Suðri - 13.12.2018, Page 2
2 13. desember 2018
ftirspurn eftir raforku
á Íslandi í dag er mikil og
mun aukast á sama tíma
og fólk gerir sér sífellt betur
grein fyrir vægi loftslags-
mála. Hrein, endurnýjanleg
orka mun gegna veigamiklu
hlutverki í orkuskiptum í
framtíðinni. Það að skipta
út jarðefnaeldsneyti fyrir
umhverfisvæna orku er eitt
mikil vægasta framlag okkar
til loftslagsmála á heimsvísu.
Búrfellsstöð II er nýjasta
aflstöð Íslendinga. Hún
var gangsett 28. júní 2018,
en fyrsta aflstöð Lands-
virkjunar, Búrfellsstöð, var
gangsett á sömu slóðum
tæpum fimmtíu árum fyrr.
Nýja stöðin nýtir vatn sem
áður rann fram hjá eldri
mannvirkjum og bætir
því umtalsvert nýtingu
þeirrar auðlindar sem felst
í fallvatninu.
Við framkvæmdina var lögð
mikil áhersla á að lágmarka
umhverfisáhrif eins og kostur
er. Stöðvarhúsið er staðsett
neðanjarðar og sjónræn áhrif
eru því minni en ella. Vegna
þess að fyrir voru aflstöðvar
á vatnasvæðinu var hægt
að samnýta vegi, raforku-
flutningskerfi og uppistöðu-
lón og lágmarka þannig rask.
Ábyrg nýting orkunnar er
öllum til hagsbóta.
Frá gangnamunna í Sámsstaðaklifi ligg ja 270 metra löng aðkomugöng
að stöðvarhúsi Búrfellsstöðvar II.
Við óskum landsmönnum öl lum gæfu á nýju ári
og þökkum farsælt samstarf á l iðnum árum.