Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.09.2021, Blaðsíða 11

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.09.2021, Blaðsíða 11
Framkvæmdafréttir nr. 707 7. tbl. 28. árg. 11 Slitþolin 50 mm hástyrkleikasteypa var fyrst notuð í viðgerð á brúargólfi Ölfusárbrúar haustið 2018. Það sem er nýjung í skýrslunni er að hún var þróuð og rannsökuð nánar til notkunar á nýjar brýr. Í slitþolinni hástyrkleikasteypu er meðal annars leitast eftir lítilli rýrnun, þéttleika, frostþoli og slitþoli. Mælingar liggja fyrir á þessum eiginleikum. Nú þegar hafa fjórar brýr verið byggðar með sérstöku 50 mm slitlagi með hástyrkleikasteypu. Brýrnar eru Steinavötn í Suðursveit haustið 2020, Hattardalsá haustið 2020, Bjarnardalsá vorið 2021 og Botnsá á Vestfjörðum sumarið 2021. Verkefninu er stýrt af Ólafi W. Wallevik hjá Rannsóknastofu byggingariðnaðarins (Rb) og Helga S. Ólafssyni hjá Vegagerðinni. ↖ Ein af mörgum prófblöndum á rannsóknarstofu. ↑ Viðloðunarpróf (bond test) milli ásteypu og steypts undirlags. Viðgerð á Miðfjarðará vegna slits, sumarið 2018. Byrjað var á því að fræsa og sums staðar þurfti að vatnsbrjóta því steypan var illa farin.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.