Heima er bezt - 01.06.2007, Síða 34
Kláfferja. Oftast er aðeins einn í kláfnum. Granna taugin
er dráttartaug.
Þaraa er ferðatíminn nákvæmlega tiltekinn. Hann fer um
hádegi frá Vopnafírði og er kominn um miðaftan á Jökuldal
að Hákonarstöðum, en þá er fákurinn fullreyndur og hnígur
niður örmagna.
I þjóðsögunni segir að Arni hafi keypt tvo úrvalsgæðinga
í Vopnafirði, og hafi þeir báðir verið þrotnir, er hann kom
að einhverjum bæ á Jökuldal.
Frá hádegi til miðaftans eru réttir 6 klukkutímar. — Líklega
hefur Ami farið svonefnda Tunguheiði, og er komið á Jökuldal,
ekki alllangt frá Hákonarstöðum. Ekki hef ég farið þessa leið,
en eftir athugun á íslandskorti ætti þessi frásögn í kvæðinu
að geta staðist.
En á Hákonarstöðum byrjar ævintýrið. Þar fær Ámi þennan
úrvalsgrip, sem ber hann að Þingvöllum á þremur dægrum
eða 36 klukkustundum, ef farið er eftir frásögn þjóðsögunnar.
Ekki hef ég athugað vegalengdina nákvæmlega, en líklega er
leiðin um 270 km, og hefur því Ámi farið 90 km á hverjum
12 stundum. Ekki er þessi hraði ofviða traustum hesti í eitt
dægur (12 stundir), en frábært afrek af einum hesti í þrjú
dægur.
Kvæðið segir svo frá því, er Ámi sér gæðinginn, er hestar
eru reknir heim á Hákonarstöðum, og falar hann af bónda.
En bóndi telur að Ámi sé hestaníðingur og lætur ekki folann
falan. Þó fer svo að lokum, er bóndi hefúr heyrt sögu Áma
og veit, að hann er sonur biskupsins, að hann lætur undan
og segir Árna að taka gæðinginn. Var hann þá handfljótur
að taka hnakkinn af örmagna reiðskjótanum og leggja hann
á brúna, sívala gæðinginn, enda hafði Árni þá boðið fyrir
hann þrjár jarðir, sem voru eign biskups á Austurlandi, og
bóndi hefur vafalaust kannast við.
Næsti áningarstaður Áma er hjá „kvíunum fremri á Brú“,
eins og segir í kvæðinu, en Brú er efsti bær á Jökuldal, og
þaðan hefur Ámi lagt á öræfin. — En gamla konan við
kvíarnar á Brú þekkir gæðinginn. Hún lætur líka hestinn
njóta þess og gaf honum fulla fötu af mjólk og stakk upp
í hann smjörsköku (þ. e. smjörtöflu), er hann hafði lokið
mjólkinni. Gamla konan segir Áma að hún hafi alið hann í
búrinu hjá sér og oft gefið honum mjölköku og smjörbita.
„Eg breiddi á þig brekán um nætur, í búrinu mínu þú
gekkst,“
segir hún og klappar folanum blíðlega. Og enn hjalar
hún við hestinn:
„Og allt er það öðmm að kenna, að ungur þú barst frá
mér, því skálkur um skuld mig krafði, en skuldin var greidd
með þér.“
Árni kvaddi svo gömlu konuna og gaf henni gullpening, „og
hæverskur hattinum lyfti og heldur svo vestur frá Brú.“
Enn rekur kvæðið ferðasöguna, þar til Ámi nálgast Þingvöll
og liðin em þrjú dægur. Hann ávarpar þá gæðinginn og
hvetur hann til að duga vel síðasta áfangann og segist skuli
láta hann njóta þess.
„Þá skal ég ei bera þér bitil í munn, né beita þig spomm
á ný.“
Þegar svo Árni loks þeysir inn á Þingvöll, taka sveinar
biskups á móti honum, því að þeir hafa þekkt hann álengdar,
og biður Árni þá að hlynna vel að hestinum og koma honum
í haga. Brúnn var leimgur og nær örmagna eftir síðasta
sprettinn, en þó segir svo í kvæðinu, og á það að sýna, að
ekki hafi fjör gæðingsins verið alveg þorrið:
„ Og sveinarnir biskupsins fara með fák,
og flestum ber saman um það,
að þá hafi betur ei borið neinn klár,
né brunað eins vakurt í hlað. “
Þegar Ámi kemur inn á þingið, er spurt í þriðja og síðasta
sinn, hvort nokkur sé til andsvara í málum Odds biskups.
„ Þá gengur fram maður einn mikill og hár,
og mannfjöldinn kennir hann strax.
Hann yrðir á Herluf og alvara ströng
á enninu hvelfda er skráð:
,,Já, eg er hér vístfyrir alföður náð,
en ei þína, Herleg-dáð. “
Málum biskups er bjargað. Höfuðsmaður fellur í ónáð hjá
konungi, en Árni Oddsson verður lögmaður mikils metinn.
Og það er hann, sem hnípinn og sorgmæddur neyðist til
að skrifa undir „einvaldsskuldbindinguna“ í Kópavogi árið
1662. — Þremur árum síðar, árið 1665, er hann látinn.
En þá víkur sögunni að Jökuldal og Jökulsá á Dal.
Hinn 7. mars 1944 var ég staddur á bæ þeim, er heitir
Hallfreðarstaðahjáleiga í Hróarstungu og er á leið upp á
Jökuldal. Veður er ágætt. Suðvestan gola og sólskin. Hlýr
ljallaþeyrinn leikur ljúft um vanga. Undanfarna daga hafði
verið hörkufrost og harðviðri um allt Hérað. Stórfljót öll,
ár og lækir eru á hellugaddi og glampandi hjamið ginnandi
322 Heima er bezt