Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 04.01.1969, Page 27
íþwóttit
íþróttalíf hefur veriö heldur dauft í skólanum, og stafar það
í og með af takmörkuðum áhuga nemenda. Samt sem áður
hafa nokkrir kappleikir verið haldnir innan skólans en engir
utan hans, en vænzt er, að úr því rætist nú eftir ára-
mótin.
Knattspyrnumót skólans hófst í byrjun þessa skólaárs og
háðir voru nokkrir kappleikir, en þar sem því er eigi lokið
ennþá er óvíst um úrslit þess. Einnig var haldið handknatt-
leiksmót f fþróttahúsi Vals og var það milli bekkjadeilda.
ÍJrslit urðu þau að A-lið 4 bekkjar bar sigur úr býtum jrfir
öllum sfnum mótherjum. Snemma f haust byrjuðu æfingar
í körfuknattleik, og hafa þær verið sæmilega sóttar, og er
skorað á alla þá, sem áhuga hafa á körfuknattleik að mæta
til æfinga. Þjálfari er Erlendur Magnússon, og hann veitir
leiðsögn eftir beztu getu. Einnig eru byrjaðar æfingar fyrir
þær stúlkur, sem hafa áhuga fyrir handknattleik. Ætlazt
er til að þær noti þann tímá, sem þeim er fengin til um-
ráða sem beat til æfinga, og mæti vel.
Fyrra sundmót skólanna var haldið í Sundhöll Reykjavfkur
þann 5. desember. Ekki gekk vel að fá nemendur skólans
til að mæta á sundæfingar, og sýnir það ótr-úlegt áhugaleysi
á þessari þjóðar fþrótt.
Vonandi sýna nemendur meiri áhuga á þessari fþrótt, sem
og öðrum fþróttum, sem skólinn getur boðið upp á.
27