Góðan daginn - 09.06.1944, Page 1

Góðan daginn - 09.06.1944, Page 1
III. árgangur Útgefandi og ábyrgðarmaður: HÁNNES JÓNASSON Föstudaginn 9. júní 1944 5. tölublað LÝÐVEL0ISK0SNINCS8NÍR Tuttugasti maí rann upp, hátignarskær og fagur, háheilagur fyrir Siglfirðinga í tvöfaldri merkingu. Útvarpið tilkynnti alveg sérstaklega að Siglfirðingar héldu 20. maí hátíðlegan svo sem vanarlega. Hátíðahöldin fóru fram á þann hátt, að öllum sölubúðum var lokað, einnig póst- húsi, og Jón Gunnarsson gaf öllu verksmiðju- fólkinu frí, sennilega með fullu kaupi. Bankarn- ir mundu líka hafa lokað, ef þeir hefðu þorað, en slæðingur gat verið af víxlum, sem þyrfti að afsegja þennan dag. Hjá almennum borgurum mun hafa verið etinn venjulegur laugardags- matur, en hjá „the upper ten“ mun hafa verið eitthvað út að brugðjið, máske snaps með matnum eða eitthvað þess háttar. Þetta voru hátíðahöldin hinn siglfirzka 20. maí í þetta sinn. Má segja, að deginum hafi verið fullkominn sómi sýndur þó ekki væri með öðru en gefa hinu langhrjáða og þrautpínda verzlunarfólki frí, og því þar með gefið tækifæri til þess að skemmta sér ofurlítið sér til andlegrar og líkamslegrar hressingar. En það var önnur hlið á þessum merkisdegi. Þá um morgunin byrjuðu atkvæðisgreiðslur um stofnun lýðveldis á íslandi og um hina — af mörgum töldu — vansköpuðu stjórnarskrá, sem þó Sigurður Kristjánsson í Sparisjóðnum full- yrðir, að muni standa til bóta þegar tímar líða fram, eða í síðasta lagi árið 1998, með öðrum orðum þegar ,,tíð“ Jónasar Guðmundssonar, á- búanda á Vörðubrotum, endar. Vér vorum snemma á ferli þennan dag eins og reyndar ævinlega , því oss þykir loftið heil- næmt á morgnana áður en leiðtogar lýðsins hafa mengað það með pólitískri fýlu. Vér vildum líka sýna þegnskap vorn og ættjarðarást með því að vera með þeim fyrstu, er greiddu atkvæði í þessu langstærsta velferðarmáli þjóðarinnar, Því hvað er það, þótt vér búum við dýrtíð, skipa- leysi, kolaleysi, smjö/leysi, rafmagnsleysi og hálfbrjálað verðlagseftirlit, ef vér getum stofnað lýðveldi, fengið forseta og losnað við kónginn! Sigurður Árnason opnaði dyrnar að kjörsaln- um fyrir oss og hneygði sig um leið með mikilli hæversku. Ekki hafði hann þarna neitt Alþýðu- blað undir hendinni. Blasti þá við oss kjörstjórn- in. Sat þar lengst til vinstri Sigurður Gunn- laugsson, hátíðlegur á svip, og var auðséð, að hann tók hlutverk sitt alvarlega. Næstur hon- um sat Jóhann Þorvaldsson og þá Ásgrímur Albertsson, hinir slyngu og orðkænu ritstjórar, sem eru svo leiknir að gera svart hvítt og hvítt svart. Þessir tveir síðastnefndu brostu blíðlega hvor til annars með þeim munnvikjunum, er saman sneru, en hin er frá sneru voru harð- saman kipruð af pólitískri andúð. Tvær konur, ungar og broshýrar, voru í salnum, sín hvoru megin, til yndisauka og augnagamans fyrir kjós-r endur. Fjöldi annarra starfsmanna við atkvæða- greiðsluna var þarna inni, og mun ekki aftalið að verið hafi 12 manns. ^ Jóhann Þorvaldsson rétti atkvæðaseðilinn alvarlegur á svip, svo sem vera ber, en vér lut- um höfði er vér tókum á móti plagginu, gengum síðan inn í kjörklefann og krossuðum fast og innilega eftir bezíu sannfæringu. Auk þeirra, er í kjörsal stórfuðu, var fjöldi annarra manna við eftirlit, smölun og fleira, er við þurfti. Má þar fyrstan til nefna Pál Erlends- son, skrifstofustjóra nefndar þeirrar, er sá um undirbúning atkvæðagreiðslunnar.. Fékk Páll almannalof fyrir röggsamlega frammistöðu, ljúf mannlega framkomu og ástúðlegt viðmót. Tók hann á móti hverjum manni, er til hans leitaði um upplýsingar, með sætasta lýðvt Idisbros á vörum, stjórnarskráreld í augum og dósirnar í frámréttum höndum. Starf Páls var með annars fólgið í því að sjá um, að þeir kjósendur væru kærðir inn á kjör- skrá, er þar vantaði og þar áttu að vera. Gekk Páll þar duglega fram og má áreiðanlega þakka honum það, að vér bárum af öllum öðrum kaup- stöðum um þátttöku í atkvæðagreiðslunni. Um það var þetta kveðið: Siglufjörður forystuna hlaut, í fyrsta sinn hann býr í heiðurs skini, hann margra góðra manna þar til naut, þó mest skal þakka Páli Erlendssyni. Framhald á 2. síðu.

x

Góðan daginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Góðan daginn
https://timarit.is/publication/1868

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.