Röst - 01.02.1944, Side 7

Röst - 01.02.1944, Side 7
RÖST 7 Stcingrímur Benediktsson, kennari: BAR N ALEIK VOLLUR þegar Stakagerðistúnið var tekið til núver- andi afnota, lét barnaverndarnefnd gera upp- drátt af vellinum og voru á hann markaðnr girðingar, skýli og þau leiktæki, sem nauðsyn- legusí þóttu. En vegna mikilla fjárhagsörðug- leika bæjarins var mjög lítið framkvæmt af því, sem til var ætlast. Gjörbreyting hefir sem betur fer, orðið á fjárhagsafkomu bæj- arfélagsins, en á barnaleikvellinum hefir á- þreifanlega sannast hið fornkveðna, að “lengi býr að fyrstu gerð,“ og nú er eins og allir hafi fallist á, að einmitt svona eigi ba.rnaleik- 'vellir að vera. því fer þó ákaflega fjarri að svo sé. Barnaleikvöllurinn á að verða sterkur og góður þáttur í uppel'di barnanna okkar, en það verður hann því aðeins, að honum' sé mikili sómi sýndur. Ctbúnaður vallarins o§ eftirlit hans eru þau meginatriði, sem ég tel mc-síú skipta, og vil ég nú ræða þau nokkru nánar: 1. Útbúnaður vallarins er svo lélegur, að ef hugsuharleysi veldur ekki mestu þar um,- mætti halda, að börnin væru ekki sérstaklega mikils inetin af okkur. Giiðiug vallarins þarí, að minnsta kosti að austan og norðan, að vera svo há og held að hún veiti nokkurt skjól. Skýli er nauð- Hin andlega fátækt, þekkingarleysið, er ein- mitt það, sem þjóð okkar er lífsnauðsvn að kveðið verði niður. Áuðæfin, sem nú ber- ast svo ört að, væru tii einskis betur notuð, en einmitt þess að leysa hin stóru verkefni, Æem fyrir liggja í skólamálum og sem svo lengi hafa beðið. Ef íslen/ka þjóðin fær að bergja á brunn- um menntanna, þarf hún engu að kvíða um framtíð sína. synlegt að hafa á vellinum til þess að börn- ir. geti leitað sér afdreps fyrir regnskúrum. Leiktækjum vallarins þarf að fjölga og þó sérstaklega að auka fjölbreytni þeirra til mik- illa muna, og ég held, að sú endurbót þyrfti ekki að verða mjög kostnaðarsöm. Væri t. d. ekki vel til fallið að setja eitf- hvað af þeim bátum, sem hingað og þangað fúna niður, á barnaleikvöllinn? þar ætti að gefa drengjunum sjálfum kost á að bæta göt- in og mála skipin, sem þeir fengju síðan að stjórna. Ég held að þarna gæti verið þarfur og skemmtilegur “sjómannaskóli,“ ef vel væri á haldið. Og mætti svo ekki á sama hátt gera stýris- húsin vel nothæf fyrir “bæjarleiki“ og “búð- arleiki“ barnanna. Væri ekki gaman að hafa slíka húsaröð t. d. meðfram suðurgirðing— ingunni? Húsin mætti leigja til ákveðins tíma og með ákveðnum skilyrðum. Lóð gæti fylgt, sem börnin girtu sjálf með tréhælum og snæru’m, og ótal mörg verkefni mundu skapast bæði utan húss og innan. Skreytingu vallarins með blómum og öðr- ur gróðri gætu börnin líka annast með að- stoð góðra manna. Eftirlit vallarins hefir verið eins gott og frekast var hægt að vænta, því að ég held, að allir eftirlltsmennirnir hafi gert sitt ýtrastæ tii að leysa verkið vel af hendi, þrátt fyrir lít- il laun og slæma aðstöðu á allan hátt. það þarí þó að verða mikm betra í frarn— tíðinni. það er e.dd nóg, að eftirlitsmaðurinnj sé einskonar lögregla, sem skakkar léikinn, ef börnin t erða ósátt, 'eða úthlufar leiktækjurnl eftir því, sem þörf og kringumstæður leyfa. Eftirlitsmaðurinn þarf fyrst og fremst að vera leiðbeinandi barnanna í starfi og leikjuin, enda munu eftirlitsmenn barnaleikvalla ann- arsstaðar vera valdir ineð sérstöku tilliti til þessa. K. Q.

x

Röst

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Röst
https://timarit.is/publication/1805

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.