Heimdallur - 30.12.1949, Blaðsíða 2

Heimdallur - 30.12.1949, Blaðsíða 2
18 II E I M D A L L U R S j álf stæðisf lokkurinn skorast ekki undan ábyrgð Þegar stjórnarmyndunartilraunir hófust, tjáði Sjálfstæðísflokkurinn sig aftur fúsan og hvatti til sam- starfs hinna þriggja borgaralegu flokka. Slíkt stjórnarsamstarf tókst ekki. Áður hafði forseti lýst því yfir, að hann mundi taka til sinna ráða, ef þinginu tækist ekki að mynda meirihlutastjórn fyrir nóvemberlok. Fól hann því Ólafi Thors myndun minnihlutastjórnai’ sem formanni stærsta þingflokksins og var ráðu- neyti hans skipað Sjálfstæðismönn- um eingöngu 6. des. s. 1. Með myndun þessarar mir.nihluta- stjórnar sýndi Sjálfstæðisflokkurinn enn sem fyrr, að hann skoraðist ekki undan ábyrgðinni og hinu vandasama ^g jafnvel vanþakkláta hlutverki, sem þeirra hlaut að bíða, sem tóku að sjer að halda um stjórnvölinn á slíkum tímum. Mundi þó ábyrgðar- laus flokkur hafa ef til vill sagt sem svo, að flokkurinn hefði beðið um meirihlutaaðstöðu í þinginu, en ekki fengið hana og því væri hann ekki skyldugur til að taka stjórnartaum- ana. í það minn^ta leit flokkur, sem hnekki beið við síðustu kosningar, Alþýðuflokkurinn, svo á, að honum bæri ekki skylda til að taka þátt í stjórn. Samspil Hermanns og kommúnista Þegar fórsætisráðherra tilkynnti skipun 'hinnar nýju stjórnar, sem átti ef til vill erfiðari verkefni fyrir höndum 6n nokkur önnur íslensk ríkisstjórn, hefði mátt ætla, að for- menn andstöðuflokkanna, óskuðu stjórninni heilla við úrlausn vanda- málanna, þótt þeir lýstu því jafn- framt yfir, að hún nyti ekki stuðn- ings eða hlutleysis viðkomandi flokka. En annað varð uppi á ten- ingunum. Sjerstaklega var það eftir- tektarvert, hve formenn Framsókn- arfloKksins og Kommúnistaflokksins ljeku á sömu strengi, ónot til forseta íslands fyrir að fela þeim ekki stjórn arforustuna og hálfgerðar bölbænir í garð nýju stjórnarinnar. | Vilja kjósendur Fram- sóknar samvinnu við kommúnista? Um ónotin til forsetans hjeldu menn, að kommúnistar nmndu verða einir, en Hermann Jónasson tók und ir. Hann og Einar Olgeirsson ljetu í það skína, að ef til vill mundu þeim Framsóknarmönnum og komm- únistum hafa tekist að skríða saman í eina sæng, ef þeir hefðu haft næg- an tíma. Er ekki úr vegi, að athygli kjósenda Framsóknarflokksins, m. a. bændanna, sje vakin á þessu^enda var Hermann Jónasson eini flokks- formaðurinn, sem ekki lýsti því hreinlega yfir, að hann eða flokkur hans gæti ekki og vildi ekki mynda stjórn með kommúnistum. Með þeirra hjálp taldi hann ef til vill von um, að persónulegir valdadraumar hans rættust. Hermann Jónasson virð ist ávallt hafa viljað setja það að skilyrði fyrir stjórnarstuðningi síns flokks, að hann sjálfur yrði forsætis- ráðherra. Hitt hefur svo varðað minnu eða engu, hver málefnin eða stjórnarflokkarnir yrðu. Hefur Her- manni farist í þessu töluvort öðru vísi og verr en formanni Sjálfstæðis- flokksins. Ólafur Thors lýsti því yfir þegar flokksstjórn hans var mynd- uð, að Sjálfstæðisflokkurinn teldi eftir sem áður meirihlutastjórn, sem byggðist á samstarfi hinna þriggja borgaralegu flokka æskilegasta og ef unnt væri að koma slíkri stjórn á, skipti það ekki máli, hvort hann eða einhver annar hefði stjórnarforust- una. Goðgá að fylgja góðum málum Raunar má hún merkileg heita, svo að ekki sje sterkara að orði kveðið, framkoma Framsóknarflokksins og málgagns hans, Tímans, og þá ekki síður framkoma kommúnista og Þjóðviljans. Bæði blöðin og Tíminn alveg sjerstaklega töldu það goðgá hina mestu, undirlægjuhátt við hina nýju ríkisstjórn og Sjálf«tæðisflokk- , inn, að Stefán Jóh. Sféfánsson hafði lýst því yfir, að Alþýðuflokkurinn mundi fylgja góðum málum, sem ríkisstjórnin bæri fram. Hvorki Tím- ann nje Þjóðviljann skipti það neinu máli, hvort málefnin væru góð eða vond. Fyrirfram voru þau á móti öll- um verkum stjórnarinnar. Leikur varla vafi á því, að sjaldan hefur verið komist lengra í pólitísku ábyrgðarleysi. Það var auðvitað hægt að vje- fengja hæfileika Alþýðuflokksins til að greina á millí góðs og ills eða draga í efa djörfung flokksins og getu til að fylgja góðum málum ó- trauður. Hvort tveggja þetta hefur Alþýðuflokkinn ekki ósjaldan skort. En yfirlýsinguna út af fyrir sig, að heita góðum málum stuðn- ingi. er ekki með neinni skynsemi’ hægt að gagnrýna. Leikaraskapur ■ Framsóknar Þegar ríkisstjórn Sjálfstæðis- manna tók við 6. des. s. 1. lýsti for- sætisráðherra bví yfir, að stjórnin mundi leggja tillögur sínar fyrir þing ið bráðlega og fara ef til vill fyrst troðnar brautir en koma síðar með tillögur, sem miðuðu að heildarlausn vandamálanna. Ekki var stjórnin búin að sitja tíu daga, þegar Her- mann Jónassön spurði, hvað liði til- lögum hennar, og þótt forsætisráð- herra g^fi honum skýr og góð svör, sem Hermann virtist sætta sig við, þá spyr Eysteinn Jónsson hins sama tveimur dögum síðar. Menn áttuðu sig ekki almennt, hvað svona leik- araskapur átti að þýða. Eins og for- sætisráðherra benti á, voru óskir út-

x

Heimdallur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimdallur
https://timarit.is/publication/1807

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.