Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.09.2021, Qupperneq 17
16 Framkvæmdafréttir nr. 713
5. tbl. 29. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 713
5. tbl. 29. árg.
17
Gerð verður sérrein fyrir strætó með Hafnarfjarðarvegi
að austanverðu frá Aktu Taktu norður fyrir gatnamótin
við Vífilsstaðaveg.
Verktakinn, PK Verk, hófst handa sumarið 2020
en það ár var lokið við framkvæmdir á Vífilsstaðavegi
og byrjað á breytingum við vegamót Vífilsstaðavegar
og Hafnarfjarðarvegar. Vorið 2021, eftir stutt vetrarhlé
var haldið áfram við vegamótin og í byrjun sumars var
umferð sett á hliðarveg framhjá undirgöngum. Umferð
var síðan hleypt yfir göngin um miðjan ágúst.
Undirgöngin undir Hafnarfjarðarveg á móts
við íþróttasvæði Stjörnunnar er stærsta einstaka
umferðaröryggisaðgerðin fyrir gangandi og hjólandi
vegfarendur, í þessu verki. „Þessi undirgöng munu
tengja saman gönguleið skólabarna og annarra
gangandi og hjólandi í hverfunum sitt hvoru megin við
Hafnarfjarðarveginn,“ segir Einar. Undirgöngin eru gerð
úr forsteyptum einingum, heildarbreidd þeirra er 7,0 m
og heildarlengd tæplega 34 m.
„Öðru megin í undirgöngunum er gert ráð fyrir gangandi
og hjólandi en hinumegin rennur Hraunholtslækur sem
áður rann í gegnum rör undir veginn,“ segir Einar en
líklegt er að undirgöngin verði tekin í gagnið í október
eða nóvember á þessu ári.
Göngin voru unnin í tveimur áföngum þannig að
halda mætti umferð um Hafnarfjarðarveg á tveimur
akreinum í hvora átt á framkvæmdartíma. Einar
segir umferðina hafa gengið ágætlega en fremur
hægt enda umferðarþunginn mikill á þessum stað.
„Framhjáhlaupið var ágætlega útfært en umferðin var
hæg í gegnum framkvæmdasvæðið bæði í fyrra og í
ár.“ Hann segir verkið allt fremur flókið og sein unnið.
„Við erum í fyrsta lagi að vinna í miklum umferðarþunga
og ekki í boði að loka veginum á meðan framkvæmdir
standa yfir. Hér er lítið pláss til að athafna sig og
mikið af lögnum í jörðu,“ útskýrir Einar en verkið er
samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Garðabæjar og
veitufyrirtækja enda felst hluti af verkinu í að færa
lagnir og leggja nýjar fyrir veitustofnanir á borð við
Veitur ohf., Gagnaveitu Reykjavíkur, Mílu, HS Veitur,
Vatnsveitu Garðabæjar og Fráveitu Garðabæjar.
Samhliða öllu þessu verða gerðir nýir göngustígar
sem tengja mannvirkin við núverandi stígakerfi. Einnig
þarf að setja upp hljóðveggi með Hafnarfjarðarvegi
milli Vífilsstaðavegar og Lyngáss. Hljóðveggirnir verða
lengri en þeir eldri og hærri.
Gert er ráð fyrir að verkinu öllu verði lokið
haustið 2021.
↓
Teikning sem sýnir framkvæmdasvæðið.
←
Hærri og lengri hljóðveggir voru reistir.