Heima er bezt - 01.06.2007, Qupperneq 5
Freyja Jónsdóttir:
Alltaf nóg að gera
r
Rœtt við Valdimar Olafsson fyrrverandi yfirflugumferðarstjóra
r
g er fæddur 13. ágúst árið 1926 að Mosvöllum í Bjam-
ardal í Mosvallahreppi í Önundarfírði.
A Mosvöllum var forðum sýslumannssetur og þar
bjó eitt sinn sýslumaðurinn Sigurður Skuggi.
Systkini mín eru öll yngri en ég, Ingileif Steinunn, f. 1931,
bóndi að Bólstað í Bárðardal, móðir tveggja sona og þriggja
dætra. Kristján Guðmundur f. 1938 en náði aðeins 25 ára
aldri og Gestur, f. 1941, arkitekt og skipulagsfræðingur og
á tvo syni og eina dóttur.
Eg fæddist og ólst upp í bænum sem Guðmundur móðurafi
minn, f. 1877 að Saurbæ í Alftafirði, byggði, en hann var
kallaður Gummi Mosi, kenndur við bæinn. Móðuramma
mín var Guðrún Jóna Guðmundsdóttir, fædd að Kirkjubóli,
næsta bæ við Mosvelli, 8. janúar 1873.
Móðir mín, Ragnheiður, f. 25.10. 1902 á Mosvöllum, var elst
af systkinahópnum, næst kom Halldóra Olöf netagerðarkona og
formaður Nótar, félags netagerðarfólks. Hún bjó í Reykjavík
en vann allmörg ár á Siglufírði á sumrin. Halldóra var mikill
skörungur og lét til sín taka á Alþýðusambandsþingum og
vann ötullega að bættum hag láglaunafólks. Hún eignaðist
aðeins eina dóttur en samt eru afkomendur hennar orðnir
margir.
Næst var Ingileif Steinunn, það er ættarnafn, því að langamma
hét því nafni. Hún var móðir Guðrúnar ömmu okkar. Hún
bjó á Kirkjubóli í Bjarnardal í Önundarfírði. Guðmundur
Ingi Kristjánsson skáld og Ólafur Þ. Kristjánsson, lengi
skólameistari í Flensborg, voru systkinabörn þeirra því að
Mosvallabœrinn.
Fimm frœndsystkini, brœður Valdimars, Kristján og
Gestur, Guðmundur og Þorvaldur synir Olafs móður-
bróður hans og Ebba dóttir Margrétar móðursystur.
Guðrún var systir Kristjáns, föður þeirra. Ingileif eignaðist
tvær dætur og einn son. Ólafur Eggert var eini bróðirinn,
hann eignaðist eina dóttur og ljóra syni. Margrét er yngst
systkina mömmu og sú eina þeirra sem enn er á lífi, 94ra
ára gömul. Hún bjó lengi á Hóli í Önundarfirði og eignaðist
einn son og fimm dætur.
Það var dálítið sérstakt með næstu Mosvallahjón á undan
Guðmundi afa og Guðrúnu ömmu, þau Gils og Guðmundínu,
að þau eignuðust ekki börn íyrstu árin, en vinahjón þeirra í
Álftafirði, Bjarni Jónsson og Guðrún Jónsdóttir gáfu þeim
son sinn sem Guðmundur hét. En sá drengur dó ungur.
Þá gefa þau þeim næsta son sem þau eignuðust. Það er sá
Guðmundur sem er afi minn. Hann var borinn yfir heiðar
frá Álftafirði yfir í Korpudal í Önundarfirði og þaðan að
Mosvöllum. Þegar konan fer að fóstra drenginn og halda
honum í fangi sér, verður hún fljótlega ófrísk og eignast dreng
sem var skírður Guðmundur og var faðir Gils Guðmundssonar
rithöfundar.
Einn bræðra Guðrúnar ömmu hafði réttindi í íjórum
iðngreinum. Hann var kallaður Gummi skói og bjó lengi
á Flateyri. Hann flutti síðan til Hafnartjarðar og á síðustu
árum ævi sinnar var hann elsti borgari þar, skorti tvo mánuði
til að ná 100 ára aldri.
Heima er bezt 293