Mosfellingur - 09.03.2023, Síða 22
- Mosfellingurinn Margrét Guðjónsdóttir22
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir, Aldís Pálsdóttir og úr einkasafni.
Margrét Guðjónsdóttir var orðin
fimmtug er hún hóf nám í laga-
deild Háskóla Íslands. Hún hafði
starfað til fjölda ára á lögmannsstofum
áður en hún hóf námið og þekkti því vel
til hinna ýmsu sviða lögfræðinnar.
Árið 2016 stofnaði hún eigin lögfræði-
stofu og fasteignasölu en Margrét er einn-
ig löggiltur fasteignasali. Hún hefur sér-
stakan áhuga á erfða- og hjúskaparrétti
og hefur verið dugleg að hvetja fólk til að
vera betur meðvitað um rétt sinn.
Margrét er fædd á Hvolsvelli 30. október
1956. Foreldrar hennar eru Kristbjörg Lilja
Árnadóttir húsmóðir og Guðjón Jónsson fv.
frystihússtjóri á Hvolsvelli en þau eru bæði
látin.
Margrét á þrjú systkini, Rúnar f. 1940,
Inga f. 1943 d. 2022 og Ernu Hönnu f.
1952.
Þetta var nafli alheimsins
„Ég er alin upp á Hvolsvelli, yndislegt
þorp þar sem allir þekktu alla og allir voru
sem einn ef eitthvað bjátaði á. Á mínum
uppvaxtarárum voru íbúarnir hundrað
og sextíu en í mínum huga var þetta nafli
alheimsins.
Foreldrar mínir voru ein af frumbyggjum
Hvolsvallar, afi og amma og tvö systkini
mömmu áttu heima þarna líka svo þetta
var sannkallaður fjölskyldureitur. Ég var
svo heppin að róló var á bak við húsið mitt
svo það var ekki langt að fara til að leika.
Foreldrar mínir voru mjög dugleg að
fara í tjaldferðalög um landið og ég á
margar góðar minningar úr þeim ferðum.
Allar sundlaugar voru leitaðar uppi og það
fannst mér mikið sport.“
Ekki amalegt að komast á böllin
„Ég gekk í Hvolsskóla og fannst það
mjög gaman, stúdentinn kláraði ég svo frá
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Ég byrjaði
ung að vinna og sumarið eftir fermingu hóf
ég störf í félagsheimilinu Hvolnum sem þá
var eina hótelið á Hvolsvelli. Hvollinn var
vel þekktur fyrir sín sveitaböll og
það var ekki amalegt að komast
svona ung inn á þau.
Eftir að ég flutti til Reykja-
víkur þá var ég svo heppin að
fá skrifstofustarf hjá Toyota-umboðinu.
Það var einstaklega gott að starfa fyrir þau
hjónin Pál og Elínu enda frábærir félagar
starfsmanna sinna. Ég hóf síðar störf á
lögmannsstofu og starfaði þar sem fram-
kvæmdastjóri í mörg ár.“
Sælureitur við Silungatjörn
Margrét giftist Kjartani Óskarssyni í
Hlégarði 1994. Rúnar bróðir Margrétar
var á þessum tíma starfandi sýslumaður í
Reykjavík og gat því gefið þau saman.
Kjartan er menntaður garðyrkjufræð-
ingur en starfar í dag í Íþróttamiðstöðinni
að Varmá. Þau hjónin eiga tvö börn, Lilju
f. 1988 og Kolfinn Erni f. 1999 en fyrir átti
Kjartan Karen f. 1988.
„Við fjölskyldan eldum mikið saman, það
eru gæðastundir þegar allir gera
saman pizzu á föstudagskvöld-
um, þessi hefð hefur verið alveg
frá því börnin voru ung. Okkur
finnst líka gaman að ferðast, hvort sem er
að fara í stuttar borgarferðir eða á sólar-
strönd.
Við hjónin erum búin að gera okkur
sælureit við Silungatjörn sem er yndislegur
staður. Hlökkum til að eyða þar meiri tíma
í framtíðinni,“ segir Margrét og brosir.
Hófu nám á sama tíma
„Mig hafði lengi langað að læra lögfræði
en þegar ég var farin að vinna og komin
með fjölskyldu þá miklaði ég það fyrir mér.
Ég var orðin fimmtug þegar ég ákvað að
skoða þann möguleika að fara í þetta nám
með vinnu. Ég skráði mig í lagadeild Há-
skóla Íslands og sé ekki eftir því, í kjölfarið
aflaði ég mér málflutningsréttinda en það
er nauðsynlegt ef maður ætlar að geta flutt
mál fyrir dómstól-
um.
