Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.09.2021, Page 10
10 Framkvæmdafréttir nr. 707
7. tbl. 28. árg.
Steyptar brýr eru algengasta tegund brúa í íslenska
vegakerfinu. Utan þéttbýlis hefur ekki tíðkast að leggja
sérstakt slitlag á brúargólf slíkra brúa eftir að þær hafa
verið steyptar, heldur hefur verið ekið á brúargólfinu
sem jafnframt er hluti af burðarvirki brúarinnar.
Þetta hefur verið gert þar sem erfitt er að nálgast
malbik úti á landi. Vegna umferðaraukningar, sem og
þungaflutninga, ásamt negldum hjólbörðum hefur
hjólfaramyndun og slit aukist verulega á brúargólfum.
Það hefur því þurft að ráðast í viðgerðir og ein lausnin
er leggja sérstakt slitlag úr hástyrkleikasteypu. Þetta
var gert í viðgerðum á brúargólfi Borgarfjarðarbrúar
þar sem slitlagið var steypt 90 mm þykkt.
Rannsókn á slitþolinni
hástyrkleikasteypu
Slitþolin hástyrkleikasteypa, 50 mm lag
á brýr – þróun og blöndun er nýjasta
áfangaskýrsla verkefnisins sem styrkt var
af Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar. Um er
að ræða samvinnuverkefni Rannsóknastofu
byggingariðnaðarins og Vegagerðarinnar.
Tilgangur og kostir sérstaks slitlags á brýr eru
meðal annars þessir:
→ Veitir vörn fyrir undirliggjandi burðarsteypu, kapla og
járnbendingu með tilliti til vatns og salts.
→ Lokar sprungum sem hugsanlega myndast í
burðarsteypu, t.d. vegna hitamyndunar.
→ Vinnuaðstaða við frágang sérstaks slitlags er góð og
tryggir betur slétt yfirborð í samræmi við kröfur.
→ Hástyrkleikasteypa með slitþolnum steinefnum leiðir
til lengri endingar og lægri viðhaldskostnaðar.
↑
Steypt slitlag á nýja brú yfir
Steinavötn í Suðursveit.