Mosfellingur - 09.03.2023, Blaðsíða 10
- Fréttir úr bæjarlífinu10
„Við erum búin að breyta nafninu á staðn-
um okkar hér í Þverholtinu í Bankinn Bis-
tro, en hér var fyrst opnað í lok árs 2019,“
segir Karen Arnardóttir rekstrarstjóri og nú
bankastjóri.
„Staðurinn hét áður Barion og við mun-
um að sjálfsögðu bjóða upp á sömu góðu
þjónustuna áfram enda sami góði hverfis-
staðurinn í Mosó. Sömu eigendur og sama
kennitala en nú færum við okkur nær upp-
runanum, enda var hér starfræktur banki
í fjöldamörg ár, bæði Búnaðarbankinn
og síðar Arion banki. Nú verðum við hins
vegar eini bankinn í bæjarfélaginu, eins
skrýtið og það hljómar. Það verður bara
aðeins meiri gleði í okkar banka.“
Í Bankanum er hægt að setjast niður í
mat og drykk t.d. í gömlu bankahvelfing-
una frá fyrri tíð en hún var flóknasta fram-
kvæmdin á sínum tíma þegar húsnæðinu
var breytt í veitingastað.
Bankinn Bistro er veitingastaður, hverfis-
bar, sportbar og félagsheimili fullorðna
fólksins í Mosfellsbæ.
Öll verð vaxtalaus og óverðtryggð
„Við erum alltaf að betrumbæta mat-
seðilinn okkar og reyna að höfða til sem til
flestra. Við bjóðum upp á ýmsar nýjungar og
höfum líka náð að lækka verð á einhverju.
Þá erum við komin með pizzur á matseð-
il sem hafa farið mjög vel af stað en þær eru
í boði á kvöldin og um helgar. Í hádeginu
alla virka daga bjóðum við svo upp á heit-
an mat, það hefur mælst einkar vel fyrir og
fjöldinn allur af fastaviðskiptavinum sem
koma dag eftir dag.
Á föstudögum ætlum við að byrja að
bjóða upp á hlaðborð með lambakjöti og
meðlæti en ætlunin er að gestir geti tekið
hraustlega til matar um leið og þeir koma
inn fyrir dyrnar.
Þá verða gerðar einhverjar breytingar
hér innanhúss á næstunni og staðurinn fær
andlitslyftingu í takt við nýtt nafn.“
Viðburðir í hverri viku
„Viðburðirnir okkar verða einnig á sín-
um stað áfram en hér eru haldin bingó,
pubquiz, prjónakvöld, skákmót, krakkabíó
og tónleikar svo eitthvað sé nefnt. Fótbolta-
áhugafólk horfir hér líka á helstu kappleiki.
Við erum alltaf opin fyrir hugmyndum og
hægt er að senda okkur póst á bankinn@
bankinnbistro.is.
Hugmyndin að nýja nafninu hefur verið
í deiglunni í þónokkurn tíma og verður vel
tekið á móti Mosfellingum sem og að sjálf-
sögðu öllum viðskiptavinum nú sem fyrr í
Bankanum,“ segir Karen.
Sami góði hverfisstaðurinn • Eini bankinn í Mosfellsbæ
Nafninu breytt í
Bankinn Bistro
karen arnardóttir
bankastjóri í þverholti 1
blásið til veisluskemmtilegir tónleikar
mosfellingarnir léttir í lundi - siggi hansa, diddú, biggi haralds,
stefanía svavars og davíð ólafs komu fram með stórsveit íslands
Stórsveit Íslands undir stjórn Daða Þórs
Einarssonar stóð fyrir glæsilegum tónleik-
um í Lundi í Mosfellsdal, höfuðstöðvum
Lambhaga.
Mosfellskir stórsöngvarar stigu á stokk
með sveitinni, Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Sigurður Hansson, Birgir Haraldsson,
Stefanía Svavarsdóttir og Davíð Ólafsson.
Stórsveitin er skipuð 20 hljóðfæraleik-
urum, blöndu atvinnu- og áhugamanna
og er æft einu sinni í viku.
Mosfellingar fjölmenntu á tónleikana
sem voru afar vel sóttir á þessu óvenju-
lega tónleikastað. Verkefnið var styrkt af
menningar- og lýðræðisnefnd Mosfells-
bæjar.
Mosfellsk tónlistarveisla
Héldu flotta
tónleika í
gróðurhúsi