Heimdallur - 30.12.1949, Blaðsíða 8
24
HEIMDALLUR
gera „tilraun til undankomu“, en
liðsforinginn var sendur til Rúss-
lands, þar sem hann skyldi „settur til
mcnnta“ að nýju. Annar liðsforingi,
sem var vitni að raunum kardinál-
ans var sendur til afskekktrar landa-
mærastöðvar við landamæri Júgó-
siaviuýcn um miðjan mars tókst hon-
um að fiýja land.
Ofraun mennskum manni.
Enginn, sem fylgdist með kardin-
áianum 10 fyrstu dagana í fangelsinu,
trúði því, að nokkur mennskur mað-
ur gæti þolað þær líkamlegu og sál-
arlégu þjáningar, sem Mindszenty
varð að þola.
Enginn maður hafði áður staðið
upprjettur við yfirheyrslur 84 klst.
samfleytt í „Andrássy ut 60“. Sum-
ir höfðu að vísu haldið út í 75 klst.,
en þá voru þeir líka nær dauða en
lífi í margar vikur á eftir. Sumir
höfðu dáið við yfirheyrslurnar ör-
magna af þreytu, en aðrir af hjarta-
slagi, sem orsakaðist af hinu örv-
andi ,.kaffi“.
I*i jú stig.
í málarekstrinum hjá leynilögregl-
unni eru þrjú stig. Á fyrsta stigi er
fanginn látinn „játa“. Á öðru stigi
er hann látinn vanda meir til ,.játn-
ingarinnar“ og skýra frá smáatriðum
og aðstæðum við glæpi sína. Þessu
stigi lýkur, þegar fanginn er orðinn
sannfærður um sekt sína og viðbrögð
hans sanna að svo sje. Á þriðja stig-
inú er hann búinn undir rjettarhöld-
in; honum er kennt að bera vitni
gegn sjálfum sjer og öðrum, sýna iðr-
un og meðtaka dóm sinn möglunar-
laust. Aðferðir þær, sem notaðar eru
á liinum ýmsu stigum, eru að vísu
dálitið mismunandi, en ruddaskapur
og ótti geta yfirbugað sjerhvern
mann með meðal sálarþrek. Þegar um
flókin mál er að ræða, er leitað á
náðir taugafræði, efnafræði og sál-
fræði. Mál Mindszentys hafði frá
upphafi verið flókið. Aðallæknirinn
við yfirheyrslurnar, sem hafði rúss-
neska menntun, hjelt fyrirlestra og
skýrði frá aðferðum lögreglunnar.
Kann sagði, að á fyrsta stigi, þegar
fórnardýrið hefur örmagnast líkam-
lega, sje nauðsynlegt að það örmagn-
ist hjerumbil andlega. Þessu er kom-
ið í kring með aðstoð tveggja Ivfja
Actedronc og Mescaline. Actedron
er framleitt syntetiskt, og smá-
skammtar af því örfa mjög alla lík-
amsstarfsemi fórnardýrsins og því
finnst sjer aukast kraftur, en sjeu
skammtarnir auknir valda þeir svima
slæmum höfuðverk, og menn geta
með engu móti hvílst. Mescaline
finnst í ákveðnuin tegundum kakt-
usa, og hefur það verið notað mjög
við sálfræðilegar rannsóknir.
Tilbúinn fyrir rjcttarliöldin.
G. T. Stockings bendir á mátt þessa
lyfs í tímaritinu Journal of Mental
Science og segir: „Mcscaline eitrun
er ekkert annað en Schizophrenia, cf
orðið er notað í bókstaflegri mei'k-
ingu um „klofinn persónuleika“. bví
að höfuðeinkenni hennar er alg'jör
upplausn (molun) persónuleikans,
nákvæmlega eins og menn finna hjá
s.júklingum með Schizophrenia“,
Actedron var notað við kardínál-
ann til þess að halda honum vakandi
og í taugaspenningi í langan tíma.
í „kaffínu“, sem honum var stöðugt
gefið, var actedron. Mescaline var
notað til þess að sjá um „eyðingu
persónuleikans“. Þegar þessi lyf hafa
molað persónuleikann, getur slyng-
ur sálíræðingur byggt hann upp
að nýju eins og honum þóknast
og sýnt heiminum algjörlega nýjan
mann.
Þetta var gert við Joseí Minszcnty
kardinála frá því að hann var hand-
tekinn og þar til rjettarhöldin hófust.
Hinn 21. janúar kom „nefndin“ sam-
an aftur. Gerson og Péter tilkynntu,
að kardinálinn væri „tilbúinn fyrir
rjettarhöldin.“
„Móðir þín mundi ekki
þekkja þig aftur.“
Einn nefndarmanna skýrði frá því,
að orðrómur væri á kreiki erlendis
um það, að kardinálinn væri undir
áhrifum eiturlyfja. Kotlev fullvissaði
menn þá um það, að enginn myndi
geta sjeð áhrif lvfjanna á honum í
rjettarsalnum nema ef til vill mjög
kunnugir menn, en slíkurn mönnum
yrði ekki leyfður aðgangur að rjett-
arsalnum.
Annar ráðherra Ijet í ljós efa sinn
á því að lyfin hefðu tilætluð áhrif.
en Kotlev svaraði honum með þess-
um óhugnanlegu orðum: „Þú mátt
trúa því, að ef þú einhverntíma
skyldir lqiuda í okkar hendur, mundir
þú sæta slíkri meðferð, að móðir þín
mundi ekki þekkja þig aftur“.
Lauslega þýtt úr
ReadeVs Digest.
>W V >W ^ >W
ER ÞETTA OF FJARRI OKKUR?
ÞEGAR sagt er frá ógnarstjórn
kommúnista fyrir austan járntjaldið,
þá er viðkvæði þeirra, að það, sem
þar gerist, sje svo fjarri okkur, að
það komi okkur ekki við hjer á
Islandi.
Á sínum tíma var okkur einnig
sagt, að atferli Hitlers og nasista
kæmi okkur ekki við. En það atferli
kom heimsstyrjöld af stað.
Nú eru kommúnistar all-öflugur
flokkur hjer á landi. Foringjar
þeirra munu, ef þeir næðu völdum
hjer, reyna að rjettlæta samskonar
meðferð á sínum andstæðingum lijer
og Mindzenty kardínáli varð fyrir
af völdum flokksbræðranna í Ung-
verjalandi,
Hjer eins og annars staðar gela
slíkar ,,kommúnistaaðferðir“ komið
niður á kirkjunnar þjónum. Þess er
því að vænta, að þjónar kirkjunn-
ar sjeu ekki kommúnistum hjer nyt-
samir sakleysingjar eða jafnvel auð-
sveip verkfæri.