Kaupsýslutíðindi


Kaupsýslutíðindi - 19.09.1941, Side 5

Kaupsýslutíðindi - 19.09.1941, Side 5
tileymdu aldrei að biðja um pöntun. Gerðu það oft á meðan samtalið fer fram. Það getur verið, að þú fáir ekki pöntun i fyrsta samtali, en láttu samt ekki hugfallast. Marg- ir menn eru varfærnir og þú skalt gefa þeim frest, tii þess að hugsa sig um. Pönt- unin kemur, ef þú hefir getað grafið upp óskirnar. Vinur minn einn, sem hefir með höndurn tryggingarstarf, hlaut reynslu, sem sýnir, hvernig hægt er að vekja blundandi óskir, og stundum tekur það langan tima. Það er ekki alltaf hægt að selja með samtalinu einu. Eftir griðarlega áreynslu hafði tryggingar- manni þessum tekist að selja efnuðum manni líftryggingu, að upphæð 1000 pund, en mað- urinn keypti líftrygginguna vegna þess, að hann óskaði eftir að vera laus við umboðs- manninn (sú sala byggðist líka á ósk). Umboðsmaðurinn vissi það, að maðurinn gat auðveldlega keypt hærri tryggingu, og stakk upp á því, að hann keypti 4000 punda viðbótdrtryggingu. Þess ber að minnast, að tryggingin hafði verið keypt vegna þess, að maðurinn óskaöi eftir að vera laus við umboðsmanninn, en • ekki vegna þess, að hann væri að fullnægja neinum óskum í sambandi við líftrygging- una. Nú leið sá tími, sem hinum væntanlega tíftryggingarkaupanda hafði verið gefinn til umhugsunar um hina 5000 punda líftrygg- ingu. Á síðasta degi gekk umboðsmaðurinn inn til mannsins og' varð ekki lítið undrandi, þegar hann rétti honum ávísun á iðgjald fyrir 5000 punda tryggingu. Þessi atburður varð til þess, að umboðs- maðurinn fór að líta á sig sem snjallan sölumann. * En skömmu seinna komst hann þó að raun um, að það var reynslan, sem hafði fullgerl söluna. Það, sem komið hafði fyrir manninn, var eftirfarandi: Hann hafði farið út i vagnbyrgið sitt einn morgunn, og i hugsunarleysi hafði hann rennt bílnum á lokaðar dyrnar. Billinn braut hurðina og það var mildi, að maðurinn slapp óskaddaður. Þegar hann fór að hugsa um þetta, eftir á, datt honum í hug, að eitthvað gæti komið fyrir sig, og þess vegna keypti hann við- bótartrygginguna. Hann óskaði þess að geta séð fyrir fjölskyldu sinni, ef eitthvað kæmi fyrir sig. Og þar sem hann óskaði að vera öruggur um sinn hag, keypti hann. Búnaðarbanki Islands Austurstræti 9, Reykjavik. Útibú á Akureyri. i—------------------------------ Gunnar & Geir LÖGFRÆÐIS- & FASTEIGNASKRIFSTOFA Kaup og sala fasteigna, veröbréfa, skipa. o. fl. — Hafnarstrœti 4 — Sími 4306 Lárus JúhannEssDn hæstaréttarmálaflutningsmaður Suðurgötu 4. Símar 4314, 3294 Málflutningur. Samningsgerðir. ----- lnnheimta. ...- ...... I KA UPSÝSLUTÍÐINDl 213

x

Kaupsýslutíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kaupsýslutíðindi
https://timarit.is/publication/1798

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.