Íslensk bókatíðindi - 01.12.1979, Side 37
ÍSLENSKAR ÚRVALSBÆKUR FRÁ SKJALDBORG
MIÐILSHENDUR
EINARS Á EINARSSTÖÐUM
Erlingur Davíðsson skráði. í bókinni eru yfir 30 viðtals-
þættir við menn, sem leitað hafa sjúkir til miðilsins á Ein-
arsstöðum, og eru allar frásagnirnar staðfestar með eigin-
handarundirskrift viðmælenda. Myndir eru af þeim öllum
og einnig nokkrar myndir teknar á Einarsstöðum. Séra Sig-
urður Haukur Guðjónsson ritar stórmerka grein um Einar
Einarsson og störf hans. Þetta er í senn sérstæð, lærdóms-
rík og skemmtileg bók, sem ber því vitni á tæpitungulaus-
an hátt, að tími kraftaverkanna er ekki liðinn á íslandi.
ALDNIR HAFA ORÐIÐ, 8. bindi
Erlingur Davíðsson skrásetti og bjó til prentunar eins og
fyrri bindin. Þessir segja frá: Gunnlaugur Tr. Gunnlaugs-
son, Kasthrauni, S.-Þing., Helgi Guðmundsson, Hoffelli,
Skaft., Oddný Guðmundsdóttir frá Hóli á Langanesi, Run-
ólfur póstur Guðmundsson, Vopnaf., Soffía Sigurðardóttir
frá Brattavöllum á Árskógsströnd, Arnfirðingurinn Vagn
Þorleifsson, sem nú er nýlátinn, og Þórir Áskelsson, Ake.
ÞÓRDÍS Á HRAUNÁ
eftir Aðalheiði Karlsdóttur frá Garði. Rammíslensk og
spennandi ástarsaga.
SKRÆPÓTTI FUGLINN
eftir verðlaunahöfundinn Jerzy Kosinsky í frábærri þýð-
ingu Gissurar Á. Erlingssonar. Hrikaleg frásögn frá Aust-
ur-Evrópu um vitfirringu síðari heimsstyrjaldarinnar og
mannlífið þar. Metsölubók í Bandaríkjunum og verðlauna-
bók í Frakklandi, en bönnuð í Austur-Evrópu.
GANGVEGIR, Ijóðasafn og lausar vísur
Úrval úr kveðskap Rósbergs G. Snædals.
PUNKTUR í MYND
Ný Ijóðabók eftir Kristján frá Djúpalæk. Skreytt fjölda
litmynda eftir Ágúst Jónsson. Sannkallað listaverk.
KVELDSKIN
eftir Gunnar S. Sigurjónsson. Dulrænar frásagnir, hug-
dettur og Ijóð.
KRÓKALEIÐIR ÁSTARINNAR
eftir Guðbjörgu Hermannsdóttur. Scga um ólgandi ástir
og ógnþrungin örlög.
FJALLABÆJAFÓLK
1. bindi æviminninga Einars Kristjánssonar frá Hermund-
arfelli. Hér segir Einar m.a. frá uppvaxtarárum sínum í
Þistilfirði og mannlífi á þeim tíma.
HALDIÐ TIL HAGA
Síðara bindi af minningum Bjartmars Guðmundssonar frá
Sandi. Lýsingar Bjartmars á samtímamönnum sínum bera
vitni glöggskyggni hans og sanngirni.
STROKUPALLI
Ný unglingabók eftir Indriða Úlfsson. Ein allra besta bók
Indriða.
KÁTA GERIST SKÁTI
9. bókin um Kátu og vini hennar. Hollur og skemmti-
legur lestur fyrir yngstu börnin.
Skjaldborg hf.
Hafnarstræti 67 — Akureyri
Safnrit Guömundar
Böövarssonar
Oll ritverk Guðmundar Böðvarssonar í samstæðri útgáfu.
Safnrit I.—VII.
Borgfirzk blanda l.-ll.
Sagnir og fróðleikur úr Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
Því gleymi ég aldrei, l.-IV.
75 frásöguþættir af eftirminnilegum atburðum úr lífi
þjóðkunnra íslendinga.
Skáldkonur fyrri alda l.-ll.
Guðrún P. Helgadóttir skólastjóri skýrir fró hlutdeild kon-
unnar í íslenzkum bókmenntum fyrri alda.
fslenzkar Ijósmæöur l.-lll.
Hér segir fró hetjudóðum og ævikjörum 100 íslenzkra
Ijósmæðra.
Sveinn Víkingur
Myndir daganna, I.—III.
og Getið í eyður sögunnar.
Refskinna l.-ll.
HÖRPUÚTGÁFAN
KIRKJUBRAUT 19 - 300 AKRANES