Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.09.2021, Síða 21

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.09.2021, Síða 21
20 Framkvæmdafréttir nr. 713 5. tbl. 29. árg. Framkvæmdafréttir nr. 707 7. tbl. 28. árg. 21 ↑ Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, og Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG Verks, skrifuðu undir verksamning þann 9. ágúst síðastliðinn. „Um leið og ÞG Verk lýkur framkvæmdum við brúna yfir Jökulsá á Sólheimasandi verður búnaður og mannskapur á þeirra vegum fluttur austur. Undirbúningur fyrir það er í fullum gangi, ekki síst við að setja upp steypustöð, einnig er unnið að undirbúningi framleiðslu stálbita og steyptra eininga sem notað verður í brúna yfir Hverfisfljót. Samkvæmt verkáætlun á ÞG Verk að ljúka framkvæmdum við Hverfisfljót 15. júlí 2022 og framkvæmdum við Núpsvötn 15. nóvember 2022,“ segir Höskuldur. VSÓ hannaði brúna yfir Núpsvötn en hönnunardeild Vegagerðarinnar hannaði brúna yfir Hverfisfljót. Mannvit hefur eftirlit með framkvæmdinni. Um verkið: → Hverfisfljót: Byggð verður ný 74 m löng og tvíbreið brú yfir Hverfisfljót á Hringvegi (1) um 20 m neðan núverandi brúar. Brúin verður samverkandi stálbitabrú með steyptu gólfi í þremur höfum. Innifalin er vegagerð til að tengja nýja brú við núverandi vegakerfi. Nýr vegur og ný brú verða í nýju vegstæði á 1,1 km löngum kafla og endurbyggður vegur í núverandi vegstæði á 1,1 km löngum kafla. Nýir vegir verða því um 2,1 km. Einnig verður byggður nýr áningarstaður við Hverfisfljót í stað núverandi áningarstaðar sem hverfur undir nýjan veg. → Núpsvötn: Byggð verður ný 138 m löng tvíbreið brú yfir Núpsvötn á Hringvegi (1), ofan núverandi brúarstæðis, auk tengivega við núverandi vegakerfi beggja vegna. Brúin verður eftirspennt steinsteypt brú með steyptu gólfi í fimm höfum. Nýr vegur og ný brú verða í nýju vegarstæði á 1,9 km löngum kafla. → Byggður verður nýr áningarstaður vestan við Núpsvötn, þar sem er gott útsýni til Lómagnúps og einnig fjallahringsins til austurs. Gert er ráð fyrir stæðum fyrir rútu, húsbíla og 10 fólksbíla, þar af einu fyrir hreyfihamlaða. Nýr áfangastaður á að skapa öruggari aðstöðu fyrir vegfarendur til að njóta útsýnisins. Við þessa framkvæmd og með nýju brúnni á Sólheimasandi mun einbreiðum brúm á Hringveginum fækka úr 32 í 29. Ný veglína Þjóðvegur 1 (núverandi veglína) Núverandi brú Hverfisfljót Framkvæmdasvæði Núpsvötn Framkvæmdasvæði Lómagnúpur Blómstursvellir Bakkafjall Núpar Slétta Króksfjall N úp sv öt n Núp sv öt n Djúpá Hverfisfljót Hverfisfljót Brunná G íg ju kv ísl N úp sá Hverfisfljót Núverandi brú Núpsvötn Núverandi veglína/brú og ný veglína/brú Loftmyndir: Loftmyndir ehf. Ný brú Núpsá Núpsá

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.