Vestfirðir - 04.10.2018, Blaðsíða 4

Vestfirðir - 04.10.2018, Blaðsíða 4
4 4. október 2018 Yfir Vestfirðinga ríður eitt stofnanaáfallið enn. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð- lindamála hefur fellt úr gildi rekstrarleyfi fyrir 17.500 tonna laxeldi í sjó í Patreksfirði og á Tálknafirði. Óafgreiddar eru kærur um sjálft starfsleyfið. Stofnanir inn framkvæmdasvaldsins takast á um laxeldið. Úrskurðarnefndin finnur að gerðum Skipulagsstofnunar og Matvælastofnunar og tekur nú til meðferðar kæru á Umhverfisstofn- un. Þessi stofnanasirkus hefur þá einu niðurstöðu í för með sér að uppbygging laxeldis í sjó á Vestfjörðum tefst og jafnvel stöðvast eins í Ísafjarðardjúpi. Deilt um peninga Átökin snúast ekki um hárfína lögfræði. Lagaþræturnar sem andstæðingar laxeldis bjóða upp á eru birtingarmynd átaka, afleiðing en ekki orsök. Átök snúast ekki heldur um vernd laxastofna. Áratuga fiskrækt með hrognakok- teilum bæði innlendum og erlendum í velflestum ám landsins staðfesta að markmiðið var að efla stangveiðina en ekki að vernda staðbundna stofna. Þetta snýst um peninga og ekkert annað. Flóknara er málið ekki. Fyrir Vestfirðinga snýst málið líka um peninga. Af laxeldi í sjó má vænta þess að hafa miklar tekjur, fjölda starfa, fjölgun íbúa og hækkandi verðmæti verðlítilla íbúða. Laxeldið í sjó uppfyllir líka að vera það eina sem staðið hefur til boða síðustu 20 árin: að vera eitthvað annað. Stefnan mörkuð 2004 Fyrir hálfum öðrum áratug gerðu stjórnvöld sátt í málinu. Mörkuð var sú stefna að banna laxeldi í sjó um allt land, nema þar sem stangveiðihags- munirnir voru hverfandi. Frá þeim tíma hefur eldið aðeins verið leyft á Vest- fjörðum, hluta af Austfjörðum og í Eyjafirði. Þarna var gengið mjög langt til móts við áhrifamikinn og háværan hóp veiðiréttindamanna. Við þetta samkomulag hefur verið staðið. En innan stangveiðihópsins eru menn sem vilja enga sátt. Þeir hafa grafið undan samkomulaginu og hafa sterk tök inn- an margar stjórnmálaflokka, að ekki sé talað um nokkrar stofnanir sem eru undirlagðar talibönum að þessu leytinu til. Þar hefur Hafrannsóknarstofnun verið misnotuð til þess að skapa þá trú að laxeldi sé sérstaklega varasamt fyrir land og þjóð. Svonefnt áhættumat hefur ekki gengið í gegnum vísinda- lega prófraun og er hvergi til í heiminum, en er engu að síður notað sem vísindaleg rök gegn laxeldinu. Laxeldið gefur miklar tekjur Fyrirsjáanlegt er að laxeldið mun gefa miklar tekjur. Útflutningstekjur 2016 af um 10 þúsund tonna framleiðslu voru um 10 milljarða króna og er þó laxeldið enn á byrjunarstigi. Stangveiðin gefur miklu minna af sér. Miðað við skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands frá 2004 má ætla að beinar tekjur hafi verið 3,5 – 4 milljarðar króna. Fimmtíu þúsund tonna framleiðsla á Vestfjörðum, sem meira að segja Hafrannsóknarstofnun segir mögulega, myndi gefa um 50 milljarða króna í útflutningstekjur á hverju ári. Því myndi fylgja um 800 störf bein og óbein og mannfjölgun á Vestfjörðum gæti orðið um 1800 manns sé miðað við mat KPMG sem unnið var á síðasta ári. Ætla má að unnt verði hæglega að framleiða 150 þúsund tonn á Íslandi. Gengi það eftir væri búið að auka tekjur þjóðarinnar um 150 milljarða króna og fer þá að slaga upp í sjávarútveginn. Þessi möguleikar eru raunhæfir, verðið á laxinum er gott og því spáð að svo verði næstu ár, fjárfestar eru fúsir til þess að