Súgandi - 01.01.2014, Page 9
9
SÚGANDI 2014
Hverra manna ertu?
Faðir minn er Sturla Ólafsson frá
Suðureyri og móður mín er Pálína
Pálsdóttir frá Ísafirði.
Fjölskylduhagir?
Við Julie giftum okkur í nóvem-
ber á síðasta ári eftir að hafa búið
saman í 8 ár. Hún er hjúkrunakona
og vinnur á spítalanum í Wyong.
Við eigum 5 dætur á milli okkar.
Julie á 3 dætur frá fyrra hjóna-
bandi, Lauren fædd 1982, Aimiee
fædd 84, og svo Grace sem er
17 ára, en heldur að hún sé 25
ára. Svo á ég mínar litlu (sem
ekkert eru litlar lengur) Alísa og
Kirsti, sem eru báðar fæddar 1996
og munu útskrifast í september.
Á jólum og öðrum tímamótum
komum við öll saman ásamt
Rósemary sem er móðir hennar
Julie, og er þá hægt að segja
að maður sé vel í minnihluta, og
umkringdur fínu kvennaveldi.
Starf?
Er rútubílstjóri hjá Busways og
hef verið þar síðan árið 2010.
Áður starfaði ég í Sydney sem
verkstjóri hjá Linfox Transport í
nær 20 ár. Þar sáum við um að
flytja út allan bjórinn fyrir Fosters
Carlton United Breweries.
Hvar býrðu ?
Ég flutti frá Suðureyri til Sydney
í Ástralíu 1985. Er nú búsettur á
McDonagh road í Wyong NSW,
sem er á austurströndinni um 70
km norður af Sydney.
Áhugamál ?
Mótorhjól, ferðalög, silunga-
veiði, botsía og útivera í góðu
veðri með fjölskyldu og vinum.
Fallegustu staðirnir
í Súgandafirði?
Vatnadalur, Staðardalur og
Gölturinn.
Hvenær fórstu síðast til
Suðureyrar?
Ég kom síðast til Íslands árið
2012, og fórum við Julie með
Reyni (bróður) og Þórhildi keyrandi
vestur á Sæluhelgina, sem var
alveg frábært.
Uppáhaldsstaðurinn?
Í Vatnadal við fallegu fljótin, og
svo svæðið í kringum ána alveg
niður að ósnum.
Uppáhalds maturinn?
Sykursteiktur silungur. Léttreyktur
hamborgarahryggur og svið
með rófustöppu. Og af því sæta
er það kaneltertan (mömmu
style).
Uppáhaldstónlist?
Eagles, Bob Seger, og ekki
má gleyma Dansi gleðinnar
með meistaranum Vilhjálmi Vil-
hjálmssyni.
Uppáhaldsleikari/leikkona?
Sem krakki á Súganda fannst
mér Nonni Kitt alltaf svo fyndinn,
hvort sem var á sviði eða hinum
megin við búðarborðið í Suður-
veri. Svo var það Bessi Bjarna-
son á unglingsárunum. Af
erlendum eru skemmtilegastir
báðir nonnarnir, John Cleese og
John Cendy. Og leikararnir eru
Robert De Niro og Liam Nee-
son.
Viltu deila með okkur góðri
minningu frá Suðureyri?
Það eru svo margar góðar
minningar, hvar á maður að
byrja? Mér er efst í huga lífið
við bryggjurnar á sumrin. Þar
gátum við strákarnir verið allan
daginn að veiða, og stundum
steiktum við kola á frystipönnu
yfir eldi í fjörunni. Svo sátum
við oft og horfðum á trillurnar
koma inn fjörðinn, sumar svo
drekkhlaðnar að lítið sást í þær.
Eitt kvöldið eftir að Valdi hafði
landað lagði hann Valdísinni við
hliðina á bryggjunni þar sem við
vorum að veiða, og sagðist ætla
að skreppa heim. Hann var bara
rétt farinn þegar við sáum kex-
pakka á hillunni í stýrishúsinu.
Við byrjuðum að klifra niður og
það var langt að fara enda lág-
flæði. Við vorum rétt komin um
borð þegar við heyrðum í Valda
kalla, ”Hvurn djöfulinn eru þið
að gera þarna” og byrjar hann
þá að hlaupa niður eftir. Það var
ekkert með það, við slógum öll
heimsmet við að spóla okkur
upp á bryggjuna og inn á Eyrar-
götuna. Við vorum sammála um
það eftir á að ef Valdi hefði ekki
verið í klofstígvélunum, hefðum
við ekki sloppið svo léttilega.
Á skothólnum
Ólafur Þór Sturluson