Kaupsýslutíðindi


Kaupsýslutíðindi - 19.09.1941, Síða 2

Kaupsýslutíðindi - 19.09.1941, Síða 2
er stofnféð óbreytt, 4 miljónir króna, og saina máli gegnir um varasjóð og afskrifta- reikning og óráðstafaðan tekjuafgang. — Ábyrgðir hafa hækkað lítið eitt, og sama ináli gegnir um liðina „Erlendir bankar“ og „Ýmislegt.“ Hæstu liðirnir eigna megin eru svo sem vænta mátti inneignir bankans erlendis. Námu þessir liðir samtals 112.1 miljón króna mánaðamótin júlí—ágúst og böfðu hækkað um rúmar 7.4 miljónir króna frá því um næstu mánaðamót á undan, en um tæpar 53.4 miljónir síðan um síðustu áramót, en þá nárnu þessar inneignir samtals rúmum 58.7 miljónum króna. — Síðan um áramót liefur gjaldeyriseign Seðlabankans þannig nærri tvöfaldast. — Gjaldeyriseignin skiptist hinn 31. júlí síðastliðinn þannig: ínneign hjá erl. bönkum .... 69.9 milj. kr. Gjaldeyrisvarasjóður ........ 12 — — Víxlar og ávísanir tii greiðslu erlendis ................... 2.1 — —• Erlend verðbréf ............. 12.1 — — 112.1 milj. kr. Eins og kunnugt er, var Landsbankinn með lögum frá síðasta Alþingi skyldaður til þess að mynda sérstakan gjaldeyrisvarasjóð. Hefui’ sjóður þessi verið myndaður og kemur nú i fyrsta sinni fram í Efnahags- reikningi Landsbankans. — Athyglisverður er liðurinn „Erlend verðbréf“. Hefur Lands- bankinn keypt allmikið af slikum bréfum síðan um síðustu áramót, en þá nam erlend verðbréfaeign Landsbankans aðeins 247 þús- undum króna. — Liðurinn „Víxlar og ávís- anir til greiðslu erlendis“ skiftir ekki miklu máli, enda var hann aðeins 2.1 miljón króna við lok júlímánaðar og hafði þá aukizt um sem næst 1.4 miljónir króna síðan um ára- mót. — Aðrir liðir eignahliðarinnar hafa ekki breytzt svo neinu nemi, að öðru leyti en því, að endurkeyptir vixlar eru horfnir úr efnahagsyfirlitinu, og þarf það í rauninni ekki að koma á óvart eins og málum er nú komið. — Vixlaeign þessi nam um siðustu áramót rúmum 4 miljónum króna. Lækkar hún síðan ört og er um mánaðarmótin apríl—maí aðeins 900 þúsund krónur, en er um næstu mánaðamót þar á eftir horfin. Önnur útlán Seðlabankans, víxlar innlend- ir og ávisanir, svo og lán á hlaupareikningi og reikningslán, námu í júlílok samtals rúm- um 8.6 miljónum króna og höfðu að vísu hækkað nokuð frá því um næstu mánaða- mót á undan, en hinsvegar, svo seni búast mátti við, lækkað að verulegu leyti síðan um áramót. — Námu útlán seðlabankans þá samtals rúmri 16.1 miljón króna og hafa því lækkað á timabilinu um nærri helming. Þetta er vitanlega bein afleiðing af peningagnægð þeirri, sem nú er í landinu, enda getur tæp- lega hjá því farið, að miklum erfiðleikum sé bundið að ávaxta fjárfúlgur þær, sem nú safnast fyrir hjá aðalbanka landsins og raunar öllum peningastofnunum. — Mest er lækkunin á víxileign hankans, og er hún i lok júlímánaðar komin niður í tæpar 3 miljónir. Aftur á móti hafa reikningslán og lán á hlaupareikingi hækkað um sem næst hálfri annari miljón króna. — Aðrir liðir hafa, eins og áður var vikið að, ekki breytzt að verulegu leyti. Gullforðinn er óbreyttur frá því sem verið hefur, liðurinn „inneignir hjá innlendum bönkum“ hefur lækkað lítils- háttar, innlend verðbréfaeign bankans stend- ur í stað, en aftur á móti hækka liðirnir ábyrgðatryggingar og „ýmislegt“ nokkuð. — Sé litið á starfsemi bankanna í heild, kem- ur í ljós, að innlög hafa vaxið gifurlega frá því styrjöldin hófst. Nemur aukningin sam- kvæmt upplýsingum Hagtíðinda samtals rúm- um 100 miljónum króna frá því um áramót 1940 og til loka júlímánuðar 1941, eða úr rúmum 78.9 miljónum í rúmar 179 miljón- ir króna. Þess ber þó að gæta. að í þessum tölum eru taldar með inneignir banka og sparisjóða hvor hjá öðrum. — Sé hinsvegar 210 KAVPSÍSLUTÍÐJNDI

x

Kaupsýslutíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kaupsýslutíðindi
https://timarit.is/publication/1798

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.