setja peninga í upp- bygginguna og greinin tekjur framförum jafnt þétt í búnaði og öðru varð- andi reksturinn. Fiskeldi er mjög vaxandi í heiminum og Sameinuðu þjóð- irnar kalla eftir auknu fiskeldi til þess að mæta aukinni fæðuþörf heimsins vegna fólksfjölgunar. Stangveiðin verður áfram Engin ástæða er til þess að ætla að laxeldið hafi skaðleg áhrif á villta laxastofna og því mun sú atvinnugrein eiga sína möguleika áfram. Í opin- berri umræðu hér á landi fara hátt ýkjur um hættur af laxeldi. Ekkert er þó handfast eða staðfest um blöndun stofna, aðeins tilgátur og upphlaup. Skæruliðastjórnmál Öfgar og óbilgirni eru orðin að alvarlegasta vandamáli íslenskra stjórnmála. Talibanarnir innan veiðiréttarhópsins virða ekkert nema eigin kröfur og standa ekki við markaða stefnu stjórnvalda. Við þetta bætist svo að nátt- úruvernd er í hugum töluverðs hóps ofar öllu öðru og þar með talið þörfum fólks víða um land. Venjulegt alþýðufólk á Vestfjörðum á ekki bandamann í hópi þessara skæruliða sem hefur sótt í ráðandi störf hjá opinberum stofn- unum sem huga að umhverfismálum. Sjást merki um það í hverju hags- munamáli Vestfirðinga á fætur öðru að helstu tálmanirnar er að finna inn- an stofnana ríkisins í formi einstrengislegrar túlkunar á lögum og skorts á vilja til lausna. Mál er að linni. Annars verða landsmenn sviptir miklum möguleikum til efnahagslega ávinnings. Kristinn H. Gunnarsson LEIÐARI 12. tölublað Útgefandi: Fótspor ehf., Suðurlandsbraut 54 , 103 Rvk. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason. Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason sími 824-2466, netfang, amundi@fotspor.is. Auglýsingar: Sími: 578-1190 & netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri: Kristinn H. Gunnarsson, sími: 892-7630, netfang: kristinn@kristinn.is. Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Dreifing: Íslandspóstur. Vefútgáfa PDF: www. fotspor.is FrÍbLAÐINU er DreIFt Í 3.400 eINtÖkUM Á ÖLL HeIMILI oG FYrIrtÆkI Á VeStFJÖrÐUM Skæruliðar innan stofnana Vestfirska vísnahornið Jón Atli Játvarðsson á Reykhólum hefur sjálfsagt fylgst agndofa með fréttum af Orku náttúrunnar eins og velflestir landsmenn. Honum varð að orði að það hefði orðið útsláttur: Orkuskiptin eru hafin, útslagið við mælir fraus. Einhver tengill illa skafinn orðinn kapall rafmagnslaus. Endaði með auknum harmi eins, á rásum ljósvakans. Burtu rann á reiðhjólsgarmi með ryðgað stolt til Bjarmalands. Indriði á Skjaldfönn minnist á skýr- slu Hannesar Hólmsteins um orsakir hrunsins fyrir áratug, sem loksins leit dagsins ljós eftir langa mæðu: Hannes á leiðindin lítur. Líðst ekki á Davíð neinn skýtur. Hann smúlar og smúlar, púlar og púlar uns karlinn er loks orðinn hvítur. Jón Atli yrkir líka um skýrslu Hann- esar í orðastað hans: Fór ég yfir einhver gögn. Engin þekkt er syndin. Um glapræði er grafarþögn og glansar fegruð myndin. Klökkur yfir trausti og trú sem tekin var að láni. Mældist hraði á mjólkurkú sem moldvörpu á Skáni. Útkoman nú öllum kunn og endaslöpp við metum. Teljum þetta gagnagrunn og gerum súg að Bretum. Botninn í þáttinn slær Indriði á Skjaldfönn: Flest Reykjavíkurbréf áðurnefnds Davíðs ganga út á það að bera blak af núverandi Bandaríkjaforseta. Ennþá skapar Trumpur tjón títt, um lönd og álfur. Það er vont að vera flón og vita ei af því sjálfur. Með haustkveðjum kristinn H. Gunnarsson Laxeldi: rekstrarleyfið fellt úr