KFS-blaðið - 01.11.1941, Side 8
KAUPFÉLAGSBLAÐIÐ------------------------
s.l. ári bréfaskóla, og hefir þátttakan verið
með ágætum eins og vænta mátti. Slíkir
skólar hafa verið starfræktir viða erlendis
og gefist fádæma vel.
Námsgreinir bréfaskólans eru:
Skipulag og starfshættir
samvinnufélaga
íslenzk réttritun
Enska
Bókfærsla
Búreikningar
Fundarstjórn og fundareglur.
Kaupfélagið gefur allar frekari upplýs-
ingar og innritar nemendur í skólann.
Baldvin Þ. Kristjánsson
hefir nýlega verið ráðinn Kaupfélags-
stjóri við Kaupfélag Steingrímsfjarðar á
Hólmavík. Baldvin er ungur maður, fædd-
ur að Stað, Aðalvík 9. apríl 1910. Hann
stundaði nám við Héraðsskólann á Núpi í
Dýrafirði veturinn 1927 og ’28.
Auk þess var hann tvo vetur við nám í
Samvinnuskólanum. Baldvin sigldi til
Svíþjóðar haustið 1937, að tilhlutan Sam-
bands ísl. samvinnufélaga, í boðí sænska
samvinnusambandsins, og var' um veturinn
á samvinnulýðháskóla þar.
Baldvin var um skeið starfsmaður Sam-
vinnufélags ísafirðinga á ísafirði, en hefir
nú um nokkur ár verið skrifstofustjóri
Síldarútvegsnefndar hér á staðnum.
Hann var kosinn i stjórn KFS 1940.
Þó Baldvin Þ. Kristjánsson hafi að vísu
lengst af unnið utan samvinnufélaganna,
þá er hann prýðilega menntaður samvinnu-
maður, og hefir ávallt haft mikinn áhuga
á þeim málum, og löngun til þess að
starfa fyrir þau. Getum vér glaðst yfir,
að Baldvin hefur nú fengið verðugt starf
innan samvinnuhreyfingarinnar og væntum
við þess að gæfa og gengi fylgi honum
í starfinu.
8
Fiskilínur, enskar
Öngultaumar
Önglar
Línubelgir
Blýsökkur
Sveiflur
Kneifar
Kaðall
KAUPFÉLAGIÐ
Byggingavörudeild.
Auglýsing.
í vörzum lögreglunnar eru
ýmsir óskilamunir, svo sem
sparksleðar, lindarpennar,
kvenur, peningabuddur,
lyklar, reiðhjól o.m.fl.
Komi ekki eigendur
að munum þessum, verða
þeir bráðlega seldir á.
opinberu uppboði.
Lögreglan.
Baldvin fer héðan alfarinn til að taka
við hinu nýja starfi nú bráðlega, og óskar
blaðið honum og fjölskyldu hans góðrar
ferðar, með þakklæti fyrir störf hans í þágu
samvinnusamtakanna i bænum.