Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.09.2021, Page 14

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.09.2021, Page 14
14 Framkvæmdafréttir nr. 713 5. tbl. 29. árg. Framkvæmdafréttir nr. 713 5. tbl. 29. árg. 15 → Hringvegur austan Akrafjalls, ýmsar lagfæringar á umhverfi vegar, fjórði áfangi. → Hringvegur undir Hafnarfjalli, ýmsar lagfæringar á umhverfi vegar, annar áfangi. → Hringvegur milli Hvítárvallavegar og Borgarfjarðarbrautar, ýmsar lagfæringar á umhverfi vegar, fjórði áfangi. → Akrafjallsvegur norðan Akrafjalls, ýmsar lagfæringar á umhverfi vegar, annar áfangi. → Snæfellsnesvegur milli Búlandshöfða og Grundarfjarðar, ýmsar lagfæringar á umhverfi vegar, frh. → Heydalsvegur um Haffjarðardalsgil, uppsetning vegriðs við stórt óvarið ræsi. → Vestfjarðavegur um Svínadal, uppsetning vegriðs, fyrsti áfangi. Verkefnið átti að hefjast árið 2020 en frestaðist. → Djúpvegur um Skötufjörð, uppsetning vegriðs, frh. → Djúpvegur í Hestfirði, lagfæringar á umhverfi vegar sem felast í endurmótun skeringar í þeim tilgangi að draga úr hættu á grjóthruni, frh. → Hringvegur í Hrútafirði, lagfæringar á umhverfi vegar, þriðji áfangi. Lagfæringar felast í lengingu ræsa og lagfæringum á fláa ofan vegar en uppsetningu vegriðs neðan vegar. → Hringvegur við Litlu-Giljá, lagfæringar á umhverfi vegar sem felast í að mýkja fláa á heimreið að Litlu-Giljá. → Hringvegur um Langadal og Vatnsskarð, frh. Lagfæring fláa og uppsetning vegriða, m.a. þar sem Svartá liggur nálægt vegi. → Hringvegur um Blönduhlíð. Lagfæringar á umhverfi vegar sem m.a. felast í að fylla í skurði. Verkefnið var á áætlun árið 2020 en frestaðist þar sem ekki náðist að ljúka samningum við landeigendur. → Hringvegur um Öxnadalsheiði, lenging vegriðs. → Hringvegur við Másvatn. Uppsetning vegriðs þar sem vegur liggur nálægt vatni. → Hringvegur við Laxá, uppsetning vegriðs. → Ólafsfjarðarvegur milli Hringvegar og Hauganesvegar, ýmsar lagfæringar á umhverfi vegar, fyrsti áfangi. Verkefnið var á áætlun 2020 og efni var keypt en framkvæmd frestaðist. → Ólafsfjarðarvegur milli Hauganesvegar og Dalvíkur, ýmsar lagfæringar á umhverfi vegar, annar áfangi. → Hvammavegur í Þingeyjarsveit, uppsetning vegriðs í krappri beygju. → Laxárdalsvegur við Laxárgljúfur, uppsetning vegriðs. → Hringvegur um Fagradal. Ýmsar lagfæringar á umhverfi vegar, frh. → Hringvegur við Tóftá í Stöðvarfirði, lenging ræsis ofan vegar og uppsetning vegriðs neðan vegar. → Hringvegur í Álftafirði, uppsetning vegriðs við tvö óvarin ræsi/steypta stokka. → Hringvegur við Hvalnes, uppsetning vegriðs, annar áfangi. → Hringvegur sunnan Háöldu í Öræfum, lagfæringar á umhverfi vegar sem felast í að bæta efni í vegfláa og draga þar með úr bratta hans. → Hringvegur um Skeiðarársand, lenging ræsa, frh. → Norðfjarðarvegur á Hólmahálsi, milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar, lenging vegriðs. → Lagarfossvegur við Lagarfoss, uppsetning vegriðs. Lagfæring vegamóta: → Hringvegur við Reynishverfisveg, gerð hægri beygju fleygs. → Skeiða- og Hrunamannavegur við Hrunaveg á Flúðum, útfærsla vegamóta lagfærð. → Eyrarbakkavegur við Þorlákshafnarveg, stefnugreining vegamóta. → Fljótshlíðarvegur við Lambalækjarveg, færsla Lambalækjarvegar til að auka öryggi vegamótanna. → Hringvegur austan Akrafjalls. Gerð hjáreina við fimm tengingar. ↓ Ræsi á Snæfellsnesvegi á sunnanverðu Snæfellsnesi sem þarf að lengja og/eða setja upp vegrið.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.