gildi Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi rekstrarleyfi sem Mat- vælastofnun veitti Fjarðarlax ehf fyr- ir 10.700 tonna ársframleiðslu á laxi. Sama dag felldi nefndin einnig úr gildi rekstrarleyfi Artic Sea Farm fyrir 6.800 tonna ársframleiðslu á laxi. Bæði leyfi náðu til framleiðslu í opnum sjókvíum í Patreksfirði og á Tálknafirði og voru þau veitt 22. desember 2017. Óafgreiddar eru hjá nefndinni þrjár kærur þar sem kærð er sú ákvörðun Umhverfisstofnunar að veita fyrirtækj- unum tveimur starfsleyfi fyrir sama eldi. Ríkisstofnanir kærðar Kærðar eru í þessum fimm málum ríkisstofnanirnar Matvælastofnun og Umhverfisstofnun. Auk þeirra kemur Skipulagsstofnun ríkisins að málinu vegna álits stofnunarinnar á skýrslu um mat á umhverfisáhrifum, sem er grunnskjal í málum sem þessum. Taldi Skipulagsstofnun að skýrslan uppfyllti skilyrði laga og reglugerðar um mat á umhverfisáhrifum. Krafist var að rekstrarleyfin yrðu felld úr gildi. Varð úrskurðarnefndin við kröfunni. Kærendur eru: Náttúruverndarsamtök Íslands, nátt- úruverndarsamtökin Laxinn lifi, Akurholt ehf. og Geiteyri ehf., eigend- ur Haffjarðarár í Hnappadal, Ari P. Wendel, eigandi Kirkjubóls í Arnarfirði og veiðiréttarhafi í Fífustaðadal, Víðir Hólm Guðbjartsson, eigandi Grænu- hlíðar í Arnarfirði og veiðiréttarhafi í Bakkadal, Fluga og net ehf., rekstrar- félag Vatnsdalsár á Barðaströnd, Atli Árdal Ólafsson, eigandi hluta veiði- réttar í Hvannadalsá, Langadalsá og Þverá í innanverðu Ísafjarðardjúpi og Varpland ehf., eigandi hluta veiðiréttar í Langadalsá og Hvannadalsá, og veiði- félag Laxár á Ásum. Úrskurðarnefndin snýr við blaðinu Deilt var um kæruaðild. Matvælastofn- un hélt því fram að kæran væri van- reifuð varðandi aðild og hagsmuni kærenda. Ekki væri skýrt í kærunni hverjir hinir lögvörðu hagsmunir væru í tilviku kærenda hvers og eins eða fyr- ir þá sameiginlega. Lögum samkvæmt gætu aðeins þeir kært sem ættu lögvarða hagsmuni og úrskurðarnefndin hefði með úrskurði 97/2016 markað þá niðurstöðu að allir kærendur aðrir en Náttúruverndarsamtök Íslands og nátt- úruverndarsamtökin Laxinn lifi hefðu ekki lögvarða hagsmuni. Undanþágu- ákvæði laganna heimilaði hins vegar útivikstar- og hagsmunasamtökum að ákveðnum skilyrðum uppfylltum að eiga kæruaðild að máli. Í umræddum úrskurði sem fjallaði um resktrarleyfi sem Matvælastofnun veitti vegna sjó- kvíaeldis í Arnarfirði í maí 2016 segir að kærendur séu „eigendur Haffjarð- arár í Hnappadal á Snæfellsnesi. Um er að ræða laxveiðiá sem rennur til sjávar á sunnanverðu nesinu. Laxeldið sem hið kærða starfsleyfi heimilar er í Arnarfirði á Vestfjörðum, fjarri nefndri á. Verður ekki séð með vísan til þessa að kærendur hafi hagsmuna að gæta umfram þá hagsmuni sem almenna má telja. Slíkir hagsmunir nægja ekki einir og sér til kæruaðildar að málum fyrir úrskurðarnefndinni, svo sem áður hef- ur komið fram.“ Meðal kærenda nú voru einmitt sömu fyrirtæki Geiteyri ehf og Akur- holt ehf og úrskurðarnefndin breytir afstöðu sinni og samþykkir í fyrsta lagi kæruaðild þeirra sem fara með hags- muni veiðiréttarhafa í ám á Vestfjörð- um vegna nándar við fyrirhugað laxeldi og í öðru lagi samþykkir rétthafa vegna Haffjarðarár og Laxár í Ásum með þess- um rökstuðningi: „Tvær síðarnefndu árnar eru því í mikilli fjarlægð frá umræddu eldi og eru staðhættir þannig að ef til þess kæmi að lax slyppi úr eldiskvíum væru umtalsverðar hindranir því í vegi að hann leitaði í þær ár. Það sýnist þó ekki útilokað, sérstaklega þegar til þess er litið að fyrir liggur staðfesting Haf- rannsóknastofnunar á því að veiðst hafi eldislax í Vatnsdalsá, sem fellur til sjávar á sama stað og Laxá á Ásum, en ekkert sjókvíaeldi er þar nærri.