KFS-blaðið - 01.11.1941, Side 7

KFS-blaðið - 01.11.1941, Side 7
KAUPFÉLAGSBLAÐIÐ haft allríflegan beinan hagnað af viðskipt- um sínum við félagið, auk hins óbeina hagnaðar, er hann og hundruð annara njóta með baráttu kaupfélaganna fyrir því að halda niðri vöruverði, og skapa sann- virði vörunnar, hvert á sínum stað. Fyrirspurn. Á framhalds-aðalfundi K. F. S. gat einn fundarmaður þess, að honum hefði einu sinni verið neitað um úttekt út á vöru- ávísanahefti í matvörudeild félagsins. Þar sem mér finnst þetta einkennilegt fyrirbrigði iangar mig að biðja blaðið að segja mér hvernig á þessu stendur. Fundarmaður. Framkvæmdastj. svarar þessu þannig: Mjólkursamlag KEA hafði efnt til svo- kallaðrar ostaviku, til þess að gefa bæjar- búum kost á ódýrum ostum og jafnframt til þess að auglýsa framleiðslu sína. Voru ostarnir seldir í umboðssölu, og var út- söluverð það sama og heildsöluverð. Verzl- anir þær, er sáu um söluna, fengu lítils háttar þóknun í sölulaun. Þess má geta, að Kaupfélag Síglfirðinga gaf þá 5 prc. afsl. i matvörudeild gegn peningagreiðslu og gilti það jafnt um ávísanahefti, sem greidd voru strax eða innan eins mánaðar tíma, samkvæmt útlánareglum félagsins, Þegar nú þessi félagsmaður, sem fund- armaður talar um í fyrirspurn sinni, kom inn í matvörudeild kaupfélagsins einhvern dag ostavikunnar og vill fá keyptan ost út á vöruávísanahefti sitt, fær hann það svar hjá búðarmanninum, að því miður sé það ekki hægt, vegna þess að ostarnir séu eingöngu seldir gegn peningagreiðslu, en hann sé þegar búinn að fá 5 prc. af- slátt af heftinu og auk þess sé það ágóða- skylt við úthlutun tekjuafgangs, en ostarn- ir séu seldir með heildsöluverði. Þessa skýringu búðarmannsins vill félagsmaður ekki skílja og bregzt reiður við, kvaðst engan ost mundi kaupa, ef hann fengi hann ekki greiddan með ávísanahefti og þegar þess var enginn kostur, hendir hann vöruávísanaheftinu í búðarmanninn og rýkur á dyr með þeim ummælum, sem eigi verða hér endursögð. Deildarskiptingin. Félagsstjórnin og framkvæmdastjórnin eru nú að undirbúa deildarskiptingu inn- an félagsins, eins og samþykkt var á síð- asta aðalfundi. Mega félagsmenn vænta þess að stofnfundir deildanna verði haldnir nú einhvern næstu daga. Deildarskipting innan félagsins er mjög heppileg bæði fyrir félagið, sem slíkt, en ekki sízt fyrir félagsmenn sjálfa. Félagsmenn hafa vafa- laust mun betra tækifæri til að kynnast og tileinka sér til hlýtar meginatriði sam- vinnustefnunnar og gefast auk þess betri og fleiri tækifæri, til að fylgjast með öll- um framkvæmdum félagsins og taka virk- an þátt í þeim. Hver deild hefir sína deildarstjórn og sina fulltrúa. Deildarstjórn- ir og fulltrúar eru trúnaðarmenn hins mikla félagafjölda og fulltrúar hans á hin- um ýmsu vettvöngum hinnar samvinnu- legu hagsmunabaráttu. Til þess að þeir séu færir um það, þurfa þeir að vera þroskaðír samvinnumenn, sem gerla vita skil á viðhorfum samvinnumannsins til þeirra mála, sem fyrir kunna að koma. En það er tæpast nóg, að þessir menn séu góðir samvinnumenn. Sérhver félags- maður verður að vera það líka til þess, að hann geti valið fulltrúa hagsmuna sinna af þekkingu og dæmt um störf þeirra út frá réttum forsendum. Það er því brýn nauðsyn þess, að sérhver þátttakandi í neytendahreyfingunni afli sér sem beztrar samvinnuþekkingar og starfa i samræmi við hana. r Bréfskóli S. í. S. Samband ísl. samvinnufélaga stofnaði á 7

x

KFS-blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: KFS-blaðið
https://timarit.is/publication/1830

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.