Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.09.2021, Blaðsíða 18

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.09.2021, Blaðsíða 18
18 Framkvæmdafréttir nr. 713 5. tbl. 29. árg. Framkvæmdafréttir nr. 713 5. tbl. 29. árg. 19 355 365 37 35 Laugarvatn Lyngdalsheiði Apavatn Reykholt Brúin yfir Fullsæl← Reykjavegur hefur verið endurbættur og leysir af hólmi 5,5-6,5 m breiðan lítið uppbyggðan malarveg sem á voru krappar beygjur þar sem mörg umferðaróhöpp hafa orðið í gegnum tíðina, auk einbreiðrar brúar yfir ána Fullsæl sem byggð var árið 1962. Svanur G. Bjarnason, svæðisstjóri Suðursvæðis var verkefnisstjóri framkvæmdarinnar. Hann segir veginn langþráða samgöngubót. „Vegurinn gegnir þýðingarmiklu hlutverki í sameinuðu sveitarfélagi en stysta leiðin milli þéttbýliskjarna er um Reykjaveg, þ.e.a.s. milli Laugarvatns og Reykholts,“ segir hann. Einnig styttist leið að fjölförnum sumarhúsabyggðum á svæðinu. Vegurinn er um 8 km langur og liggur á milli Biskupstungnabrautar rétt neðan Reykholts og Laugarvatnsvegar ofan Brúarár. Leiðir styttast með endurbættum Reykjavegi Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitar- stjórnarráðherra, og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, opnuðu Reykjaveg formlega þann 2. september sl. Vegurinn er nú stysta leiðin á milli Laugarvatns og Reykholts. Framkvæmdir Á vegáætlun 2007-2010 var gert ráð fyrir fyrstu fjárveitingu til verksins á árinu 2010 sem þó dugði ekki fyrir allri framkvæmdinni. Af ýmsum orsökum var það ekki fyrr en í lok árs 2018 að hægt var að bjóða út framkvæmdir og hófust þær í ágúst 2019 og lauk nú tveimur árum síðar. Bisk up st un gn ab ra ut Að G ey si → Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra og Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar klippa saman á borða til að opna Reykjaveginn formlega.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.