Verzlunartíðindi - 01.02.1953, Blaðsíða 6
Útreiknuð grunnlaun
afgreiðslufólks með núverandi vísitölu.
B - 1 i ð u r .
Grunnlaun Vísitala á Laun með
krónur grunnl. visitölu krónur
1. fl. 1.811.25 158 2.861.78
2.001.00 153 3.061.53
2.190.75 153 3.351.85
2. fl. 1.667.25 158 2.634.26
1.798.88 158 2.842.23
1.930.50 153 2.953.67
3. fl. 1.351.35 158 2.135.13
1.491.32 158 2.356.29
1.667.25 158 2.634.26
4. fl. a. 1.053.00 158 1.663.74
1.456.65 158 2.301.51
4. fl. b. 930.15 158 1.469.64
1.017.90 158 1.608.28
1.105.65 158 1.746.93
1.281.15 158 2.024.22
5. fl. 877.50 158 1.386.45
965.25 158 1.525.10
1.053.00 158 1.663.74
6. fl. 649.35 158 1.025.97
789.75 158 1.247.81
Norrænt mót smásala í sumar.
De Danske Handelsforeningers Fællesorganisa-
tion og Norrænafélagið í Danmörku gangast fyrir
samnorrænu móti smásala frá öllum Norður-
löndum.
Mótið verður haldið dagana 21.—28. júní næst-
komandi að Hindsgavl við Litlábelti.
Gert er ráð fyrir, að þátttakendur verði um 100
og mega verzlunareigendur taka maka sina með
sér. Á mótinu gefst mönnum ágætt tækifæri til
þess að njóta sumarleyfis í fögru umhverfi og jafn-
framt að kynnast starfsbræðrum á norðurlöndum
og ræða hin ýmsu áhugamál smásala.
Formaður D.D.H.F. hefur í bréfi til Sambands
smásöluverzlana lagt á það mikla áherzlu, að kaup-
menn frá íslandi sæu sér fært að taka þátt í mótinu.
Dvalargjaldið á Hindsgavl verður 130 danskar
krónur fyrir manninn.
Skrifstofa S. S. gefur allar nánari upplýsingar.
Áldðninðartdfiinörliun ií nohhrum rörui.
I sambandi við lausn á vinnudeilunni í desember
s.l., óskaði ríkisstjórnin eftir því, að kaupsýslu-
menn lækkuðu álagningu sína af rrjálsum vilja á
nokkrum vörutegundum, enda leystist vinnudeilan
án þess að til almennra kauphækkana kæmi og
ekki þyrfti að setja verðlagsákvæði.
Kaupsýslumenn urðu við þessum tilmælum og
hefur ríkisstjórninni verið lofað, að álagning yrði
ekki hærri en hér segir til ársloka 1953 á þessum
vörum:
Heildsala Smásala Keypt af innl. heild- sölub.
Léreft, sirs, flúnel og tvisttau Nærfatnaður úr baðmull, 9% 28%
kven og karla Erlend ullarefni og erlendur 9% 28%
prjónafatnaður úr ull 10% 25%
Nylon sokkar Búsáhöld úr alumínium: suðuáhöld allskonar, pottar, 10% 28%
pönnur, katlar 10% 32%
Búsáhöld úr leir og gleri 18% 38%
Hveiti, rúgmjöl og haframjöl 3% 23%
Strásykur 3% 20%
Kaffi, óbrennt 3% 15%
Álagning í smásölu, þegar kaupmenn flytja inn
beint, er óbundin eftir sem áður, en markaðsverð
hlýtur að ráða því, að einingarverð þeirrar vöru
verður ekki hærra en þeirrar, sem keypt er af inn-
lendum heildsölubirgðum.
Álagning á sérgreinavörur.
Hér í Reykjavík hefur þróunin orðið sú, að það
er orðið æ algengara, að verzlanir selja sérstakar
vörutegundir eins og til dæmis vefnaðarvöru, mat-
vöru, skófatnað o. s. frv.
Þó hljóta alltaf ýmsar vörutegundir, sem ein sér-
grein verzlana selur aðallega, að verða til sölu í
öðrum. Má þar nefna að margar matvöruverzlanir
selja t. d. eitthvað af búsáhöldum og ljósaperum
og búsáhaldaverzlanir selja ræstivörur. Er hér
venjulega um lítið magn að ræða og þessvegna
finnst kaupmanninum það litlu máli skipta hvað
hann leggur á þessar ,,aukavörur“, enda fær hann
verzlunarkostnað sinn greiddan af sölu aðalvöru
sinnar.
Kaupmenn ættu að hafa það fyrir fasta reglu,
að leggja á þessar „aukavörur" í samræmi við
það, sem tíðkast í sérverzlunum.
6
VERZLUNARTÍÐIXDIX