Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1986, Blaðsíða 247
53. gr.
Oddviti stjórnar umræðum á fundum sveitarstjórnar. Hann sér um að fundargerðir séu
skipulega færðar í gerðabók sveitarstjórnar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og
nákvæmlega bókaöar.
Rétt er sveitarstjórn að ráða sér fundarritara.
Allir fulltrúar, sem mættir cru, skulu undirrita fundargerðir sveitarstjórnar nema
sveitarstjórn ákveði annað í einstökum tilvikum.
54. gr.
Heimilt er sveitarstjórn að efna til almennrar atkvæðagreiöslu um einstök mál og að
boða til almennra borgarafunda um málefni sveitarfélagsins.
í sveitarfélagi mcð færri en 500 íbúa er skylt að halda almennan svcitarfund el 'A hluti
atkvæðisbærra manna í sveitarfélaginu óskar þess.
Til almenns borgarafundar cða sveitarfundar skal boðað mcð opinberri auglýsingu og
skal þar taka fram hverjir hafi atkvæðisrétt á fundinum ef ætlunin er að atkvæðagreiðsla fari
þar fram.
Ályktanir slíkra funda eru ekki bindandi fyrir sveitarstjórn.
Sveitarstjórn getur efnt til almennrar atkvæðagreiðslu í sveitarfélagi eða hluta þess til
þess að kanna vilja kosningabærra íbúa um tiltekið málefni. Niðurstaða atkvæöagreiðslunn-
ar er ekki bindandi um afgreiðslu málsins fyrir sveítarstjórn nema hún hafi fyrir fram
ákveðið að svo skuli vera.
VI. KAFLI
Nefndir, ráð og stjórnir.
55. gr.
Sveitarstjórn cr heimilt aö ákveða í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins að kosið skuli
byggðarráð úr hópi aðalfulltrúa í sveitarstjórninni. í bæjum og kaupstöðum nefnist
byggðarráðið bæjarráð, í hreppum hreppsráð og í Reykjavík nefnist það borgarráð.
Byggðarráð skal kjörið til eins árs í senn nema annað sé ákveðið í samþykkt um stjórn
sveitarféiagsins.
í sveitarstjórnum, sem skipaðar eru þremur cða fimm aðalfulltrúum, verður þó cigi
kosið sérstakt byggðarráð.
í sveitarstjórnum, sem skipaðar eru sjö fulltrúum, skal byggðarráð skipað þremur
aðalfulltrúum en fimrn eða sjö aðalfulltrúum þar sem ellefu eða flciri fulltrúar eru í
sveitarstjórn. Jafnmargir varamenn skulu kosnir.
Sveitarstjórn, sem kjörin er bundinni hlutfallskosningu, getur heimilað framboðsaðila,
sem fulltrúa á í sveitarstjórn en eigi nær kjöri í byggðarráð, að tilnefna fulltrúa til að sitja
fundi ráðsins með málfrelsi og tillögurétti. Skal heinrila framboðsaðila, sem fulltrúa á í
sveitarstjórn en eigi í byggðarráði, slíkan rétt þann tíma sem sveitarstjórn fellir niður fundi
sína vegna sumarleyfa.
Framkvæmdastjóri svcitarfélags situr fundi byggðarráðs mcð málfrelsi og tillögurétti en
atkvæðisrétt hefur hann því aöeins að hann sé kjörinn fulltrúi í sveilarstjórn og kosinn í
byggðarráðið.
56. gr.
Byggðarráð fer ásamt framkvæmdastjóra sveitarfélags meö framkvæmdastjórn þess og
fjármálastjórn, að því leyti sem þessi mál eru ekki öðrum falin. I*aö hel'ur umsjón meö
stjórnsýslu sveitarfélagsins almennt og fjárstjórn þess sérstaklega, undirbýr fjárhagsáætlanir
og sér um að reikningar sveitarfélagsins séu samdir reglum samkvæmt.