Vestfirðir - 04.10.2018, Síða 9
9 4. október 2018
Virðulegur forseti, kæru nemendur og aðrir gestir
Það er afar stolt og hamingju-
söm skólastýra sem stendur
hér fyrir framan ykkur í dag.
Síðastliðinn miðvikudag tókum við
á móti þeim 30 nemendum sem fylla
bekki Lýðháskólans á Flateyri á hans
fyrsta skólaári. Nemendum sem ég vil
leyfa mér að kalla kalla íslands- já eða
jafnvel AL-heimsmeistara í stökki.
Leyfið mér aðeins að útskýra.
15. apríl síðastliðinn opnaði Lýðhá-
skólinn á Flateyri fyrir umsóknum og
um leið hófst mikið kynningarátak á
samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum.
Ég geri ráð fyrir að þið sem hér
eruð í dag hafið flest tekið eftir aug-
lýsingum, kynningarefni og fjöl-
miðlaumfjöllun um hinn nýja Lýð-
háskóla? Annað held ég hreinlega að
hafi ekki verið hægt
En ég held að ekkert okkar, nema ef
vera skyldi stjórnarformaðurinn okk-
ar - sem hefur af svona skóla-stofn-
unar-stússi töluverða reynslu - hafi
getað séð fyrir þau jákvæðu viðbrögð
sem skólinn fékk strax í upphafi. Að
umsóknir myndu berast jafn skjótt
og þær gerðu og í því magni sem að
raunin varð.
Það er nefnilega svo að strax í
apríl bárust nærri 25 umsóknir um
skólavist fyrir þetta fyrsta skólaár
Lýðháskólans. Og 20 aðrar fylgdu eft-
ir fyrir 21. júní þegar fresturinn rann
formlega út.
Þegar farið var af stað með kynn-
ingarátakið var skólinn ennþá verk í
vinnslu, og að mestu leiti aðeins til í
höfðinu á þeim brautryðjendum sem
að hugmyndinni stóðu.
Með samhentu átaki og mikilli
samvinnu hafa meðlimir stjórnar
skólans, starfsfólk og óteljandi margir
aðrir, unnið sleitulaust að því að hafa
tilbúna alla þá þætti sem nauðsyn-
legir eru til þess að hefja þetta fyrsta
skólaár.
Og það hefur ekki verið lítið
verk.
Hér hefur verið komið upp glæsilegu
skólahúsnæði sem er ekki lengur bara
hugmynd, heldur raunveruleg um-
gjörð, raunverulegs skóla. Húsgögn,
tölvur og tækni- og hugbúnaður er
fyrir hendi. Námsbrautir og ítarlegar
námskeiðslýsingar, kennslugögn
og gæðakerfi hafa verið útbúin. Og
kennarar, hver og einn sérfræðingur
á sínu svið, manna kennslu á nám-
skeiðum.
Og nú það sem öllu máli skiptir!
Nemendur! Því skóli er jú ekkert án
nemenda.
Og langar mig þá að beina tali
mínu til ykkar, elsku nemendur.
Í júní sendum við ykkur bréf sem
byrjaði á þessa leið:
Áður en þú veist af verður þú kom-
in/n á Flateyri!
Og nú eruð þið hingað komin. Þið
eruð komin heim. Og þá er ekki úr
vegi að bjóða ykkur hjartanlega vel-
komin.
Og komum við þá aftur að útskýr-
ingunni. Á alheimsmetinu í stökki
munið þið!
Á grundvelli þeirra upplýsinga
sem fengust á internetinu og í kjöl-
far símaviðtals sem ég átti við alla
umsækjendur tölduð þið ykkur hafa
nægar upplýsingar til þess að staðfesta
umsókn ykkar og hefja undirbúning
að dvölinni hér í vetur.
Og ég verð að fá að segja
þetta.
Ég hef ávallt verið talin óhrædd við ný
ævintýr, að hella mér út í óvissuna og
dýfa mér í hálftóma sundlaugina.....
elskulegri móður minni til mikillar
hrellingar.
Ég hreinlega veit ekki hvort að ég
þori að viðurkenna það en ég er ekk-
ert endilega viss um að ég hefði þorað
að taka þetta stökk sem þið hafið nú
tekið. Ég dáist að ykkur fyrir að taka
þetta risavaxna stökk, sem krefst svo
sannarlega hugrekkis, áræðni og mik-
ils vilja til þess að takast á við nýjar og
óþekktar aðstæður. Þið eruð hetjur
dagsins! Og þökk sé ykkur er Lýðhá-
skólinn á Flateyri að hefja sitt fyrsta
skólaár.
Flateyri verður heimili okkar
næsta vetur. Þið komið til með að búa
með hópi fólks sem þið hafið líklega
aldrei hitt áður og vera þátttakendur í
afar áhugaverðu og fjölbreyttu samfé-
lagi nemenda, kennara og starfsfólks
Lýðháskólans á Flateyri ásamt íbúum
bæjarins.
Í ykkar fríða flokk hefur valist
fjölbreyttur hópur einstaklinga. Þið
eruð á ólíkum aldri, með ólíkan bak-
grunn, með ólíkar væntingar og ólík-
ar hugmyndir um lífið og það sem við
munum taka okkur fyrir hendur hér
í vetur.
En öll eigið þið það sameiginlegt
að hafa þorað í þetta risastóra stökk.
Þetta fyrsta ár í lífi Lýðháskólans á
Flateyri verður nefnilega sögulegt. Og
tilraunakennt. Og spennandi. Og þið
eruð þátttakendur í því. Já eða öllu
heldur brautryðjendur.
