Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.09.2021, Side 13
12 Framkvæmdafréttir nr. 713
5. tbl. 29. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 713
5. tbl. 29. árg.
13
↑
Það eru ekki aðeins stórar framkvæmdir eins og á Hringvegi um
Kjalarnes sem skipta máli fyrir umferðaröryggið.
↑
Hraðahindrandi aðgerð á Hringvegi við innkomu í Hvolsvöll
að austan (sunnan).
Nokkur verkefni á hverju ári felast í því að auka öryggi
gangandi vegfarenda, s.s. þar sem þjóðvegur liggur
um þéttbýlisstaði á landsbyggðinni. Það er m.a.
gert með ýmsum hraðatakmarkandi aðgerðum, s.s.
útfærslu öruggari gönguþverana og uppsetningu
hraðaviðvörunarljósa. Í fyrra var ákveðið að fjármagna
kaup á rauðljósa- og hraðamyndavél sem nýlega hefur
verið sett upp við Hörgárbraut (Hringveg) á Akureyri en
Vegagerðin sér um rekstur hraðamyndavéla víða um
land í samstarfi við lögreglu og fleiri eftir því sem við á.
Öryggi nokkurra vegamóta verður aukið í ár.
Vegamót Eyrarbakkavegar og Þorlákshafnarvegar
verða endurbætt og einnig má nefna að gerðar verða
svonefndar hjáreinar við fimm tengingar við Hringveg
austan Akrafjalls en þær auka öryggi þeirra sem ætla
að beygja af aðalveginum inn á hliðarveginn þar eð
auðveldara verður að aka fram hjá ökutæki sem hefur
stöðvað og því minni hætta á að ekið verði aftan á.
Bættar merkingar geta einnig skipt miklu máli til
dæmis til að vekja athygli á vegamótum fram undan
eða til að undirstrika stefnubreytingu vegar með því að
setja upp beygjuörvar.
Hér á eftir er listi yfir þær umferðaröryggis-
aðgerðir Vegagerðarinnar í ár sem tengjast umferðar-
öryggisáætlun beint en svæði Vegagerðarinnar bera
hitann og þungann af undirbúningi og framkvæmd
umferðaröryggisaðgerðanna.
Lagfæringar á umhverfi vega og/eða uppsetning
vegriða:
→ Hringvegur nokkru vestan við Foss, uppsetning
vegriðs við óvarið ræsi neðan vegar.
→ Hringvegur vestan Víkur, lagfæringar á umhverfi
vegar sem felast í að draga úr bratta vegfláa.
→ Hringvegur út frá Ölfusárbrú, endurnýjun vegriðs
meðfram vegi, ármegin.
→ Hringvegur um Kollafjörð, endurnýjun vegriða.
→ Hringvegur við steinvegg í Kollafirði, uppsetning
vegriðs.
→ Skeiða- og Hrunamannavegur ofan Hlemmiskeiðs,
lenging ræsa og lagfæringar á fláa við ræsin.
→ Þjórsárdalsvegur milli vegamóta við Skeiða- og
Hrunamannaveg og Árness, ýmsar lagfæringar
á öryggissvæði.
→ Eyrarbakkavegur út frá Óseyrarbrú, endurnýjun
vegriðs meðfram vegi vestan brúar.
→ Biskupstungnabraut, ýmsar lagfæringar á
öryggissvæði, frh.
→ Þingvallavegur frá Vinaskógi (í grennd við
Kárastaði) að Grafningsvegi efri, ýmsar
lagfæringar á umhverfi vegar.
→ Þingvallavegur milli Grafningsvegar efri og
Kjósarskarðsvegar, ýmsar lagfæringar á
umhverfi vegar, annar áfangi.
→ Þingvallavegur í grennd við Seljabrekku, lagfæring
öryggissvæðis sem felst í því að fylla í skurð.
→ Laugarvatnsvegur ofan Laugarvatns, lenging
nokkurra ræsa og lagfæring fláa við ræsin.
→ Krýsuvíkurvegur við Kleifarvatn, uppsetning
vegriðs, frh.
→ Hvalfjarðarvegur við sunnanverðan Hvalfjörð,
lenging sex ræsa og fleiri lagfæringar á umhverfi
vegar.
→ Nesvegur í grennd við Grindavík, lagfæringar á
umhverfi vegar sem felast í að draga úr bratta
vegfláa.
→ Sandgerðisvegur við Miðnesheiðarveg, lagfæringar
á umhverfi vegar sem felast fyrst og fremst í
grjóthreinsun.
Helstu aðgerðir Vegagerðarinnar 2021
sem tengjast umferðaröryggisáætlun beint