Muninn - 01.08.2018, Side 106
Hæhæ, Júlíus Þór heiti ég og ætla ég að segja ykkur frá ótrúlegri reynslu minni sem
skiptinemi í Póllandi. Ég fór á seinasta skóla ári á vegum AFS. Algengasta spurningin
sem ég fæ er: Af hverju Pólland? Það var þannig að mig langaði
mjög að fara í skiptinám og sá ég svo auglýsingu þar sem boðið var upp á fullan
styrk til Póllands. Þá vissi ég ekki mikið um landið sem gerði það bara enn meira
spennandi, þannig ég fyllti út skilyrðin og áður en ég vissi var ég á leiðinni út.
104
Ég fékk fósturfjölskyldu sem bjuggu í Varsjá höfuðborg
Póllands og náðum við fjölskyldan fljótt vel saman. í fyrstu
/ fyrstu líkaði
mig ekkert
svo vei við
borgina"
líkaði mig ekkert svo vel við borgina.
Allur þessi fjöldi manna, endalausa
traffíkin voru helstu atriðin, en með
tímanum lærði ég að elska hana. Að
flytja inn í nýtt land, aðlagast nýrri
menningu er alls ekki auðvelt og komu upp ýmsir erfiðleikar.
Tungumálið var eitt erfitt dæmi, fyrstu mánuðinna talaði ég
litla sem enga pólsku þar sem tungumálið er mjög erfitt. En
með því að reyna að tala og hlusta á tungumálið kom þetta
hægt og rólega. Einn daginn þegar ég var orðinn sæmilegur
í pólsku var ég beðinn að fara í pólskt sjónvarp þar sem ég
talaði í beinni útsendingu um hvernig ég hefði lært pólsku,
það fór skrautlega... En í dag tala ég fína pólsku.
? . .... Ég var mjög heppin að fá að
" ' heilclJna ferðast mikið um landið og
fór ég í um önnur í kring. í heildina fór
20 ferðalög " ég í um 20 ferðalög og kom
tímabil þar sem ég fór ekki í
skóla í nánast tvo mánuði.
Ég fór í 3 daga kajak ferð niður í norðurhluta
Póllands, allar helstu borgir Póllands, til Búdapest
með ítölskum vini og fór í veiðiferð þar sem ég svaf
í hengirúmi sem ég og host-bróðir minn bjuggum
til úr fiskneti. Eignaðist ég vini um allan heim og sé
til með að fara í reisu þar sem ég fæ þau til að hýsa
mig.
Eg á ótrúlega mikið af skemmtilegum og
fallegum minningum frá skiptináminu mínu
sem ég mun aldrei gleyma. Þær efasemdir
sem ég var með fyrir skiptinám eins og
að verða einu ári á eftir eða að missa af
viðburðum hérvoru áhyggjuefni, núna eru
þær fórnir svo litlar miðað við reynsluna sem
ég fékk frá náminu. Þannig þegar uppi er
staðið er skiptinámið mín reynsla sem er mér
ómetanleg.