Bókaskrá Bóksalafélags Íslands - 01.12.1890, Blaðsíða 15

Bókaskrá Bóksalafélags Íslands - 01.12.1890, Blaðsíða 15
Sigurðar Kristjánssonar. 1S Ljóðmæli Kristjáns Jónssonar, Önnur útgáfa. ----#---- zÆgty’ jáns Jónssonar og annara íslenzkra ljóðabóka, mun " óhætt að fullyrða það, að sárfá ljóð hafi vinsælli orðið alþýðu manna hjer á landi. Ljóðmælin liafa nú um mörg ár ver- ið alveg uppseld og einatt borguð margföldu verði, er kostur heíir verið á brúkuðu eintaki. Eptirspurn hefir þannig verið mik- il eptir þeim, og hefir það hvatt mig tii að kaupa prentrjett að nýju upplagi af þeim, sem út mun koma á minn kostnað í sumar. Kvæðin sjálf verða prentuð að öllu óbreytt, nema röðinni lítið eitt vikið við, og svo sem 3—4 klúr kvæði felld úr. Æfisögu skáldsins og inngangsorð hefir útgefandinn, Jón ritstjóri Ólafsson, ritað um á ný og aukið og bætt, liana frá því sem í fyrri útgáfunni var, og er vonandi að það verði tal- ið til bóta en eigi spillis. Mynd höfundarins verður látin fylgja útgáfunni. Verð bókarinnar mun verða um 2 kr. 50 au. til 3 kr. innhept; bókin vönduð að öllum frágangi og prentuð á góðan pappír með skýru letri af venjulegri leturstærð. Keykjavík, 22. marz 1890. Sigurður Kristjánsson.

x

Bókaskrá Bóksalafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókaskrá Bóksalafélags Íslands
https://timarit.is/publication/1844

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.