Þjóðólfur - 01.04.1954, Page 21

Þjóðólfur - 01.04.1954, Page 21
- 21 - ÝMSAR LEIÐBEININGAR UM RÉTTAR LÍNUR í KLÆÐ4BURÐI TIL LÍKAMSFEGRUNAR SÉUÐ ÞÉR LÁG OG GRÖNN ÆTTUÐ þér yfirleitt 1) að reyna að sýnast hærri og þreknari, 2) að nota einföld. föt, þann- ig að þau beri ekki líkamann ofurliði. Halsmálið á fötum yðar ættuð þer að hafas 1. Hátt kringlótt eða ferhyrnt, 2. kraga hnepptan upp í háls, 3. mjukar pífur. Axlarlínuna ættuð þér að hafa háa og nokkuð breiða. Mittið með mjukri vídd. Ermarnar, hálfsíðar Mpúff"-ermar eða bara frjálsar. Pilsið ættuð þér að hafa; 1. Beint ( ekki þröngt), 2. Lítið eitt fleygað. Yfirhöfnin ætti að vera; 1. Tvíhnepptur jakki, 2. aðskorin eða dálítið svagger-löguð kápa, 3. snögg skinn. Litla hatta ættuð þér að nota. SÉUÐ ÞÉR LÁG OG GILD ÆTTUÐ þér yfirleitt að reyna að sýnast stærri og grennri. 1. Nota langar, lóðréttar línur, 2. hafa ákveðnar brjóst- og mittislínur til að komast hjá tunnulöguðu utliti. Hálsmálið á fötum yðar ættuð þér að hafa; 1. Kragalaust eða með meðalstórum kraga, 2. lítið og V-lagað eða hjartalagað. (En fyrir alla lifandi muni hafið aldrei kraga þétt upp að hálsinum.) Axlarlínuna ættuð þér að hafa hækkaða og örlítið breikkaða. Um mittið væri ráðlegt að hafa mjó belti úr sama efni og kjóllinn. (Ekki breið belti. ) Ermarnar ættu að vera langar og bein- ar ( ekki of þröngar ). Yfirhöfnin má ekki vera of aðskorin og ekki með Bolero-sniði. Hatta skuluð þér hafa með línum, sem vita upp á við. SÉUÐ ÞÉR HÁ OG RENGLULEG ÆTTUÐ þér yfirleitt; 1) að taka burt hvassar lín- ur til þess að sýnast heldur breiðari og bústrtari, 2) að nota bognar láréttar línur. Hálsmálið ættuð þér að hafa, kringlótt, hjartalagað, ávalt eða bátlagað. Axlarlínuna, mjuka en hækkaða. í mittið ættuð þér að hafa breið belti. Ermarnar ættu að vera "púff"-, bisk.- upa- eða bjölluermar. Pils skuluð þér ávallt velja yður hring- skorin eða fleyguð. Yfirhöfnina skuluð þér hafa svagger eða hálfaðskorna kápu. Þer ættuð að nota barðahatta. EF ÞÉR ERUÐ BOGIN í BAKI ÆTTUÐ þér að hafa ; 1. Fíngerða kringlótta kraga, 2. vítt blússusnið í mittið, 3. Bolero-jakka, 4. mjúka greiðslu í hnakka. EF ÞÉR HAFIÐ ÁBERANDI BAKHLUTA ÆTTUÐ þér að hafat 1. Mikla vídd í pilsinu að aftan, 2. síða jakka, 3. dálítið hringskorið "skjöð", 4. lóðréttar línur. EF ÞÉR HAFI.Ð SVERA ÖKLA ÆTTUÐ þér að hafa ;

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/1790

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.