Þið og ykkar vera hér næsta vetur
kemur til með að leggja grunnin að
því sem þessi skóli verður til fram-
búðar. Það er ykkar að móta þann takt
sem settur verður, setja mark ykkar á
þau gildi sem við setjum okkur. Að
glæða skólann og þetta fallega sam-
félag lífi.
Gerið ykkur klár, því þetta verður
eitthvað!
Nú höfum við þegar verið saman
í 2 daga og ég verð að segja að þessar
fyrstu stundir okkar saman lofa afar
góðu.
Ég held að ég geti talað fyrir hönd
okkar Önnu Siggu - kennslustjór-
ans okkar sem hefur verið hér eins
og klettur mér við hlið síðustu 2
mánuði - , fyrir hönd meðlima stjórn-
ar skólans, sem hafa unnið eins og
bersekjar að því að láta þetta gerast,
og fyrir hönd Flateyringa og íbúa alls
Ísafjarðarbæjar, að okkur hlýnar um
hjartaræturnar svo um munar að hafa
loksins fengið ykkur á staðinn. Að
sjá þetta fallega lýðháskólabarn, fæð-
ast og verða að veruleika með ykkar
komu hingað, er ólýsanleg tilfinning.
Við tölum jafnan um Lýðháskól-
ann á Flateyri með því að segja: Svo
miklu meira en bara skóli.
Við höfum lagt okkar að mörk-
um til að tryggja þær undirstöður
sem þörf er á fyrir hvern skóla. En
það verður ykkar elsku nemendur
að glæða hann lífi. Að tryggja að hér
verði ekki bara starfræktur skóli held-
ur eitthvað sem er svo miklu meira en
bara skóli!
Já, þessir fyrstu dagar lofa góðu.
Nemendur eru þegar búnir að skipta
með sér verkum þegar kemur að.
Kosið hefur verið í skemmtinefnd
og íþróttanefnd og settur hefur ver-
ið saman kvikmyndaklúbbur. Yfir 50
hugmyndir hafa þegar komið frá ykk-
ur, elsku nemendur, um viðburði og
önnur skemmtilegheit í samvinnu við
íbúa bæjarins.
Og þá er komið að því að tala
til ykkar kæru íbúa Flateyrar.
Við höfum á síðustu mánuðum oft
fengið þá spurningu hvers vegna Fla-
teyri hafi orðið fyrir valinu sem stað-
setning á nýjum lýðháskóla?
Mér hefur alltaf fundið spurn-
ingin hálf óþörf. Asnaleg eiginlega. Í
mínum huga er svarið nefnilega afar
augljóst.
Flateyri er fullkominn staður fyrir
samfélag tengdu lýðháskóla. Náttúr-
an er hér allt umlykjandi með öllum
sínum möguleikum og auðlindum.
Sjórinn er ávallt innan seilingar,
hér er stutt upp í fjall og á innan við
fimm mínútna göngu ertu kominn
úr alfaraleið, út í óbyggðir. Við slíkar
aðstæður er ekki ólíklegt að hugur-
inn fari á flug, við förum að sjá nýja
möguleika, að úr verði töfrar, sem
geta búið með okkur það sem eftir er
lífsins.
Elsku Flateyringar. Takk fyrir að
leyfa okkur að vera hér. Takk fyrir að
taka okkur opnum örmum!
Lýðháskóli þrífst ekki í tómarúmi.
Hann nærist á því samfélagi sem hann
byggir, gefur vonandi og tekur og
glæðir samfélagið auknu lífi. Að virkja
samfélagið til þátttöku í því starfi sem
fram fer, bæði utan og innan hefð-
bundins skólatíma. Slíkt er markmið
okkar.
Þið hafið svo sannarlega tekið lýð-
háskólanum opnum örmum. Mér er
skapi næst að tala um ættleiðingu
Þetta verkefni hefði ekki orðið til
án samvinnu og þátttöku og við þökk-
um ykkur öllum kærlega fyrir.
Nú svo má ekki gleyma þeim
kennurum sem hafa ákveðið að vera
með okkur í vetur. Áður en opnað
var fyrir umsóknir í apríl höfðum
við þegar sett saman lista yfir um 30
námskeið sem eru mönnuð af yfir 30
kennurum, á 2 námsbrautum sem
verða kenndar í skólanum næsta vet-
ur.
Og ég get lofað ykkur því að
kennarar fengu ekki langan tíma til
umhugsunar. Símtalið barst, þeir
svöruðu kallinu. Vel gert ….. segi ég.
Þakklæti - er okkur sem stöndum
að þessu verkefni - ofarlega í huga fyr-
ir vilja ykkar í að taka þátt og miðla
af þeirri reynslu sem þið búið yfir. Án
ykkar þátttöku stæðum við ekki hér í
dag.
Að lokum langar mig að þakka
stjórn félagsins og ekki síst forsprakka
þessa verkefnis og formanni stjórn-
ar Runólfi Ágústssyni fyrir að hafa
ákveðið að veðja á mig til að taka við
keflinu hér í janúar síðastliðnum og
fyrir það óeigingjarna starf við þetta
magnaða fólk hefur unnið hér síðustu
mánuði og ár.
Að öllu þessu sögðu er aðeins
eitt eftir.
Mig langar til að biðja viðstadda um
að standa upp.
Fyrir hönd stjórnar skólans, nem-
enda, starfsfólks og kennara lýsi ég
Lýðháskólann á Flateyri settann!
Megi skólinn þroskast og dafna
og verða að einhverju stórkostlegu. Já
verða eitthvað sem er svo miklu meira
en bara skóli
Að þessu sögðu langar mig að
biðja viðstadda að ganga úr húsi.
Okkar bíður fjölbreytt dagskrá um
alla Flateyri. Förum í heimsókn!
Helenda Jónsdóttir, skólastjóri.