Þjóðólfur - 01.04.1954, Blaðsíða 26
- 26 -
I/
JV£MjxJ>UA.
Komið var með þá tillögu til ritnefnd-
ar, að lagðar yrðu nokkrar spurningar
fyrir okkar ágætu kennara. Síðan voru
vélrituð bréf og send fjorum kennurum,
en aðeins hefur borizt svar frá einum.
Það er Steinþori Guðmundssyni. Spurning
su, sem fyrir hann var lögð, hljoðaði svo:
Hvert er álit yðar á ölvun nemenda og
bindindismálum yfirleitt ?
Svar ;
Skyldi nokkur heilvita manneskja hafa
nokkuð annað en illt eitt að segja um
ölvun skólanemenda ? f mínum augum er
það að minnsta kosti hreinasta viður-
styggð, að unglingar á ykkar aldri gefi
sig á vald áfengra drykkja eða saurgi
heilög vé skólans síns með því að þola
þann vágest þar innan veggja. Því fer
fjarri, að ég telji nokkrum manni nauð-
syn að neyta áfengis eða hafa það um
hönd. Það gleðimagn, sem sumir telja
sig sækja í samvistir við Bakkus, veit ég
af nokkuð langri reynslu, að sérhver heil-
brígð manneskja getur veitt sér eftir öðr-
um leiðum. Það er siðferðilegt þróttleysi
og ómannleg tilhneiging til lífsflótta, sem
iýsir sér í því að leita lífsgleðinnar í
óminnisveignum. Ég skal ekki að þessu
sinni fara ut í þá sálma að lýsa því, hví-
líkur bölvaldur áfengið er í lífi einstakl-
ingsins og þó sérstaklega í sambuð hans
við samfélagið. Ég veit, að hjá ykkar
líkum hættir slíkum fortölum til að fara
inn um annað eyrað og ut um hitt. En
fyrst þið spyrjið mig um þessa hluti,
megið þið gjarnan vita það, að á náms-
árum mínum var það mitt mesta stolt að
standa af mér alla Bakkusaráleitni, án
þess að flýja af hólminum, þegar allur
fjöldinn taldi sig vera að lífga sinn sál-
aryl við svonefndar guðaveigar. Fyrir
mig var það ekkert þrekvirki að standast
þann áróður. Svo skyldi og vera um ykk-
ur. Látið ekki vanans viljaleysi ná tök-
um á ykkur í glímunni við Bakkus.
Fullkominn sigur í þeirri glímu set ég
fyrir mitt leyti ofar öllum afrekum í
landsprófi eða öðrum lærdómsþrautum,
enda til lítils barizt, ef glæsilegum nárns-
árangri er drekkt í svo göróttum drykk
sem áfengið er.
Steinþór Guðmundsson.
ANDLEGUR LEIRBURÐUR !
Þorsteinn Skyrmagi í III.-Ys Takið
þið nu eftir !
Ef þið eigið einhverntíma eftir að róa
báti, þá munið að snúa árinni alltaf
flatria Það gerði ég þegar eg var til
sjós - og ég var alltaf fyrstur.
Einar Sig.; Hvað varstu mikið á und ■ ■
an !
Þorsteinn Skyrmagi í III.-Ys Það er
ekki ofsögum sagt af aumingjaskapmjm í
ykkur. Það er ég viss um, að hver ein-
asti sveitakrakki fyrir norðan hefði get-
að gert þetta.
Joh. E. ; Þau eru líka alltaf úti í
fjósi að læra.
Sverrir Kr. í III.-Y; Hvað eru
postularnir margir ?
Nem. ; 40.
Sv. Kr. ; Mér þætti nú gaman að heyra
ykkur nefna þá. - Nei, þeir voru 12, og
meira að segja 1 sem sveik.
Nem. ( grípur fram í); Já - nú man
ég það - Bería.
Faðir; "Þú ert alltaf neðstur í bekknum
Jói. Geturðu ekki annars staðar verið?H
Jói; "Nei pabbi, hin eru öll upptekín. n