Mosfellingur - 09.03.2023, Blaðsíða 8

Mosfellingur - 09.03.2023, Blaðsíða 8
Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fram undan í starfinu Skrifstofa félagsstarfsins er opin alla virka daga kl. 13–16. Sími félags- starfsins er 586-8014. Forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda- og félagsmálafræðingur, s: 698-0090. Skrifstofa FaMos á Eirhömrum er opin alla fimmtudaga frá kl. 15–16. Félag aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni famos@famos.is www.famos.is - Fréttir úr bæjarlífinu8 Yoga námskeið fyrir 60 + Yoga námskeið er fyrirhugað frá 14. mars í 4 vikur ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið verður á þriðjudögum kl. 14:00 hjá félagsstarfi Mosfellsbæjar Hlaðhömrum 2 í íþróttasal. Nánari upplýsingar í síma: 8457490. Opið hús/menningarkvöld. Jógvan í Hlégarði Opið hús/ menningar- kvöld verður mánudaginn 13. mars 2023. Í Hlégarði, klukkan 20:00. Sveitungi okkar, Jógvan Hansen, mun skemmta okkur með söng og sögum eins og honum er einum lagið. Kaffinefndin verður svo með sitt rómaða kaffihlaðborð að venju. Aðgangseyrir er kr. 1.500 (posi er ekki á staðnum). Með kveðju Menningar- og skemmtinefnd FaMos. Ferðalög framundan Ný ferðanefnd FAMOS hefur tekið til starfa og er fyrirhuguð dagsferð innanlands snemma í júní og ferð til útlanda snemma í september en báðar þessar ferðir verða kynntar fyrir lok mars. Tiffanys glervinnsla/Mósaík 5 vikna námskeið byrjar 20. mars. Um er að ræða alls 5 skipti 20. og 29. mars, 3., 12. og 26. apríl. Verð er 10.000 kr. Kennt er frá kl. 11:30-15:00. Leiðbein- andi er Guðbjörg Stefánsdóttir. Öll áhöld og efni verða á staðnum. Höfum það gaman saman í vetur og sköpum fallega hluti saman. Þeir sem hafa áhuga á að vera með endilega hafið samband við okkur áður í félags- starfið í síma 586-8014 virka daga milli 13-16 eða á elvab@mos.is Félagsvist Félagsvist er spiluð alla föstudaga kl. 13:00 hjá okkur í borð- sal Eirhamra Hlaðhömrum 2. Allir velkomnir. Aðgangur er ókeypis en auðvitað er alltaf frír kaffisopi og vinningur ef heppnin er með þér. Útsaumur og postulín Minnum á frábæru hópana okkar, postul- ínshópur kemur saman og málar á postulín þriðjudaga og fimmtudaga til skiptis kl. 11:30 og einnig útsaums- hópur sem hittist alla miðvikudaga kl 12:30. Allir velkomnir að vera með. gaman Saman SÖNgUr Hlaðhömrum kl. 13:30, næstu skipti eru 16. mars og 30. mars og alltaf annan hvern fimmtudag í vetur. STJórN FaMOS Jónas Sigurðsson formaður s. 666 1040 jonass@islandia.is Jóhanna B. Magnúsdóttir varaformaður s. 899 0378 hanna@smart.is Kristbjörg Steingrímsdóttir ritari s. 898 3947 krist2910@gmail.com Þorsteinn Birgisson gjaldkeri s. 898 8578 thorsteinn.birgis@gmail.com guðrún K. Hafsteinsdóttir meðstjórnandi s. 892 9112 gunnasjana@simnet.is Áshildur Þorsteinsdóttir varamaður s. 896 7518 asath52@gmail.com Hlaupið til góðs - 6 tíma maraþon Laugardaginn 18. mars verður hlaupið til góðs fyrir Píeta samtökin á hlaupabrautinni að Varmá. Farnir verða 7 km á hverjum klukkutíma milli 9 og 15 og hvíld tekin þar til nýr klukkutími hefst, eða samtals 42 km á 6 klukkutímum. Allir geta tekið þátt á sínum forsendum með fjölskyldu eða vinum en hægt verður að hlaupa eða labba einn hring, hlaupa allan tímann og allt þar á milli. Hægt verður að styrkja Píeta samtökin með því að kaupa aðgang að hlaupinu á 2.500 kr. fyrir hvern klukkutíma sem þú vilt taka þátt og fer miðasala fram á Tix.is. Aðalmarkmið hlaupsins er að vekja athygli á Píeta samtökunum og má því mæta án þess að kaupa miða. Píeta samtökin eru góðgerðasamtök sem sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum, sjálfsskaða og styðja við aðstandendur. „Með hlaupinu viljum við leggja okkar af mörkum til að vekja athygli á Píeta samtök- unum og vonandi safna einhverjum peningum fyrir samtökin í leiðinni, enda eru þau algerlega rekin fyrir söfnunarfé og styrki,“ segir Börkur Reykjalín skipuleggjandi. Tilraunaverkefni í sex mánuði • Minni matarsóun • Hægt að deila mat með öðrum frískápur nú aðgengilegur í mosfellsbæ allan sólarhringinn Komið hefur verið upp frískáp í Mosfellsbæ þar sem bæjarbúar geta skipst á mat. Góð leið til til að sporna við matarsóun, bæði hægt að deila mat og bjarga mat. „Ég var búin að sjá svona útfærslu í Reykjavík og hef lengi verið hugsa um hvernig við gætum komið upp slíkum skáp hér í Mosó,“ segir Gerður Pálsdóttir. „Mér áskotnaðist ísskápur og gat ekki hugsað mér að henda honum. Mér var þá bent á hann Marco sem vinnur hjá Mosfellsbæ og hefur einmitt komið á laggirnar svona verkefni í Reykjavík. Hann tók dáldið við keflinu og hefur leitt þetta áfram.“ Treysta á náungakærleika í verki „Það er t.d. tilvalið að setja hér inn afganga eftir veislu eða frá fyrirtækjum, það getur hjálpað öðrum. Við munum svo skiptast á að hafa eftirlit með skápnum og treystum á náungakærleikann,“ segir Marco Pizzolato. Góðir vinir komu að því að byggja í kringum skápinn svo hann ætti að geta staðið úti allan ársins hring. Þá hefur Mosfellsbær aðstoðað við staðsetningu og fleira. Sérstakar þakkir fær Byko fyrir byggingarefnið, Krzystof Pakosz og Ania Szymkowiak fyrir uppsetninguna og Birgir Grímsson og Guðmundur Sverrisson fyrir hjálp og flutninga. Frískápurinn er tilraunaverkefni til næstu sex mánaða og verður spennandi að sjá hvernig Mosfellingar taka þessari nýjung. Hægt er að fylgjast með stöðunni á frískápnum á Facebook. Skápurinn er staðsettur fyrir neðan Kjarna þar sem Bónus var áður til húsa og var með vöruafgreiðslu. Frískápur er deiliskápur sem hefur það að markmiði að minnka matarsóun með því að deila neyslu- hæfum mat milli fólks. Öllum er frjálst að setja og taka úr skápnum hvenær sem þeim hentar og nýta þar með matvæli sem annars yrði hent. frískápur í Mosfellsbæ gerður og marco við frískápinn við kjarna

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.