Klukkan - 18.01.1925, Blaðsíða 1

Klukkan - 18.01.1925, Blaðsíða 1
Það er svo sem gefið að »Klukkan« ætlar eitthvað fyrir sér eins og öll önn- ur blöð. Hún ætlar sér fyrst og frémst að lifa. t*ó að hún byrji eins og svo mörg önn- ur blöð — dægurblöð, sem lifa að koma út nokkrum sinnum — með tvær hend- ur tómar, hefir hún samt fullann vilja á því að lifa, því hún þykist eiga er- indi til almennings, — vill segia honum þá hluti, sem hann bæði vill vita og þarf að vita, og vil segja honum þá svo, að honum þyki ánægja að lesa þá. Og þess vegna vonar Klukkan, að almenningur taki henni svo, að henni verði lífs auðið. Það skal í fyrstu tekið fram, að Klukkan er ekki flugrit fyrir neinn stjórn- málaflokk eða stjórnmálaskoðun, eins og flest önnur blöð hér eru, og Klukkan skiftir sér ekkert af stjórnmálum, hvorki beint né óbeint. Kemur það ekki til af því, að ekki þurfi að ræða þau, sem hvað annað, heldur af hinu, að henni þykja hin blöðin gera þeim málum nægileg skil. Klukkan er aftur á móti fréttablað, og er það ærið nóg starfsemi fyrir blað. Það er ekki sagt hinum blöðunum til hnjóðs, — aðal verksvið þeirra eru stjórn- málin — en þau hafa varla getað eytt nægu dálkarúmi í fréttir. Skeyti eru líka, ef uokkuð á að muna um þau að ráði, alt of dýr fyrir íslenzk blöð. En hægt er að bæta úr því með lægni og góð- um vilja. Það er eðli vor mannanna, að vér erum forvitnir, og er ekkert ljótt í því, þó að það sé venjulega talið ódygð. Menn langar til að þekkja ýmsa smá- viðburði, sem gerast í kringum menn, ekki af því, að þeir séu svo þýðingar- miklir, heldur af því að — já, af því að menn eru forvitnir. Þessum þörfum almennings vill Klukkan fullnægja. Menn langar líka til að vita hvað gerist út um landið. Þessu vill Klukkan líka sjá mönnum fyrir. En rnenn vilja gjarna að vel sje frá sagt, svo að jafnvel smælkið verði skemtilegt, fast að því sögulegt. Þetta vill fólk, og það er von- legt, og svona vill Klukkan láta sér segjast. En aðallega vantar fólk hér fréttir, af því sem erlendis gerist, bæði stórvið- burðum og stjórnmálum, og þó sérstak- lega af ýmsu, sem þó að það séu ekki viðburðir, er marka spor í söguna, engu að síður er mjög í frásögur færandi, og eftirtektarvert í bili. Það er ekki með þessu verið að álasa hinum blöðunum, — þau hafa annan aðalstarfa — en þessu vill Klukkan færa lesendum sínum fréttir af. Myndir eru eitt af því, sem almenn- ing fýsir mest að sjá, og er það von- legt. Það er skemtilegt að sjá myndir af því, sem er að gerast, í hvern ein- stakan svip, bæði innanlands og utan, og vill Klukkan reyna að gera alt, sem hægt er á þessu sviði. Klukkan mun slægjast eftir því, að flytja fréttir, sem hin blöðin gefa sig ekki að. Klukkan mun á engann mann ráðast og ekkert málefni, sem ekki þarf heldur til að koma, úr því hún fæst ekki við stjórnmál, og hún mun vera hæversk bæði til orðs og æðis. Klukkan mun ritdæma bækur, leiki og alla list af þeirri sanngirni, að les- endum blaðsins verði í því góð leið- beining í þeim efnum, og vill yfir höfuð fræða menn um slíka hluti, eftir því sem frekast eru föng á. Aðeins aftasta síða og næst-aftasta mun verða ætluð undir auglýsingar. Klukkan mun láta sér sérstaklega um- hugað um allar þær fréttir útlendar, sem að nokkru geta varðað utanríkis- mál Islands, enda er ekki laust við, að athygli á slíkum hlutum hafi orðið að lúta í lægra haldi í blöðunum hingað til, fyrir styrr um innanlandsmál. Klukkan er tilraun, og geðjist almenn- ingi ekki að henni, sem þó fastlega er vonast eftir, þá legst hún, eins og svo mörg önnnr blöð til hægs eilífðarsvefns i kirkjugarði Landsbókasafnsins, áreið- anlega með góða samvizku. Haustr i grnin qra,r heitir skopleikurinn nýji. Virðist Klukk- unni all súrsætt brosið framan í sum- um, sem látast hlægja, og fer það þeim, sein setja upp þann svip einkar elsku- lega. Klukkan mun minnast betur á Haustrigningar. Færeyingar og Daoir. Sjálfsstæðismenn vilja ekki beinar skipa- ferðir milli eyjanna og Danmerkur. Á síðasta fundi Eimskipafélags Fær- eyinga, stakk Joannes Patursson, leið- togi sjálfstæðismanna uppá því, að fé- lagið léti framvegis af ferðum beint til Danmerkur, en léti skip sitt í stað þess venja komur sínar til Noregs. Hver af- drif tillögunnar urðu, veit Klukkan ekki, en af því að tillagan kom fram má ráða í hug Færeyinga. Undarlegt er það, hvað Danir eiga oft erfitt með að þekkja sinn vitjunartíma. Danir hefðu að íslandsmálinu — nú nýafstöðnu — átt að hafa lært, að ekki er hægt að 'setja undir lekann, með öðru móti en því, að verða tafarlaust við réttmætum kröfum, annars hækka þær með tím- anum, og hver veit hvað. Það stoðar ekki hót, að Danir bjóða heim heilmiklu af færeyskum skólabörnum, þó það sé mikið fallegt. Undarlegt er það einnig hve íslendingar eru tómlátir í færeyska málinu. Oss er það lífsnauðsyn, að ekki kvarnist úr danska ríkinu að norðan- verðu, sem Klukkan, ef guð lofar að lifa, síðar skal víkja að. Ætti oss því að vera umhugað um að eyjarskeggjar fengju sanngjörnum kröfum framgengt, annars er ekkert að vita hvað fyrir kann að koma. KraDbageriIlinii [nndinn. Ef verið er að berjast, er bezt að vita við hvern er átt. Kemur það sér ekki hvað sízt vel fyrir læknastéttina. Árum saman hefir hún átt í höggi við krabba- meinið, en ekki vitað hver var þar Björn að baki Kára. Nú hefir þýzkur fræði- maður Otto Schmidt í Múnchen fundið geril þann, er veikinni veldur, og ætti því upp frá þessu að vera hægra um vik í viðureigninni við þann krankleika. br.

x

Klukkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Klukkan
https://timarit.is/publication/1794

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.