Kaupsýslutíðindi - 19.09.1941, Blaðsíða 6
BÆJARMNG REYKJAVÍKUR
Mál tekin fyrir
vikuna 7.—13.'september 1941.
Miðvikudag'inn 10. september voru tekin
fyrir 4 mál, þar af voru ný eftirtalin: Út-
vegsbanki íslands li/f (G. Ólafs) gegn Tryggva
Sigurðsyni o. fl. (enginn), Útvegsbanki ís-
lands h/f (G. Ólafs) gegn Valtý Guðmunds-
syni(enginn), bæði dómtekin og H.f. Keilir
(Kr. Guðlaugsson) gegn Einari Guðberg Sig-
urðssyni (Guðm. I. Guðm.). Var tekinn frest-
ur i þvi máli.
Málið Sigurþór Jónsson gegn Arinbirni
Árnasyni var dómtekið.
Fimmtudaginn 11. september voru tekin
fyrir 22 mál, þar af voru 2 eftirtalin mál ný.
Gunnlaugur Halldórsson (Guðm. í. Guðm.)
gegn stjórn Samkomuhúss Vestmannaeyja
(Pétur Magnússon), frestað og Rögnvaldur
Jónsson (Guðm. I. Guðm.) gegn Edvard
Fredreksen (enginn), dómtekið.
Vitnaleiðsla var í málinu Ásgeir Bjarnþórs-
son gegn Ragnhildi Steindórsdóttur en i
öðrum málum var tekinn frestur.
Dómur
uppkveðinn 12. sept. 1941.
SKAÐABÓTAMÁL.
Finnur Einarsson gegn Einari Þorgríms-
syni, Karlagötu 6. — Sýknað. Málskostnaður
falli niður. — Stefnandi var ekki talinn hafa
öðlazt einkarétt til eftirmyndunar erlends
landabréfs af vesturvígstöðvunum (1940),
enda ekki sánnað að stefndur hafi endur-
prentað landabréf stefnanda. Útgáfa stefnds
á svipuðum uppdrætti var því ekki talin
hafa bótaskyldu í för með sér. Sama máli
þótti gegna um fræðslu nokkra um hernaðar-
mál ýmissa þjóða, er prentað var á landa-
bréfin og þess getið á updrætti F. E., að
hún væri höfð eftir nafngreindri bók. Ákvæði
laga nr. 84, 1933 (um óréttmæta verzlunar-
háttu) þóttu ekki ná til atvika máls þessa
(að stef»dur gaf uppdrátt sinn út sem ó-
keypis fylgiblað með „Ótrúlegt en satt“).
Dómar
uppkveðnir 13. sept. 1941.
VÍXILMÁL.
Mjólkurfélag Reykjavikur gegn Ágústi Guð-
mundssyni, Siglufirði. — Stefndur greiði kr.
3.578.05 með 6% ársvöxtum frá 17. júlí 1934,
% % þóknun, og kr. 434.35 í málskostnað.
Útvegsbanki íslands h/f gegn Tryggva Sig-
urðssyni, Leifsgötu 28, Sigurði Þórðarsyni.
Nýlendugötu 27 og Jósefínu Kristjánsdóttur,
Leifsgötu 28. — Hin stefndu greiði kr. 500.00
með 6% ársvöxtum frá 21. júlí 1941, Ys %
þóknun, kr. 8.35 í afsagnarkostnað og kr.
129.35 í málskostnað.
Útvegsbanki íslands h/f gegn Valtý Guð-
mundssyni, Þingholtsstræti 28 og Guðjóni
Einarssýni, Tjarnargötu 39. — Stefndir greiði
kr. 300.00 með 6% ársvöxtum frá 15. april
1941, Vs % þóknun, kr. 8.35 í afsagnarkostn-
að og kr. 88.35 í málskostnað.
ÓGILDINGARDÓMSMÁL.
Hreppsnefnd Seltjarnarneshrepps gegn
handhafa veðskuldabréfs. — Bréfið ómerkt.
Kristján Aðalsteinsson gegn handhafa líf-
tryggingarskírteinis. — Skírteinið ómerkt.
Eyþór Þórarinsson gegn handhafa skulda-
bréfs. — Bréfið ómerkt.
Guðmundur Hannesson gegn handhafa
skuldabréfa. — Bréfin ómerkt.
SKULDAMÁL.
H/f Kol & Salt gegn Úlfari Bergssyni,
Minni-Vatnsleysu. — Stefndur greiði kr. 265.00 »
með 5% ársvöxtum frá 1. jan. 1941 og kr.
92.15 í-málskostnað.
214
KAUPSÝSLUTÍÐINDI