Vestfirðir - 04.10.2018, Side 16
3.400 eintök á öll heimili og fyrirtæki á Vestfjörðum
12. tölublað
7. árgangur
Meltu betur!
Enzymedica 47x90 Digest Gold kubbur meltu copy.pdf 1 17/04/2018 12:29
Umhverfisráðherrann Guð-
mundur Ingi Guðbrandsson
tók upp þá nýbreytni að veita
fjölmiðlaverðlaun ráðuneytisins. Fengu
þau tveir læknar Tómas Guðbjartsson
og Ólafur Már Björnsson sem sérstak-
lega hafa lagt sig fram um að vinna gegn
Hvalárvirkjun. Segir í rökstuðningi að
þeir hafi nýtt sér samfélagsmiðla og aðra
fjölmiðla til þess að koma efni sínu á
framfæri og „að með því hafi þeir haft
bein áhrif á að lítt þekktar náttúruperlur,
svo sem fossaröð á fyrirhuguðu fram-
kvæmdasvæði Hvalárvirkjunar, hafa
komist í almenna umræðu.“ eins og seg-
ir á vef ráðuneytisins.
Það er í sjálfu sér stórmerkilegt að
pólitískur ráðherra veit verðlaun fyr-
ir dugnað í því að beita fjölmiðlum
til framdráttar tilteknum pólitískum
skoðunum. Það er svo enn merkilegra
að stóru landsfjölmiðlunum skuli ekki
finnast neitt athugavert við þessa mis-
notkun á fjölmiðlum Telja fréttamenn
eðlilegt að veita verðlaun fyrir að „nýta
fjölmiðla“ í umfjöllum um virkjanamál?
Finnst fjölmiðlum það eðlilegt að ráð-
herrar veiti viðurkenningar fyrir þókn-
anlega umfjöllum um pólitísk deilumál?
Það er svo rétt að rifja upp þessa
merkilegu umfjöllum læknanna sem er
verðlaunuð. Þar bar hæst greinaskrif í
blöð um Hvalárvirkjun í ágúst og sept-
ember á síðasta ári. Þar var farið með
staðlausa stafi og reynt að villa um fyr-
ir lesendum. Því var t.d. haldið fram að
almenningur hafi verið blekkur með
því að gefa upp rangar upplýsingar í
matsskýrslu um umhverfismat vegna
Hvalárvirkjunar og þannig hafi málinu
verið „laumað“ í gegnum Rammaáætl-
un 2. Kröfðust þeir að umhverfismatið
yrði endurtekið. All var þetta rangt.
Gögn málsins eru öll opinber og sýnt
var fram á að réttar upplýsingar voru
veittar á öllum stigum málsins. Samt
veitir ráðherrrann sem er á móti virkj-
uninni þeim verðlaun fyrir ósannindin
og rangfærslurnar. Eru Vinstri grænir
alveg gengnir af göflunum?
Úlfurinn í
sauðargæru
verðlaunaður
Fyrir bílinn 14. september 2018 KYNNINGARBLAÐ
Smur og dekk þjónar háum og lágum;
fyrir tveimur árum þurfti forsetabíllinn
aðstoð.
BÍLAVERKSTÆÐIÐ SMUR OG DEKK:
Dekkjaþjónusta, almennar
viðgerðir og dráttarbílaþjónusta
Hér eru margar brekkur og fjöll
og því eru um 85% ökumanna
hér á negldum dekkjum yfir
veturinn. Það fer eftir tíðafari hvenær
vertíðin hefst en ef það byrjar að
snjóa fyrir lok september þá er ljóst
að fólk bíður ekki með að fara á
nagladekkin,“ segir Páll Heiðar Hauks-
son, eigandi Bílaverkstæðisins Smur
og dekk, Aðalstræti 3, Patreksfirði.
Páll er meistaralærður bifvélavirki
og hefur rekið verkstæðið í 17 ár. Auk
hans eru þar tveir starfsmenn. „Núna
fara vetrarverðlistarnir úr Reykjavík
að detta inn og fólk fer að hafa sam-
band og panta sér dekk. Við seljum
aðallega dekk frá Sólningu og Bílabúð
Benna og bjóðum að sjálfsögðu líka
upp á dekk frá fleiri aðilum. Það má
geta þess að öll dekk kosta það sama
hjá mér og í Reykjavík, þ.e.a.s. það er
enginn auka flutningskostnaður,“ segir
Páll.
Verkstæði hans þjónustar sunnan-
verða Vestfirði og segir Páll að það
sé mikið að gera allt árið. „Mest er að
gera á sumrin þegar túristarnir bæt-
ast við. Það róast örlítið í september
og þá höfum við tíma til að taka til.
Svo byrjar dekkjavertíðin.“
Smur og dekk sinnir öllum almenn-
um bílaviðgerðum og þjónustar allt
frá sláttuvélum og upp í vörubíla, að
minnsta kosti hvað snertir minnihátt-
ar viðhald. Góður lager varahluta
er til staðar, til dæmis olíusíur og
bremsuklossar, en síðan er pantað
eftir þörfum og er biðtími stuttur.
„Það er ekki löng bið hér eftir
viðgerð en ég reyni að forgangsraða
eftir þörfum viðskiptavina,“ segir Páll.
Verkstæðið er vel búið tækjum og
er til dæmis með aflestrartölvur og
bilanagreiningatölvur.
Fyrir utan viðgerðir og dekkjaþjón-
ustu hjálpar Smur og dekk vegfar-
endum sem festast í snjónum í vetur
en fyrirtækið er með dráttarbílaþjón-
ustu og hefur auk þess til reiðu 37
tommu jeppa með spili. „Trygginga-
félög og FÍB leita til okkar þegar fólk
festir bílana sína hér fyrir vestan,“
segir Páll.
Nánari upplýsingar eru í síma
4561144 eða í gegnum netfangið
palli@patro.is.
Í DESEMBER ER
STARFSEMIN AÐ
FLYTJAST Í NÝTT
HÚSNÆÐI SEM ER
VERIÐ AÐ BYGGJA.
ÖLL NAGLADEKK OG VETRARDEKK KOSTA ÞAÐ SAMA
OG Í REYKJAVÍK. ENGINN FLUTINGSKOSTNAÐUR
BÆTIST VIÐ.