Heimili og skóli - 01.02.1942, Qupperneq 7

Heimili og skóli - 01.02.1942, Qupperneq 7
HEIMILI OG SKÓLI 3 SNORRI SIGFÚSSON, skólastjóri; H i n i r vígðu þæt t i r Fyrir rúmlega hálfri öld kom ung- ur bóndasonur úr siglingu heim til föður síns, sem var ríkur bóndi og mikilsmetinn. Bóndi hafði sent þenna embætti kennara eru lítilsvirt, starf þeirra talið ónýtt og launin eru svo eftir því. En sárast af öllu er þó, þeg- ar foreldrar og kennarar lenda á önd- verðum meið, svo að gagnkvæman skilning brestur og hvor aðilanna um sig gerir sem minnst úr uppeldisstörf- um hins. Og þetta er miklu meiri ógæfa en mörgum mun ljóst. Lítils- virðingin og vantraustið getur lagst á skólastarfið eins og lömunarveiki og rænt það þrótti og æskilegum árangri. Skilningsleysi er alls staðar illt, en það er einna háskalegast, ef það á sér stað milli skóla og heimila. Góðir foreldrar og kennarar stefna að sama marki: að kenna börnunum að nota sem bezt og viturlegast þann auð, sem þau búa yfir. Uppeldisstarf skóla og heimila á að vera eins og þættir í sama þræði, sem barnið get- ur notað sem bjargvað í gullnámum sinnar eigin sálar. Gæzlumenn hins dýrmætasta auðs þjóðarinnar þurfa allir að skilja til fulls, hversu óendan- lega mikilvægt starf þeirra er og að sameina krafta sína eins og einhuga bræður til þess að leysa það sem bezt af höndum. son sinn til búnaðarnáms erlendis og þótti það sjaldgæfur frami í þá daga og líklegur til margs konar vegsauka. Hinn ungi og velgefni bónda- sonur, fullur af á- hiuga og lífsþrótti, hafði frá mörgu og merkilegu að segja. Hann sagði frá hinum miklu búnaðar-framför- um nágranna- þjóðanna og hve vel þær væru komnar á veg með að gera jörðina sér undirgefna. — Og honum þótti ástandið svo gjörólíkt hér og hörmu- legt, sem vafalaust hefir þá rétt ver- ið, að stór skref þyrfti nú þegar að stíga til þess að komast eitthvað áfram. Bóndi var hrifinn af áhuga sonar síns og þótti mikið koma til þekkingar hans og umbótavilja, og fór mjög að ráðuum hans um margt. En eitt sinn er honum þótti hann fara of geist og ekki hirða nægilega um að samræma nýungarnar íslenzk- um aðstæðum, á hann að hafa sagt upp úr eins manns hljóði: í>að sem á öllu veltur Dóri minn, er að halda sönsum. Og þetta varð orðtæki í sveit- inni um nokkur ár, að visu oft mis- notað, en þó talið að hafa haft nokkra Snorrí Siéfússon.

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.