Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.09.2021, Side 17

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.09.2021, Side 17
16 Framkvæmdafréttir nr. 713 5. tbl. 29. árg. Framkvæmdafréttir nr. 713 5. tbl. 29. árg. 17 Gerð verður sérrein fyrir strætó með Hafnarfjarðarvegi að austanverðu frá Aktu Taktu norður fyrir gatnamótin við Vífilsstaðaveg. Verktakinn, PK Verk, hófst handa sumarið 2020 en það ár var lokið við framkvæmdir á Vífilsstaðavegi og byrjað á breytingum við vegamót Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar. Vorið 2021, eftir stutt vetrarhlé var haldið áfram við vegamótin og í byrjun sumars var umferð sett á hliðarveg framhjá undirgöngum. Umferð var síðan hleypt yfir göngin um miðjan ágúst. Undirgöngin undir Hafnarfjarðarveg á móts við íþróttasvæði Stjörnunnar er stærsta einstaka umferðaröryggisaðgerðin fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, í þessu verki. „Þessi undirgöng munu tengja saman gönguleið skólabarna og annarra gangandi og hjólandi í hverfunum sitt hvoru megin við Hafnarfjarðarveginn,“ segir Einar. Undirgöngin eru gerð úr forsteyptum einingum, heildarbreidd þeirra er 7,0 m og heildarlengd tæplega 34 m. „Öðru megin í undirgöngunum er gert ráð fyrir gangandi og hjólandi en hinumegin rennur Hraunholtslækur sem áður rann í gegnum rör undir veginn,“ segir Einar en líklegt er að undirgöngin verði tekin í gagnið í október eða nóvember á þessu ári. Göngin voru unnin í tveimur áföngum þannig að halda mætti umferð um Hafnarfjarðarveg á tveimur akreinum í hvora átt á framkvæmdartíma. Einar segir umferðina hafa gengið ágætlega en fremur hægt enda umferðarþunginn mikill á þessum stað. „Framhjáhlaupið var ágætlega útfært en umferðin var hæg í gegnum framkvæmdasvæðið bæði í fyrra og í ár.“ Hann segir verkið allt fremur flókið og sein unnið. „Við erum í fyrsta lagi að vinna í miklum umferðarþunga og ekki í boði að loka veginum á meðan framkvæmdir standa yfir. Hér er lítið pláss til að athafna sig og mikið af lögnum í jörðu,“ útskýrir Einar en verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Garðabæjar og veitufyrirtækja enda felst hluti af verkinu í að færa lagnir og leggja nýjar fyrir veitustofnanir á borð við Veitur ohf., Gagnaveitu Reykjavíkur, Mílu, HS Veitur, Vatnsveitu Garðabæjar og Fráveitu Garðabæjar. Samhliða öllu þessu verða gerðir nýir göngustígar sem tengja mannvirkin við núverandi stígakerfi. Einnig þarf að setja upp hljóðveggi með Hafnarfjarðarvegi milli Vífilsstaðavegar og Lyngáss. Hljóðveggirnir verða lengri en þeir eldri og hærri. Gert er ráð fyrir að verkinu öllu verði lokið haustið 2021. ↓ Teikning sem sýnir framkvæmdasvæðið. ← Hærri og lengri hljóðveggir voru reistir.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.