Við mæðgur
hófum nám á sama
tíma en Lilja mín
fór í verkfræði. Ég
lofaði henni að ég
skyldi ekkert vera
að heilsa henni á
göngunum en við
höfðum báðar mjög
gaman af þessu,“
segir Margrét og
hlær.
Mikil vanþekking
í gangi
Margrét stofnaði
sína eigin lög-
mannsstofu MG Lögmenn árið 2016
með aðsetur í Mosfellsbæ. Hún er
líka löggiltur fasteignasali og hefur
verið að sinna því starfi töluvert
samhliða lögmannsstörfunum.
Margrét hefur komið að hinum
ýmsu sviðum lögfræðinnar en hún
hefur sérstakan áhuga á erfða- og hjúskap-
arrétti. Hún telur að að það sé töluverður
misskilningur og vanþekking í gangi hjá
fólki varðandi þau mál og hún vill hvetja fólk
til að vera betur meðvitað um rétt sinn.
„Hjúskaparlögin gilda aðeins um hjú-
skap tveggja einstaklinga eins og segir í 1.
gr þeirra. Þar er sérstaklega tekið fram að
þau taki ekki til óvígðrar sambúðar. Eng-
inn lögerfðaréttur er milli sambúðaraðila í
óvígðri sambúð, skiptir þá engu hvort aðilar
hafi skráð sambúðina, hvað hún hafi staðið
lengi eða hvort þeir eigi börn saman.“
Ég óska fólki til hamingju
„Ástæða þess að hjón gera oft kaupmála
um að eign sé séreign er sú að hún komi
ekki til skipta við skilnað eða andlát. Þá
þarf að gæta að því, ef vilji er til, að tiltaka
að eignin verði hjúskapareign að því hjóna
látnu, því annars þarf að skipta búi hins
látna og jafnframt að greiða erfðafjárskatt
af eigninni sem getur verið töluverð fjár-
hæð.
Sambúðarfólk óskar oft eftir því að gera
slíkt hið sama þ.e.a.s. að gera kaupmála
og vill tryggja sig eins og fólk í hjúskap en
það er ekki hægt. Það getur gert erfðaskrá
þar sem kveðið er á um að hinn sambúð-
araðilinn skuli taka arf eftir þá en eigi það
barn, hvort sem þau eru sameiginleg eða
ekki þá getur það aðeins ráðstafað 1/3 af
arfi sínum á þennan hátt. Réttur til að sitja í
óskiptu búi er heldur ekki í boði. Mögulega
er hægt að gera yfirlýsingu um vilja fólks en
það skjal er hvergi hægt að skrá.
Ég óska fólki til hamingju þegar það
hefur gert erfðaskrá, það er nefnilega oft
þannig að fólk ætlar sér að ganga frá erfða-
skrá við tækifæri en svo verður það of seint.
Það skiptir líka máli að hún sé gerð meðan
fólk er heilt heilsu.“
Ræktin er mín slökun
Ég spyr Margréti að lokum út í áhuga-
málin? „Vinnan mín er klárlega aðal-
áhugamál mitt, mér finnst mjög gaman að
stúdera hinar ýmsu hliðar lögfræðinnar og
les mikið um allt sem henni tengist. Mér
finnst mjög gott að fara í ræktina en það
er mín slökun.
Ég er líka í Rótarýklúbbi Mosfellssveitar
sem er mjög áhugaverður og skemmtilegur
félagsskapur og ég er forseti klúbbsins þetta
starfsárið. Það er alltaf eitthvað skemmti-
legt og fróðlegt í gangi hjá okkur allt árið
um kring,“ segir Margrét brosandi er við
kveðjumst.Fjölskyldan, Kjartan, Margrét, Aþena, Kolfinnur Ernir, Lilja og Gunnar Smári.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Erfðamál koma okkur öllum við
Margrét Guðjónsdóttir lögmaður hvetur fólk til að vera betur meðvitað um rétt sinn
Við mæðgur hófum nám
á sama tíma en Lilja mín
fór í verkfræði. Ég lofaði henni
að ég skyldi ekkert vera að
heilsa henni á göngunum.
HIN HLIÐIN
Hvaða tímarit kaupir þú helst?
Hús og híbýli og Gestgjafann.
Besta setning sem þú hefur heyrt?
„Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt.“
Hver myndi leika þig í bíómynd?
Úff þessi er erfið, Meryl Streep.
Uppáhaldsveitingastaður?
Blik er góður staður.
Hvað heillar þig í fari fólks?
Heiðarleiki og húmor.
Fallegasta augnablikið?
Sólarlag við Silungatjörn.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú hefur gert? Þegar stórt er spurt, en
góðar stundir í góðra vina hópi eru alltaf
skemmtilegar.
Bestu kaup sem þú hefur gert?
Húsið mitt í Hagalandi.
ung að árum
margrét og kjartan
brúðkaup 1994