Suðri - 13.12.2018, Blaðsíða 11

Suðri - 13.12.2018, Blaðsíða 11
11 13. desember 2018 Eitthvað nýtt, geymdu bílinn frítt ! TAKTU FORSKOT Á SÆLUNA! Ertu á leið í morgunflug? Forðastu himinhá geymslugjöld á bílnum! Svefninn er dýrmætur. Byrjaðu fríið degi fyrr og gistu á Base kvöldið fyrir flug. Sofðu lengur, geymdu bílinn frítt og fáðu skutl á völlinn, tekur 5 mín. Þetta er tilboð, bara fyrir snillinga ! Á Base er alltaf Happy Hour á barnum, og Gæðakaffi á könnunni. Það er bara basic! Njóttu notalegrar stemningar og skoðaðu eitt flottasta nýlistasafn Íslands í leiðinni. ALLT INNIFALIÐ: Frá 6900 í eigið herbergi. Morgunverður Frá Basic Double til Comfort Suite. Skutla á flugvöllinn og til baka Hafðu samband í tölvupóst eða síma til að Geymsla á bíl bóka: basehotel@basehotel.is/ 519 1300 Áslaug Dóra og Anna María semja við uppeldisfélagið Ás laug Dóra Sigur björns dóttir og Anna María Berg þórs­ dóttir skrifuðu í síðustu viku undir þriggja ára samninga við knatt­ spyrnu deild Sel foss. Ás laug Dóra og Anna María eru báðar 15 ára gamlar og stigu sín fyrstu skref í meistara flokki í Pepsi­deildinni í sumar, þar sem Anna María lék fjóra leiki og Ás laug Dóra þrjá. Ás laug hefur þar að auki leikið sjö lands leiki með U17 ára lands liði Ís lands á þessu ári. „Þetta eru frá bær lega efni­ legir leik menn. Ás laug getur spilað bæði bak vörð og mið vörð og líka á miðjunni en Anna María er meira sóknar þenkjandi. Þær eru búnar að vera við loðandi meistara flokk síðasta árið og eru búnar að standa sig vel. Það er ó trú lega á nægju legt að þær skyldu vilja semja við sitt upp eldis­ fé lag. Þessar stelpur á samt fleiri, eru fram tíðin okkar,“ segir Al freð Elías Jóhanns son, þjálfari kvenna liðs Sel­ foss. Á myndinni hand sala Ás laug Dóra og Anna María samningana á samt Guð­ mundi Karli úr meistara flokks ráði kvenna. Ár eftir ár - minningalaupur hannaður af Höllu Ósk Heiðmarsdóttur Útgáfuhóf í Læknis- húsinu á Eyrarbakka Bókaútgáfan Sæmundur gefur út bókina Ár eftir ár sem er minningalaupur þar sem bókareigandi skráir dýrmætar minningar sem og hversdagsleg augnablik á hverjum degi, ár eftir ár á meðan pláss leyfir. Hönnuður er Halla Ósk Heiðmarsdóttir á Selfossi. Af þessu tilefni efnir útgáfan til fagnaðar í Bókakaffinu á Selfossi fimmtudagskvöldið 13. desember kl. 20:00. Rautt, hvítt og bílstjóradrykkir í boði. Fjölskylda höfundar tekur lagið. Í bókinni er ein síða fyrir hvern dag ársins. Eigandi bókarinnar velur augnablik eða liðnar minningar frá deginum, merkir inn ártalið og getur þannig bætt við fleiri minningum frá sama degi í mörg ár. Í hvert sinn sem minningu er bætt inn á daginn, lítur maður yfir liðin augnablik og nýtur þess að eiga bók fulla af dýrmætum augnablikum, sem hægt er að ylja sér yfir og fletta um ókomin ár. Bjarni Múli Bjarnason, rithöfundur, heldur útgáfuhóf í Læknishúsinu á Eyrarbakka laugardaginn 15. desember kl. 16­18 þar sem hann kynnir nýja bók sína sem ber nafn hússins. Sögusvið bókarinnar er m.a. Eyrarbakki og umrætt hús og mun Bjarni segja frá ritun bókarinnar sem fór að miklu leyti fram þar, og lesa valda kafla úr henni. Bjarni er afastamikill rithöfundur og hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir verk sín en bókin sem setti hann á svið íslenskra rithöfunda var Endurkoma Maríu sem fékk afragðs viðtökur bæði gagnrýnenda og lesenda. Höfundur hvetur alla áhugsama til að koma við og kynna sér verkið.

x

Suðri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Suðri
https://timarit.is/publication/1143

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.