um tæp 33%. Minnst eykst umferðin við og um
höfuðborgarsvæðið en þar mælist samt tæplega 13% aukning.
Nú ber að líta til þess að páskarnir voru í mars mánuði
þetta árið en í apríl á síðasta ári, það kann að skýra a.m.k.
hluta þessarar miklu aukningar nú (sjá frekari skýringar í
umfjöllun um umferðina frá áramótum). Ekki er óeðlilegt
að umferð sveiflist mikið milli ára yfir vetrartímann en þessi
sveifla er umfram það sem venjulega má eiga von á, þrátt
fyrir mismunandi staðsetningu páska milli ára. Í sögulegu
samhengi var mars á síðasta ári rétt yfir meðaltali áranna á
undan, en nýliðinn mars reyndist 11% stærri en metmars
mánuðurinn árið 2008.
Áður fáséð aukning varð um teljara á Mýrdalssandi en þar
jókst umferðin um tæp 83% milli mánaða. Umferð á þessum
stað hefur verið að aukast gríðarmikið undanfarin ár, t.d. jókst
umferðin þarna um 77% milli aprílmánaða 2013 og 2014.
Frá áramótum 2015 og 2016
Þegar þrír mánuðir eru liðnir af árinu 2016, hefur umferðin
aukist um tæp 17%, frá áramótum. Slík aukning hefur aldrei
áður mælst miðað við árstíma. Mest hefur umferð aukist um
Austurland en næst mest um Suðurland eða um tæp 24%.
Minnst eykst umferðin um og við höfuðborgarsvæðið eða
um rúmlega 13%. Hugsanlegar skýringar á þessari miklu
aukningu fram til þessa gætu verið mikil aukning erlendra
ferðamanna, aukinn kaupmáttur, ódýrt bensín og hugsanlega
betri tíð það sem af er ári miðað við meðalár. Líklegast er
aukningin blanda af þessu öllu en eigi að síður hugsanlega að
mestu leyti vegna hinnar auknu umferðar erlendra ferðamanna
yfir vetrartímann.
Umferð eftir vikudögum 2015 og 2016
Það sem af er ári hefur umferðin aukist mest á sunnudögum
eða um tæp 27% en minnst á föstudögum eða um tæp 10%.
Þó að aukningin sé minnst á föstudögum er mest ekið á þeim
dögum. Minnst er ekið á þriðjudögum.
Horfur út árið 2016
Enn er of snemmt að koma með raunhæfa spá vegna mikilla
sveiflna í vetrarumferð á Hringvegi milli ára. En aukningin
er það mikil fyrstu þrjá mánuði ársins að það eru góðar líkur
á talsverðri aukningu á umferð nú í ár þó að hún verði ekki í
líkingu við það sem af er ári.
Breyting á magni umferðar í marsmánuði og uppsafnað,
annarsvegar á milli áranna 2015 og 16, hinsvegar á milli
áranna 2014 og 15.
Myndir frá vefmyndavélum Vegagerðarinnar á hádegi laugardaginn 2. apríl 2016.