Mosfellingur - 09.03.2023, Page 14
- Bæjarblað í 20 ár14
Listasalur Mosfellsbæjar
Áhrifavaldur í Listasalnum
Næsta sýning í Listasal Mosfellsbæjar er
Áhrifavaldur = Shinrin Yoku eftir Rósu
Traustadóttur. Opnun er laugardaginn 18.
mars kl. 14-16.
Sýningin er vatnslitasýning og ber nafn
sýningarinnar þess merki að náttúran og
skógurinn eru miklir áhrifavaldar í lífi lista-
mannsins. Daglega gengur listamaðurinn
meðfram Varmánni og við Reykjalundar-
skóg. Þar upplifir hún mismunandi flæði
eftir árstíðum bæði hvað varðar gróður,
fuglasöng og vatnsflaum í ánni.
Skógarganga og viðvera í skóginum er
vísindagrein sem japanskir vísindamenn
hafa mælt og rannsakað, og þykja Shinrin
Yoku eða skógarböð hafa heilandi áhrif á
fólk.
Ilmkjarnaolíur sem unnar eru úr íslensk-
um skógum frá Nordic Angan eru notaðar
á sýningunni til að mynda þennan sérstaka
ljúfa og heilandi ilm skógarins.
Síðasti sýningardagur er 15. apríl.
Laus störf
í Mosfellsbæ
Öll laus störf hjá Mosfellsbæ
og stofnunum má sjá og sækja
um á ráðningarvef bæjarins:
www.mos.is/storf
Gerðu garðinn fínan!
Nýjung í Bókasafni Mosfellsbæjar-
plokktangir til útláns í 30 daga í senn
Skema verður með smiðju í teiknimyndaforritun í Bókasafni
Mosfellsbæjar laugardaginn 18. mars kl. 12:30-15:30.
• Kodu Gamelab er þrívítt forritunarumhverfi sem er sérsniðið
að ungum byrjendum í forritun.
• Í smiðjunni munu þátttakendur læra að skrifa sögu á sögu-
borði, sérsníða heim utan um söguna og forrita hana. Í lokin
fá þátttakendur að deila sögunum sínum með öðrum í
smiðjunni.
• Aldursviðmið: 7-10 ára.
• Skráning í smiðjuna er nauðsynleg
því aðeins 15 pláss eru í boði.
Skráning fer fram með því að senda
tölvupóst á evadogg@mos.is.
Teiknimyndaforritun
í Kodu Gamelab fyrir 7-10 ára
18. mars kl. 12:30-15:30
Í smiðjunni munu þátttakendur læra að skrifa sögu á söguborði (e. storyboard), sérsníða heim utan um söguna og forri-
Skráning í smiðjuna er nauðsynleg því aðeins 15 pláss eru í boði. Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á
Bókasafn Mosfellsbæjar
Þorvaldur Friðriksson rithöfundur og
fornleifafræðingur heldur erindi um áhrif
Kelta á tungu og menningu Íslendinga.
í Bókasafni Mosfellsbæjar
fimmtudaginn 16. mars kl. 16:30