Vestfirðir - 04.10.2018, Blaðsíða 12
12 4. október 2018
volundarhus.is · Sími 864-2400
Vel valið fyrir húsið þittVH
/1
8-
01
GLÆSILEGT ÚRVAL
AF GARÐHÚSUM á frábærum verðum
Sérframleidd fyrir íslenskar aðstæður. Sérvalin hægvaxta fura,
bjálkinn er 28 - 44 mm með tvöfaldri nót.
Sjá nánar á heimasíðunni okkar volundarhus.is http://www.volundarhus.is/Husin-okkar/Gardhus/
www.volundarhus.is
Ný bók:
Á mörkum mennskunnar
Út er komin bókin Á mörkum
mennskunnar. Viðhorf til
förufólks í sögnum og sam-
félagi, eftir Jón Jónsson þjóðfræðing.
Af þessu tilefni var haldin kynning á
bókinni og útgáfufögnuður í Háskóla
Íslands þar sem Jón flutti erindi um
efnið þann 11. september. Mæting var
með miklum ágætum og fjörugar um-
ræður urðu að framsögunni lokinni.
Bókin kemur út í ritröðinni Sýnisbók
íslenskrar alþýðumenningar og er
númer 23 í þeirri ritröð. Í kynningu
á bókarkápu segir: Sögur af sérkenni-
legu fólki hafa lengi heillað Íslendinga.
Þar á meðal eru fjölbreyttar sagnir
um fátækt förufólk sem flakkaði um
landið fyrr á öldum. Hér er fjallað
um þessar frásagnir og stöðu flakkara
í samfélaginu fram á 20. öldina. Þeir
voru umtalaður hópur, rækilega jaðar-
settur og oft líkari þjóðtrúarverum en
manneskjum í sögunum. Hörmulegt
atlæti Stuttu-Siggu í æsku, skringi-
leg skemmtiatriði Halldórs Hómers,
rifin klæði Jóhanns bera og uppreisn-
arseggurinn Sölvi Helgason koma
öll við sögu. Jón Jónsson er þjóð-
fræðingur sem býr og starfar norður
á Ströndum, hann hefur unnið að
margvíslegum nýsköpunar- og mið-
lunarverkefnum á sviði þjóðfræði og
starfar nú hjá Rannsóknasetri Háskóla
Íslands á Ströndum - Þjóðfræðistofu
sem hefur aðsetur á Hólmavík. Hann
var áður menningarfulltrúi Vestfjarða
og rak fyrirtækið Sögusmiðjuna.
Myndir: Háskóli Íslands.