Sameiningin - 01.03.1911, Side 49
3i
í höll sinni, en Jóram sonr hans gegndi konungsstörfum. —- Sjáum,
hve hættulegt er dramblæti. BiSjum guö aö gefa oss auíSmjúkt
hjarta. Sjá Lúk. 18, io—14; Jak. 4, 6.
B E N H Ú K .
Fjórða bók. (Framhald).
SJÖTTI KAPÍTULI.
Endrminning.
Ben Húr fór inní skóginn með fólkinu hinu, sem þang-
að streymdi. Fyrst í stað haftii hann ekki sinnu á að
spyrjast fyrir um það, hvert fólkið væri að halda. Til
þess þó að lenda ekki í algjöru sinnuleysi fór hann aö
hugsa sig um, og hafði þá eitthvert veðr af því, að fólkið
væri á leið til hofanna, sem allt í Lundinum snerist um,
enda höfðu helgidómar þeir meira aðdráttarafl en sérhvað
annað.
Brátt tók Ben Húr að hafa upp fyrir sér orðin: ‘Betra
að vera ormr og hafa mórberin í Dafne-lundi til átu en
að vera gestr hjá lconungi’. Og var þá fyrir honum einsog
söngmönnum, sem í nokkurskonar leiðslu eru að leika sér
að flögrandi viðkvæði. Af marg-ítrekaðri endrtekning orð-
anna leiddi það, að ýmsar spurningar risu upp í huga hans,
sem skilyrðislaust kröfðust svars. Var svo frábær unaðr að
því að hafast við í Lundinum? Hvað var það, sem mönnum
þótti þar svo yndislegt? Var það fólgið í djúpi flókinnar
"heimspeki? Eða var það eitthvað verklegt, eitthvað hið
ytra, sem vakandi hverndagsmenn gátu með skilningar-
viturn sinum gjört sér grein fyrir? Árlega gaf, fólk sig
svo þúsundum skifti fram til þjónustu þar og hafnaði
heiminum með öllu. Hlotnaðist þeim mönnum yndi það,
er þeir sóktust eftir? Og dugði sú nautn, er hún hafði
þeim hlotnazt, til þess að leiða inní sálir þeirra svo djúpa
gleymsku, sem til þess þurfti, að útiloka úr huganum allt
liið ýmislega og óendanlega margbreytilega, er snertir lífið?
það, sem gjörir það indælt, og það, sem gjörir það ömur-
légt? vonirnar um nálæga framtíð, sem rísa upp í sjón-
deildarhringnum, eigi síðr en sorgir þær, sem liðinn tími
hefir af sér getið ? Ef svo mikil sæluvist var í Lundinum
fyrir þá, hví myndi ekki einnig fyrir hann gott að vera
þar? Hann var Gyðingr; var hugsanlegt, að ágæti lífsins
væri ætlað öllum í víðri veröld nema börnum Abrahams?
Þegar undir eins beitti hann öllu afli sálar sinnar til þess