“ Allir þrír nefndarmenn í fyrri úrskurðinum sátu einnig og úrskurðuðu í seinni úr- skurðinum. Skortur á samanburði valkosta Það sem veldur því að úrskurðarnefndin fellir rekstrarleyfið úr gildi sem Mat- vælastofnun hafði veitt er að aðeins var tekið til umhverfismats sjókvíeldi á lax. Segir nefndin „að ekki verði við það unað að aðeins sé í mati á um- hverfisáhrifum að einungis séu metin umhverfisáhrif eins valkosts.“ Fari af þeim sökum ekki fram sá nauðsynlegi samanburður á umhverfisáhrifum fleiri kosta til þess að leyfisveitandi geti tek- ið upplýsta afstöðu að fullrannsökuðu máli. Snýr þessi gagnrýni einkum að Skipulagsstofnun sem fer með það hlut- verk í umsóknarferlinu að fylgjast með gerð mats á umhverfisáhrifum og gera athugasemdir ef mats fylgir ekki lögum og reglum. Skipulagsstofnun gerði ekki athugasemdir við að aðeins einn kostur var tekinn til mats. Gaf stofnunin út sitt álit á matsskýrinu fyrirtækisins eins og lög mæla fyrir um og segir um það: „Skipulagsstofnun telur að matsskýr- slan uppfylli skilyrði laga og reglugerð- ar um mat á umhverfisáhrifum.“ Úrskurðarnefndin færir svo í löngu mál rök fyrir því að bera þurfi saman mismunandi kosti og vísar til Hæstaréttardóms frá 16.2. 2017 um Suðurnesjalínu 2 til stuðnings þeirri lagatúlkun. Því til viðbótar má vísa á úrskurð úrskurðarnefndarinnar frá okt 2016 varðandi Þeistareykjarlínu. Þar var einmitt framkvæmdaleyfi sveitar- stjórnar fellt úr gildi á sömu forsendu. Skipulagsstofnun vissi Það er athyglisvert að þarna eiga í hlut fjórir aðilar innan framkvæmdavalds- ins eða á stjórnsýslustigi eins og það heitir. Fyrir utan úrskurðarnefndina er það Skipulagsstofnun, sem veitir álit á umhverfismatið, Umhverfisstofnun sem veitir starfsleyfi og Matvælastofn- un sem veitir rekstrarleyfi. Ráðherra skipar alla nefndar- menn. Hann velur formann og vara- formann og fær tilnefningu um aðra frá Hæstirétti. Úrskurðarnefndin hefur lokaorðið og bindur hendur ráðherra. Hins vegar er hægt að bera úrskurðina undir dómstóla. Eftir Hæstaréttardóminn um Suðurnesja- línu 2 og úrskurð nefndarinnar um Þeistareykjarlínu máttu ríkisstofnan- irnar Skipulagsstofnun og Umhverfis- stofnun vita hvernig línurnar lágu sem lagðar voru þarmeð, enda komu þær að Þeistareykjalínu málinu. Þessi vit- neskja lá fyrir meðan leyfisumsóknin var til meðferðar hjá Matvælastofn- un. Þegar Skipulagsstofnun hleypir fram án athugasemda umhverfismati með aðeins einum valkosti var verið að leggja upp í hendurnar á vænt- anlegum kærendum leið til þess að vinna kærumálið. Spurningar hljóta að vakna um framgöngu Skipulags- stofnunar. Matvælastofnun verður líka að skýra það hvers vegna hún lét sem hún vissi ekki af fyrirliggjandi afstöðu úrskurðarnefndarinnar og Hæstaréttar. Úrskurðarnefndin situr uppi líka með óútskýrða stefnubreytingu um rétt til aðildar að kæru. Framkvæmdaaðilar í laxeldi í sjó eiga ekki létt verk fyrir höndum að glíma við fjórhöfða stofnanaþurs þar sem hatrammir andstæðingar laxeldis í sjó virðast vera innanbúðarmenn í lykilstöðum.

x

Vestfirðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.