Röst - 01.02.1944, Blaðsíða 14

Röst - 01.02.1944, Blaðsíða 14
14 R ó 5 T Fridbiörn Benónísson, kennari: ÖRVHENT bCSrn. Niðurlag. Til samau.burðar og hliðsjónar verða nú raktar i örstuttu máli helztu niðurstöður Wat- ■sions í þessu eini. pær byggjast á rannsóknum hans á börn- um á fyrsta þriðjungi fyrsta æfiárs þeirra. Að hans áliti er hér ekki um meðfædda hneigð að ræða, heldur venju, sem mynd- ast mjög snemma. Börn á þeim aldri beita jafnt fyrir sig hvorri hendinni sem er. I þessu tilliíi er hann því að sumu leyti á öndverð- um meiði við Burt, þó að úrræði þeirra verði, í mörgum atriðum, þau sömu. En áð- ur en að því er vikið, skal nú athugað, með hverjum hætti slíkar venjur geta mvndazt þá er gott að htía í hug'a þá vitneskju, að hægri hlið iíkamans stjórnast frá \ instri hlið heilans og vinstri hlið líitamans frá hægrí hlið heilans. Samtímis því, sem barnið venst á að beita meira annarri hendi og í tengsíum við það, öðlast það aðrar venjur, t. d. varð- andi talfæri. Watson sagir, að barn, sem elzt upp örfhent, þar til er það hefir öðlazt mikinri málþroska, en er síðar látið taka upp hægri handar venjur, sé með því í mörgu til- liti færí niður á stig smábarnsins, þar sem það sé svift margra ára þjálfun, kannske allt frá fyrstu bernsku. Að sumu leyti stafar hægri handar venja af beir.um f\rirskipunum frá samféiagsins hálfu. haitu á steiðinni í hægri hendi, segjum við o. s. frv. Sé að staðaldri haldið á ungbarni á vinstri handlegg, verður hægri hönd þess teppt, en sú vinstri frjáls, ef til einhverí þarf að taka, sem barnið sér umhverfis sig. Hugs- arilegt er að nokkurra áhrifa geti gætt frá örfhentum leiksystkinum, barnfóstru, foreldr-, tim eða öðru venzlafólki. þá eru dæmi um það, að kennari getur síuðlað að röngum venjum barna í þessu efni, t. d. ef hann gætir þess ekki, að þegar hann stendur and- spænis barnahópi, veit hægri hönd hans og vinstri hönd barna til sömu áttar. Að líkind- um mun það þó einkum snerta seinþroska börn, eða vangefin, meðal mjög ungra nem- enda. þá er aftur komið að spurningunni: Eiga örfhent börn að halda áfram að vera það, eða ekki? Já og nei. Eins og áður er sagt er það bagalegt fyrir börn og fullorðna að vera örfhent. Aftur á móti er oft ekki áhættu Iaust að framkvæma skiptin og ekki síður hæpinn árangur, þar sem barnið er sviff með því margra ára þjálfun. Burt vitnar til orða Spearmans: “Börn, sem eru örfhent, eiga að halda áfram að vera það að minnsta kosti að því er skrift sr.ertir.“ Aftur á móti falla álit þeirra Burts og Wat sons saman um þetta. Ef breytingin er gerð meðan börnin eru nógu ung, eða áður en þau öðlast verulegan málþroska, og sé hyggdeg- um ráðum beitt, er hún áhættulaus. Ákveðnar markalínur verða þó varla dregnar. Burt nefn- ir fimm meginatriði til athugunar við slíka á- kvörðun: 1. Hinn meðfædda styrk hneigðarinnar. 2. Aldur og festu vinstri handar venju. 3. Leikni, eða skort á leikni hægri handar. 4. Vinstri handar hneigð, með tilliti til fram- tíðar barnsins. 5. Skiptin og þá hugsanlegu áhættu, sem þau kunna að hafa fyrir persónuleika og skapgerð barnsins. Burt leggur til, að ef horfið er að því ráði, að láta barn skipta um hönd, þá sé aðferð- um hagað á þá leið að barnið viti sdm minnst um skiptin, að það hafi sem minnst tækifreri til þess að þjálfa vinstri hönd fram yfir þá hægri bg að það sé sem mest með af fús- um vilja. Foreldrar, sem verða þess varir, að barn þeirra hefir ríka tilhneigingu til að beita

x

Röst

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Röst
https://timarit.is/publication/1805

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.