Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2007, Síða 12

Heima er bezt - 01.10.2007, Síða 12
Steindór við Trabantinn. kjaftinum. Hundakvikindin höfðu notað tækifætið og slegið upp veislu. Þetta varð hálfgert leiðindamál. Við vorum með tjöldin skammt frá Unaðsdal rétt við Kaldalón, þar sem Sigvaldi Kaldalóns, tónskáld og læknir, átti heima. Við vorum líka inn á Nauteyri og víðar á þessum slóðum. A Nauteyri vora draugar en ég kynntist þeim ekkert. Hann Þórbergur segir frá þeim í einhverri af bókunum sínum. Þegar ég var að vinna við símann í Húnavatnssýslum vorum við með tjöldin skammt frá brúnni yfir Miðfjarðará. Við fóram stundum heim að Reykjum í Miðfirði, bæ sem er stutt ffá þar sem tjöldin vora. Þar var jarðhiti og myndarlega búið. Mig minnir að við höfum keypt þar mjólk. Einnig man ég vel eftir Stóra-Osi, bæ sem er skammt frá brúnni. Þar var mikið sómafólk. Báðir þessir staðir vora góðir kaffíbæir. Við kölluðum það góða kalfíbæi þar sem okkur var boðið kaffí og meðlæti. Einn kaupmaður á Hvammstanga varð mér minnisstæður, Sigurður Davíðsson, sem verslaði í skúr og átti annan skúr sem hann nefndi Norðurbraut og stóð sá skúr á holtinu við veginn hjá Stóra-Ósi. Þar era vegamót og liggur annar vegurinn norður í gegnum Línakradal í áttina til Akureyrar. Hinn vegurinn liggur út í þorpið Hvammstanga. Sigurður sem hafði fengið viðumefnið, smávegis, verslaði í Norðurbraut á sumrin og þá fóra fáir framhjá án þess að kaupa sér eitthvað. Sigurður átti bróður sem var kallaður Ói, hann var vörabílstjóri og besti maður sem öllum vildi gott gera. Heimspekingurinn Gunnar Dal er sonur Siguróar kaupmanns. Þegar ég fór að vinna við símann var kominn sími á flesta eða alla þéttbýliskjama á landinu. En víða voru sveitabæir án síma. Það var algengt að símstöð var á einhverjum einum bæ í miðri sveitinni og þangað fór fólk á nærliggjandi bæjum ef það þurfti á síma að halda. Við voram mikið í því að leggja síma um sveitir heirn á hvem einasta bæ, bæði fyrir norðan og vestan og einnig yfír fjallvegi. Ég kynntist mörgu góðu fólki í sveitum landsins Ekið var aftan á Trabantinn. þessi ár sem ég var hjá símanum. Á sumum bæjum var mikið til af bókum sem gott var að fá lánaðar. Mér þótti alltaf gaman að lesa. Ég var m.a. við að leggja símann í Svínadalnum í A- Húnavatnssýslu. Við vorum með tjöldin okkar rétt við bæinn Svínavatn en þar var símstöð og kirkjustaður. Við bæinn er mikið vatn sem heitir Svínavatn. Þar var talsverð silungsveiði. Við voram líka að leggja línur í Blöndudal sem er næsti dalur við Svínadal en austar, nær Vatnsskarðinu. Auk þess að vera að leggja nýjar línur um landið fóru símamenn með eldri línunum og gerðu við ef þess þurfti. Þá var ég líka í Skagafirðinum að leggja línur í Blönduhlíðinni og við lögðum síma úti á Skaga og voram með tjöldin hjá Hrauni á Skaga. Þá kynntist ég Guðrúnu frá Lundi og hennar manni. Þau bjuggu þá á Malarlandi. Við keyptum mjólk hjá þeim. Á þessum tíma var róið frá öllum bæjum á Skaganum. Maður Guðrúnar hafði smíðað sér bát úr einum drumbi, sem rak á fjöru hjá honum. Það var mikill reki á Skaganum og þar ráku heljarstór tré, líklega hafa þau komið alla leið úr skógum Síberíu. í gamla daga kepptist biskupsstóllnn við að kaupa sem flestar jarðir sem voru með reka. Við vorum að vinna við símalagnir og viðgerðir í Laxárdalnum og sóttuin mjólk á bæinn Skinnastaði. Þar haföi alist upp stiilka sem var systir Stefáns Islandi. Þetta var falleg stúlka en því miður man ég ekki nafftið á henni lengur en hún var kölluð Ninna. í Húnavatnssýslum og Skagafírði eru afar grösugar sveitir og mjög fallegt. Ég byrjaði að vinna hjá símanum upp úr 1930 og var þar til um 1940. Eftir að þú hœttir að vinna hjá símanum hvað fórstu þá að gera? „Já, þá fór ég að keyra vörabíl sem ég átti sjálfur. Ég kom honum upp á land, mig minnir á Stokkseyri. Síðan fór ég að 492 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.