Heilbrigt líf - 01.12.1943, Page 103
sýnir. að þeim sjúklingum fer allmjög fækkandi, sem sýkj-
ast af lekanda (gonorrhoea). Hins vegar er sárasnttvn
(syfilís) að færast í aukana. Þi'iðja kynsjúkdómsins, lin-
sseris (ulcus molle). gætir varla.
Sjúklingafjöldinn fyrirfarandi 10 ár er á þessa leið:
1931 1932 1933 1934 1935 1930 1937 1938 1939 1940
Lekandi . . 400 372 482 576 665 632 597 648 492 402
Syfilis .... 21 50 37 30 35 16 8 6 14 67
Það þarf ekki að fara í neinar grafgötur um, hvernig
stendur á fækkun lekandasjúklinga síðari árin, því að hin
nýju lyf, sem vísindamenn hafa fundið við þessum s.júk-
dómi, hafa gerbreytt háttum hans. Þau eru hin sömu,
eða af svipuðu tagi, sem nú er farið að nota með miklum
árangri við bráða lungnabólgu. Hannes Guðmundsson,
eini sérfræðingurinn hér á landi í kynsjúkdómum, getur
þess, að lekandi standi oft allt að því helmingi skemur yfir
en áður. En auk þess eru varasamir og langæir fylgi-
kvillar sjaldgæfari, t. d. bólga í liðamótum, eistnabólga, eða
þroti í pípum milli egg.jakerfa og burðarlegsins. Líka
er úr.sögunni hin háskalega þrenging í þvagrás karla,
sem einatt varð afleiðing af því að dæla í hana sterkum
lyfjablöndum. Máttu margir þola miklar raunir af þeim
sökum og annari kröm af völdum kynsjúkdóma, enda
kvað skáldið: „Þess bera menn sár, um ævilöng ár...“ etc.
Fækkun sjúklinga má auðvitað rekja til þess, að lekand-
inn stendur skemur yfir en áður og eins af því, að fylgi-
kvillar eru nú miklu fátíðari. En þeir höfðu í för með
sér mikla og langvinna smitunarhættu.
Það er ósjaldan talað með nokkurri fyrirlitningu um
lyfjanotkun. í einu af Reykjavíkurblöðunum var nýlega
rituð grein um oftrúna á „meðalaþambið“. Og ósjaldan
heyrast þau hreystiyrði, að menn „trúi ekki á meðul“. En
árangurinn af meðalalækningum á kyns.júkdómum færir
Heilbrigt líf
215