Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 04.01.1969, Side 16
En Anna var orðin náföl.
"ViÖ neyðumst til að flytja, Jói," sagði híón ákaflega veikri röddu.
"En elskan mín - við erum ekki orðin neinir miljónamæringar,"
andmælti Jói, "og ég hélt að þó værir svo ánægð með íbúðina - og ná-
grannana."
Anna svaraði ekki. Tárin runnu niður kinnar hennar, og hún grýtti
blaðinu út f horn.
"Af hverju þurftirðu líka að finna þennan bölvaða hring," kjökraði
hún. "Nú hefurðu eyðilagt allt! "
Og Jói botnaði ekki neitt í neinu...
Glámur III. - ?
Eva
Litla lambið hoppaði,
litla hoppaði lambið,
hoppaði unz það stoppaði,
stoppaði unz það kroppaði,
kroppaði unz það stoppaði,
stoppaði unz það þambaði,
þambaði imz það rambaði,
rambaði þar til það datt,
flatt,
sprakk,
og lét líf sitt - takk.
«
16