Suðri - 13.12.2018, Page 8

Suðri - 13.12.2018, Page 8
8 13. desember 2018 Aðsóknarmet í Bókakaffinu Aðsóknarmet var slegið á upp­ lestrarvöku fimmtudaginn 22. nóvember sl. í Bókakaffinu á Selfossi þegar 76 manns mættu. Fyrra metið var frá 24. Nóvember 2016 þegar 73 mættu og þar áður frá 3. Desember 2014 þegar 70 mættu. Bókakaffið hefur verið með upplestrarkvöld frá árinu 2007 og mætingametin fyrstu árin voru 2008 og 2009 þegar rúmlega 60 manns mættu á svokölluð og margfræg Vestfirðingakvöld. Eftirtalin lásu upp í Bókakaffinu þann 22. Nóvember sl. : Jón Hjartarson og Áslaug Ólafsdóttir úr bókinni Kambsmálið er segir frá atburðum sem urðu á bænum Kambi í Árneshreppi árið 1953 þegar til stóð að sundra fátækri fjölskyldu í kjölfar andláts bóndans, Lilja Magnúsdóttir las úr bókinni Svikarinn sem ástarsaga og saga úr íslenskum samtíma, Gunnar Sæmundsson frá Hrútatungu las úr sjálfsævisögu sinni, Genginn ævivegur en Gunnar var lengi í forystusveit bænda og kom að margvíslegum félagsmálum í heimahéraði og á landsvísu og Bjarni Harðarson las úr 18. Aldar skáldsögunni Í Gullhreppum þar sem segir frá Skálholtsstól og þjóðsagnapersónunni Þórði í Reykjadal. Menningarráð Hrútavinafélagsins Örvars á Suðurlandi var á upplestrarkvöldinu nú þann 22. Nóv. Eins og svo oft áður. Fyrir upplesturinn áttu þeir í ráðinu minnigarspjall um Kristján Runólfsson í Hveragerði sem lést þann 17. Október sl. Hann var í Menningarráðinu og mætti manna best á upplestrarkvöldin í Bókakaffinu alla tíð. Þetta fært til ljóðs í minningu Kristjáns: Minning Kristjáns mýkir stund margt er þar af góðu. Menningarráðið mætt á fund mærum hann í ljóðu. Björn Ingi Bjarnason færði aðsóknarmetið í Bókakaffinu til myndar.

x

Suðri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Suðri
https://timarit.is/publication/1143

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.