Heima er bezt - 01.06.2007, Blaðsíða 23
VICTORY
Frægasta skip breska flotans
HMS Victory, er eitt
frœgasta skip í sögu breska
flotans, og best þekkt
sem flaggskip Nelsons
flotaforingja, í orrustunni
við Trafalgar, 21. október
1805.
Skipið er til enn í dag,
og er geymt í höfninni í
Portsmouth i Englandi.
Er það án vafa elsta
orrustuskip sem til er.
Skipið var byggt árið 1759, og var
öflugasta orrustuskip sinnar tíðar,
með þrjú fallbyssuþilför, er báru
104 fallbyssur. Hönnuður skipsins var
Sir Thomas Slade, landmælingamaður
hjá flotanum. HMS Victory tilheyrði
s.k. efsta flokki herskipa, en til þess að
komast í þann flokk urðu þau að hafa
meira en 800 manna áhöfh og vera yfir
2000 tonn að stærð.
Bygging skipsins kostaði hvorki meira
né minna en 63.176 pund, sem áætlað er að
vera á núvirði nálægt 2,5 milljörðum
Victory var sjósett árið 1765, en ekki
var lokið við smíði þess fyrr en 1778.
Þetta hlé, sem varð á smíði skipsins, varð
til þess að viðurinn sem nota átti í það,
veðraðist mjög vel, þar sem hann var
geymdur á byggingarsvæðinu og er það
m.a. talin ein ástæða þessarar löngu og
góðu endingar þess.
Victory var í þjónustu flotans í nærri
því íjörtíu ár, og var þekkt fyrir góða
sjóhæfni. Skipið var flaggskip margra
flotaforingja, þ.á.m. Kempenfelt, Howe,
Hood, Jervis og Saumares. Það tók þátt í
orrustu við Ushant eyju á Ermarsundi árið
1781 og St. Vincent höfða við Portúgal,
1797. Eftir það var skipið dæmt óhæft
til frekari þjónustu og gefin út skipun
um að því skyldi breytt í spítalaskip. En
sú ákvörðun var dregin til baka þegar
amiað skip í sama flokki, Impregnable,
fórst árið 1799. Þá var farið í verulega
endursmíði og viðgerðir á skipinu og var
það verk unnið í Chatham á Bretlandi á
árabilinu 1800-1803. Kostaði sú viðgerð
Heima er bezt 311